Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1989, Qupperneq 8

Heima er bezt - 01.02.1989, Qupperneq 8
Ásgeir Þórhallsson og Halla Angantýsdóttir ásamt Einari Guð- mundssyni og Þórhöllu Asgeirsdóttur. — Hvernig hefur þessi reynsla breytt þér þá sem manni? — Að vissu leyti verður maður meiri einfari, — maður er svo mikið einn, jafnvel þó við séum tveir saman við veiðarnar, því maður liggur að jafnaði einn á greninu. Þó er ég ekki frá því að ég njóti margmennis að sumu leyti betur en áður, reyndar held ég að hverjum manni sé einvera nauðsynleg að vissu marki, en það er mikill misbrestur á því nú til dags. Ég hef stundum ráðlagt mönnum það að fara á afvikin stað, gjarnan kannski þar sem er fuglalíf, það er alltaf notalegt að hafa þá blessaða hjá sér, sitja bara grafkyrr, — láta fara vel um sig í góðu veðri og virða fyrir sér lítinn blett í landslaginu og eftir fáa klukkutíma gerist eitthvað i sálinni. Og til langframa þá er þetta svona andleg vaxtarrækt. — Hefur þetta kannski líka breytt þínum lífsskilningi í samskiptum við annað fólk? — Ég er ekki frá því, að mér finnist ýmislegt sem menn hafa í kringum sig, oft eitthvað sem keypt hefur verið dýrum dómum með mestu erfiðismunum, ekki eins í varið og áður. Annars er svolítið erfitt að tala um þetta því það getur virkað sem maður sé að guma af einhverjum and- legum auði sem aðrir ráða ekki yfir. — Mér finnst ég megi lesa það í fari þínu Angantýr, þegar við erum að spjalla um þessi mál, að þú hafir sérstaka skoðun á því hvernig við Islendingar ættum að nýta okkur gæði þessa lands? — Má vera, — alla vega kemst ég alltaf meir og meir á þá skoðun að veiðimennska og það að nýta sitt nánasta umhverfi til framfæris sé það eðlilegasta og hollasta sem við eigum völ á, það er svo aftur annað mál að með nútíma tækni finnst mér margt stefna í svona heldur óhugnanlega átt. Það er t.d. talað um að hafa fiskiskip sem fæst, fisk- vinnslur sem fæstar og að sækja mikið aflamagn á skömmum tíma, — bókstaflega ryðja því í land, og veiði mennirnir eru þar með ekki fullgildir í þjóðfélaginu lengur, þeir breytast í eins konar nútíma útilegumenn og þetta finnst mér heldur ömurlegur gangur. Og ég verð að segja það hreint út að mér finnst sjávarþorp með dagróðrarbát- um, þar sem aflinn berst glænýr að landi og nýttur eins vel og kostur er, ætti að vera það eðlilegasta og besta, en til þess þarf bæði mikinn tíma og nægar hendur. Því finnst mér að ætti að sporna gegn þessum gleypigangi og stóriðjubrag af öllu afli. — Með tilvísun til þessara þorpsrústa á Langanesinu, ertu þá ekki svolítið hræddur um afdrif lítilla sjávarþorpa í dag? — Mér hefur oft verið hugsað til þess þegar ég geng um rústirnar að Skálum að svona gæti farið fyrir Raufarhöfn og Þórshöfn. Það er ekkert langt síðan að menn vildu ólmir eiga heima á Sléttunni og á Langanesinu vegna sjávargæða og hlunninda. En nú er því haldið fram að hægt sé að nýta fiskimiðin án þess að búa nema til þess að gera á fáum stöðum á landinu, og eins er það með veiðilöndin, það. þurfi ekki búsetu til. Auðvitað setur þetta í mann efasemdir með framtíðina. — Hefur þú einhvern samanburð á búsetu út frá fé- lagslegum forsendum? — Ég hef átt heima í Reykjavík, þannig að ég þekki nú bæði borg og sveit, en nú bý ég hérna í litlu sjávarþorpi og finnst það að mörgu leyti notalegasta samfélagið. Þar þekkja allir alla, það er að vísu stundum erfitt ef menn haga sér ekki alveg eins og á að gera, en jafnframt ef eitthvað bjátar á, þá eru menn boðnir og búnir til að hjálpa. I sjávarþorpinu þá veit hver einasti maður hvað er að gerast, — hvað sveitarfélagið er að framkvæma og hvernig, — en í Reykjavík geta farið fram stórkostlegar framkvæmdir og helmingurinn af borgarbúum hefur ekki hugmynd um hvort þetta er á fjárhagsáætlun eða þá hver er að fram- kvæma verkið og hvernig að því er staðið. En á svona stöðum eins og hér á Raufarhöfn fylgjast menn með öllu i smáatriðum og eru mjög vel meðvitaðir um sitt samfélag, kannski stundum svolítið smámunasamir og jafnvel kröfuharðari fyrir vikið, en það gæti alveg eins verið af hinu góða. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að við erum hluti af lífríkinu og náttúrunni og eigum að umgangast hana með virðingu og varúð en ekki níðingsskap eins og nú er gert. Menn ættu að hugsa sig betur um þegar þeir fella þunga dóma um þá sem stunda veiðar. Ævilok veiðidýrsins einkennast að vísu af miskunnarleysi en það hefur þá fengið að lifa frjálst en ekki svipt eðli sínu eins og t.d. hænsni og nautpeningur í nútíma stórbúskap sem aldrei lifa eðlilegu lífi. Neysluþjóðfélagið er með tækni sinni og græðgi að breyta moldinni í lífvana leir, vötnum og hafi í ýldupolla og andrúmsloftinu í eiturgas. Veiðimennskan finnst mér hins vegar vera háttur náttúrunnar sjálfrar, jafnvel gróin í mannlegt eðli og hún dregur frekar fram það jákvæða en neikvæða í manninum. 44 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.