Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1989, Page 24

Heima er bezt - 01.02.1989, Page 24
Séra Arnljótur Ólafsson. magnann. Hann reiknaði það allt út, svo jafnaði hann sköttunum niður á hvert mannsbarn í landinu og kallaði það nefskatta. Hann var framúrskarandi mælskur, hrein- skilinn og fyndinn; stundum lítið eitt óhlífinn í orðum. Hann skildi að það þurfti að vekja fólkið til umhugsunar. Allir höfðu gagn og ánægju af greinum hans, sem voru ljósar og skiljanlegar. Auk prestsembættisins var séra Arn- ljótur læknir og hjálpaði mörgum; hann var álitinn mesti búmaður og virtur af þjónustufólkinu, en sá göfugi kostur einkennir beztu menn þjóðanna. Það var haft eftir karli nokkrum, sem lengi var á Bægisá; hann var að tala við bónda þar í sveitinni; hann segist hafa heyrt að Arnljótur hafi það til að vera ráðríkur. Þá svarar gamli maðurinn: „Farðu vel að séra Arnljóti og mun hann reynast þér eftir- látur, því hann er spekingur að viti, en spekingar þola ekki mótspyrnu, því þeir sjá það rétta.“ Þótti þetta gott svar af karli. Séra Arnljótur var alþingismaður Eyjafjarðarsýslu og þótti skörulegur í framkomu; báru allir virðing fyrir honum sem merkum ræðumanni; djarfur og djúpséður meir en almennt gerðist. Mér finnst hann hafi verið jafnaðarmaður frá sjónarmiði mannúðar og friðsemdar. Hann var al- þýðuvinur, sem vildi að fólkinu væri hjálpað á verklegt þroskastig, en ekki að skatta menn um efni fram; hann sá að þá fyrst ætti þjóðin góða framtíð fyrir höndum. Þennan sannleika, sem séra Arnljótur sá fyrir sjötíu árum samsinna allir mannvinir nú á tímum. Það þarf að hlúa að þeim sem lyfta hinum þungu byrðum verkanna, vinnulýðnum og landbúendum, og skilja að það er alþýðan, sem heldur heiminum í jafnvægi. Kona séra Arnljóts var mesta myndarkona að nafni Hólmfríður, ein af hinum valinkunnu systrum og merkis- konum þeirrar tíðar, dætrum séra Þorsteins Pálssonar á Hálsi í Fnjóskadal. Var heimilið á Bægisá orðlagt fyrir reglu og smekkvísi; líka var orð á því gjört að ástríkara hjónaband væri fágætt að finna. Þessir menn mega ekki tapast úr sögunni, þeir lögðu fram krafta sína og hæfileika til viðreisnar landi og þjóð. Lögberg 29. jan. 1942. - Dýravinur eða? Framhald af bls. 54. nokkur aflvana slög í vatnið, með þeim afleiðingum, að svartbakurinn snýst alveg við. Svo liggur hann hreyfingar- laus. Mjallhvítt brjóst og bjartur blikandi vatnsflötur. Svona var þá síðasta fórnin. Á litla hálsinum vottar fyrir blóði. Litli vinur. Pín vegna gleymdi hann hættunni. Þín vegna gáði hann ekki að sér. Þín vegna sigraði ég - núna. Já. Svona er það stundum. Dýrustu fórnina færa þeir veik- byggðu og smáu. Eg strýk um augnalokin á svartbaknum. Hvílík augu. Jafnvel enn blikar úr djúpi þeirra köld, óbifanleg ró og dirfska. Nú stara þau út í heiðríkjuna. Þau stara þangað, sem þú hefur svo oft svifið, á þöndum vængjum - alfrjáls - við árblik vormorgna. Og hver veit, nema að þangað sértu nú aftur kominn, - þangað, sem enginn máttur megnar að brjóta vængina þína? Langt úti á vatninu syndir duggönd. Hún fer hægt, ber höfuð hátt og hefur gát á öllu. Fast við stél hennar, öðru megin, syndir ungi. Hann er ungur og óstyrkur en finnur hvar sundið sækist best. Það veit móðirin líka. Því ert þú komin svona langt frá landi? Skynjaðir þú hvað gerðist áðan, þegar óvinurinn, sem tók ungann þinn litla, féll í vatnið? Því gæti ég best trúað. Af heilum hug vildi ég nú óska þess að nú fáir þú að hafa hann hjá þér, þennan eina, þennan síðasta. Já. Ég vildi óska þess, að nú fáir þú að njóta hans, þar til þið bæði leggið af stað í langferðina miklu, til mildari staða. Ég vona líka, að þrátt fyrir margar hættur í þeirri för, hættur, sem eru öllum svartbökum ægilegri, þá komir þú aftur. Og sé það dóttir þín, sem nú fylgir þér, þá kemur hún líka. Þótt svona færi núna, brennur sama þráin í brjóstum ykkar beggja, því: „rörnrn ersú taug, er rekka dregur föðurtúna til.“ Júlí 1950. 60 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.