Heima er bezt - 01.05.1982, Síða 34

Heima er bezt - 01.05.1982, Síða 34
dauðspakar ærnar allt um kring. Skreyttar bókarkápur voru þá fágætar, og hvað þá að myndir á þeim væru svona ljóslifandi úr íslensku þjóðlífi. Myndin ein hefði nægt til að gera bókina vinsæla, en svo flutti hún þeim, sem með kunnu að fara skráð lög við öll vinsælustu ljóðin, sem þjóðin söng og mörg fleiri. Ég tel vafalítið, að íslenskt söngvasafn hafi á sínum tíma flutt þjóðinni meiri gleði og menningu en flestar aðrar samtímabækur. Og enn getur það gegnt mikilvægu hlutverki, ef menn kunna með það að fara, að mynda mót- vægi gegn allri þeirri hávaðaframleiðslu nútímans, sem kölluð er tónlist, hvort sem það heitir jass, rokk eða pönk, eða hver veit hvað, þar sem hljóðhimnunum er of- boðið með hávaðanum og mál og braglist svívirt með textunum. Þess vegna ber oss að fagna þessum gamla góðkunningja og þakka útgefendum fyrir að hafa leitt hann heim til okkar. Magnús Jóhannsson rithöfundur frá Hafnar- nesi er Vestmannaeyingur og eftir hann hafa komið út átta bækur; skáldsögur, smásögur og Ijóð. Magnús varð sextugur 28. desember á s.l. ári, en i gegnum árin hefur hann stundað sjó- inn. Til Vestmannaeyja flutti hann árið 1960, en bjó I Reykjavík um skamma hríð eftir eldgosið í Eyjum. Ekki undi hann þó í borginni og fór því aftur út í Vestmannaeyjar. Ljóðin hér á siðunni eru öll eftir Magnús. ÞRÁ Eins og fugl yfir endalausu hafi flýgur þrá mín leitandi. VOPNAHLÉ Stundum er nóttin friðsæl enginn stormur, engin sorg. Þá brosa augu himinsins og máninn hlær við heitkonu sinni jörðinni blundandi undir hvítum mjallarvoðum á meðan byssuhlaupin eru köld og sorgin hefur hægt um sig. TVISVAR VERÐUR MAÐURINN BARN Ég veit ekki hvað hún heitir konan á stofu no 208. Hún er horfin aftur til kornbernsku sinnar. Líkami hennar hefur dregist saman eins og óleysanlegur hnútur. Hún hvílir á bakinu með opinn tannvana munn ambrar þegar hjúkkurnar mata hana grætur eins og hvítvoðungur sem lítur heiminn í fyrsta sinni. LJÓSIN TINDRA Ljósin tindra yfir borginni sem lætur sig fljóta á öldum ljósvakans. Trén í Hallargarðinum bera grænt barr og enginn telur sultarlaun í norðanátt og enginn kúrir undir slitnum frakka í Hljómskálagarðinum. 178 Heimu er bezl

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.