Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1989, Qupperneq 18

Heima er bezt - 01.02.1989, Qupperneq 18
móðirin hafi fundið þar vígi fyrir ár- ásum svartbaksins og því hafi þessir sloppið? Litlu blessaðir bobbarnir. Rétt nýkomnir úr egginu. Það er ekki von að móðirin þori langt út á vatnið með þá. Og hugsa sér það, ef allir ungarn- ir, sem svartbakurinn er búinn að taka, hefðu lifað. Ja, - þá hefði hóp- urinn verið fallegur á vatninu í sumar, ásamt öllum mæðrunum. Steggjarnir hverfa ævinlega af vatn- inu í lok varptímans. Eg sit á móhellusteini, í skuggan- um, inni undir barðinu. Byssan liggur þvert yfir hnén, en ég held um hana. Þá get ég brugðið henni á loft á augabagði, ef svartbakurinn kæmi aðvífandi og svifi hjá í færi. Samt veit ég að ég á örugga útverði. Þeir eiga líka ungana sína á holtunum hérna ofan við. En - þó þeir aðvöruðu mig þá veit ég líka að sjón svartbaksins er af- burða skörp, eins og hjá krumma. Örlítil hreyfing, áður en hann kæmi í færi, gæti orðið til þess að ég tapaði honum. Þegar þá grunar hættu, gera þeir stundum svo snöggar hliðar- sveiflur, upp á við eða til hliðar, að ekki er nema fyrir skotsnillinga að hæfa þá. Bíðum við. Þarna er þá öndin komin í dauðafæri.Hún veit ekki um mig. Og litlu ungarnir tína lirfur og flugur (rykmý), sem þarna eru í röstum við bakkana. Hvað þeir eru liðugir og kvikir og röskir. Ætli að svartbakurinn eigi eftir að taka um hálsinn á þeim? Þegar þeir fara að stálpast kostar það hann stundum talsverða snúninga að ná þeim. Þeir eru svo snarir að stinga sér. En sé logn og vatnið ekki skollitað eftir veður, þá sér hann þá niðri í vatninu, sveimar yfir þeim, og grípur þá þegar þeir neyðast til að leita yfirborðsins. Ekki er griður gefinn og ekki er her- ferðin hetjuleg. Þarna sá öndin mig enda rétt kom- in að mér. Hún er þó ekki viss um hvað þetta er. Hún teygir upp háls- inn og horfir á mig gaumgæfilega. Jú, nú kallar hún á ungana og gefur þeim hættumerki með því að lyfta nefinu nokkrum sinnum snöggt. Þeir hlaupa til hennar. Hún sveigir frá landi, en snýr ekki við. Svo syndir hún norður, nokkra metra frá bakkanum. Hún er þessu svo vön. Sjálfsagt hefur hún oft komið, ásamt mörgum félögum sínum, nærri fast að mér og hundin- um mínum, þar sem ég hef setið á vatnsbakkanum og kíkt á þær en héppi hefur gert ýmsar hunda- kúnstir, sem vakið hefur óskipta at- hygli þeirra og þó sérstaklega kven- fuglanna. Nú tindrar sólskinsliturinn í fallegu augunum hennar. Ef svart- bakurinn kæmi núna, þá skyldi hann sannarlega fá kveðju, sem hann gleymdi ekki strax. Og ekkert freist- ar hans meira en svona ósjálfbjarga ungar á lygnu vatninu. Og nú syndir öndin að landi rétt norðan við mig. En hvað móðirin hefur sterkan vörð á ungunum. Hún er alltaf að hvima. Hún virðist lítið eða ekkert fá sér sjálf af öllu þessu góðgæti, sem á vegi hennar verður. Og þarna hverfur hún norður fyrir oddann. Ætli ég liggi ekki enn einn klukku- tíma fyrst ég er á annað borð kominn hingað. Hér er líka besti staðurinn að dyljast, meðan sól er að hækka á lofti. Ha! Hvað er nú á seyði? Kríurnar þjóta af stað, og - strax komnar í vígahug. Sennilega krummi gamli eða kjói eða - svartbakurinn? Bara að það væri hann. Alltaf eru þær jafn vígreifar og röggsamar. Þær láta sannarlega „hendur standa fram úr ermum“, þegar óvelkominn gestur nálgast eggin eða ungana þeirra. Þær eru fæddar til herþjónustu. Og svo hjálpsemin. Ekki er skortur á henni. Þær eru hreinasta fyrirmynd um sam- vinnu. Nú. Það er naumast gangur. Þær djöflast í einhverju, þarna norður frá, og - nálgast. Ólíklega er það krummi. Hann hefði varla tekið á móti þeim þegjandi, sá gamli. En baksi. Hann er ekki uppnæmur fyrir svona narti. Sá karl fer hljóðlega þegar hann er í vígahug. Ef til vill er það hann? Ég þrengi mér upp undir barðið, sný mér norður, held um byssuna og er viðbúinn. Æ-i. Þar hrapaði þá mold niður á hálsin á mér og veltur niður á hrygg. Ef til vill flýgur hann yfir mig, í dauðafæri, áður en hann sér öndina? Þá skal ég vanda mig. Nú kallar öndin. Þar sér hún hann. Sennilega er það svartbakurinn að koma. Þá flýgur hann venjuiega suð- ur með vatninu að austan og oftast yfir því sem næst landi. Þar er líka besta veiðivonin. Ég sný varaskotinu í vinstri hendi svo patrónubotninn snúi að mér. Nú skal ég vera fljótur að snara því í, ef sá herjans þrjótur heyrir það fyrra og . . . . Hvaða ósköp hljóðar öndin. Það er ekki um að villast. Hann hefur séð hana og sennilega er það ha . . . . Sjáðu bara. Þarna brá fyrir stórum, ljósum vængjum, við barðbrúnina, hátt uppi og talsvert norðar. Þeir hurfu aftur. Gott. Hann hefur ekki séð mig. Öll athygli hans beinist auðvitað að önd- inni, sem hljóðar nú alveg voðalega og þó öllu heldur að ungunum hennar. Ég rís upp, hægt og örugglega, og gægist undan barðinu. Annars bloss- ar veiðihugurinn undir niðri og óviss- an magnar óstyrkinn. En nú má ekki mistakast. Þarna lyftir svartbakurinn sér til flugs, með unga í nefinu. En þeir vængir, og - hvað unginn sprikl- ar og svona langt færið. Skotið bylur. Svartbakurinn fellur aftur í vatnið, og unginn spriklar við hlið hans. Ég set hitt skotið í byssuna og tek sprett- inn norður vatnsbakkann. Svartbak- urinn syndir hratt frá landi og ungan- um, sem nú er hættur að brölta, hægri vængur svartbaksins er brotinn. Hann stendur þversum í vatninu þannig að vænghnúinn snýr niður en broddar handflugfjaðranna standa talsvert upp úr því. Samt syndir hann knálega burtu, snýr öðrum vanga að mér og horfir til mín. Ég sé hvernig augað sindrar móti hækkandi sól. Nú brennur þar glóð angistar og kvala. En hann barmar sér ekki. Ó - nei. Sjálfum dauðanum mætir hann með óbifan- legri ró og festu og fullkomnu jafnvægi hetjunnar, sem heimtar allt og fórnar - öllu. - Annað skot rýfur kyrrðina. Höfuð svartbaksins hnígur í vatnið. Hann liggur kyrr. Svo bærist heilbrigði vængurinn. Hann þenst út og slær Framhald á bls. 60. 54 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.