Heima er bezt - 01.05.1982, Side 15

Heima er bezt - 01.05.1982, Side 15
/Strjúgsskarði. Girt utan um keldu. Auðunn Bragi og Ólafur sonur hans á gangi í átt að keldunni. myndinni er Sveinn Hannesson frá Elivogum, sá sem um er ort. Á litlu innfelldu Brotnar rústir bæja hér birtu örlög nöpur. Ef ei byggist aftur hér eru forlög döpur. Hérna forðum byggðu bú börn í lágum garði. Eru gullin góðu nú, grafin undir barði. III. Eitt sinn bjó hér afi minn, — við Elivoga kenndur. Kersknis fyrir kveðskap sinn karl sér veitti féndur. Karl á vísum kunni lag, — kaunin rétt á hæfði. Fólans jafnan fyrtinn brag fæðingu í kæfði. Lipran gat og lagað óð um landið, kvenþjóðina. Svo og kveða kunni ljóð karl um fegurðina. Kætast náði, karlanginn, kneifði guðaveigar. Opnaði þá anda sinn; urðu vísur fleygar. Hart mót neyð oft háði stríð hér í eyðidalnum. þegar válynd vetrarhríð var í fjallasalnum. Virtist þá sem vonin blíð væri björgin eina, þegar koldimm kafaldshríð krafta vildi reyna. Vor og sumar varma gaf veiku sálartetri, er í djúpum dvala svaf á dimmum, löngum vetri. Ungur drengur undi sér úti í sólskininu. Ljósið fyrsta lífsins hér leit í Vatnsskarðinu. Bernsku hans þar brotnar enn, bæjar- sjást nú -rústir. Hrundar, gleymdar, horfnar senn, hálfuppgrónar þústir. IV. Okkar tekur ævivor enda fyrr en skyldi. — Hérna fyrstu hóf ’ann spor, — hérna deyja vildi. Haldið langa hef ég slóð hér um eyðidalinn eftir grýttri götuslóð gegnum fjallasalinn. Fyrr en varði fann ég mig friðsælu á kveldi. Klökkum hug ég kvaddi þig kvöldsólar í eldi. Heima er bezl 159

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.