Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1989, Síða 34

Heima er bezt - 01.02.1989, Síða 34
- Þú skalt spyrja Snæ að því, því satt að segja skil ég ekki sjálfur hvernig hann fór að sleppa án stóráfalla, sagði pabbi og ég heyrði ekki betur en það væri stolt í rómi hans. Og hann leit á mig, brosandi, já, svona rétt eins og ég væri eitthvert undur, mikill maður, vaxinn hon- um yfir höfuð. Eg ræskti mig, og helst hefði ég kosið að vera kominn út í fjárhús. - Ég reyndi að fylgjast sem best með ánum, horfði eftir, hverjar væru linastar að fara að garðanum og einnig hverjar jórtruðu ekki eftir gjöfina og svo hellti ég hitatöfl- um ofan í þær strax og ég sá á þeim. - Já, hann hefur, blessaður drengurinn, verið öllum stundum yfir fénu, varla gefið sér tíma til að borða, - segir mamma. Stutt, en nokkuð þrekin, framsett með þykkar kinnar og undirhökur. - Já, þú ert ekkert blávatn, drengur minn, segir Loftur, lítur á mig aðdáunaraugum, glampi í þeim, fallegur glampi. Rétt eins og Mjöll horfi á mig. Þú átt einhvern tíma eftir að verða góður bóndi. Sá sem er trúr yfir litlu mun settur yfir mikið, stendur einhvers staðar. Ekki hefði þurft að bjóða honum Hauki mínum þvíumlíkt stúss. Honum hefði fundist þetta nokkuð bindandi er ég hrædd- ur um. - Þessi smitandi lungnabólga er andskotans plága að glíma við, segir pabbi og þurrkaði tóbaksdropa af nefinu. Ég sé það út um gluggann að farið var að létta til, rigningarskúrirnar voru gengnar yfir, komið sólskin og sannkallað gróðrarveður. Nú hefði ég ekki viljað undir neinum kringumstæðum, að ég hefði ekki fengið pláguna í ærnar. Nei, mér finnst í dag að ég hefði fengið alla þá fyrirhöfn sem ég hafði orðið að leggja á mig, á meðan pestin geysaði í ánum, vel borgað á þessari stundu. Þessi orð frá þessum manni. - Það er bara verst, að það er ekkert upp úr þessu andskotans búskaparbasli að hafa, hversu mikið sem maður leggur á sig, segi ég ofurlítið hikandi. - Snær! segir pabbi, og hann gefur svo mikið til kynna í þessu eina orði, að ég hrekk við og síg niður í sætinu. - Það er nokkuð til í því drengur minn, segir Loftur með hægð og lítur út um gluggann. Hinum megin við ána blasir Hjalli við og féð er byrjað að renna heim á túnið. Ég er nú þeirrar trúar, að þetta eigi eftir að breyt- ast, maður verður bara að þrauka dálítið lengur. - Þrauka, segi ég og sest alveg upp í stólnum. Þetta getið þið sagt þessir gömlu menn, sem eruð grónir við þúfuna og þekkið ekki annað betra. Loftur lítur á mig, sami glampinn í augunum, sama brosið. Ef til vill eins og svolítið meiri meðaumkun en fyrr. - Já, við þessir gömlu þekkjum ekki annað betra. Það er satt, en eru hinir nokkuð ánægðari sem hafa þetta háa kaup. Kannski í dag, en ef til vill ekki á morgun. Þeir eru annarra þrælar margir og upp á aðra komnir með vinnu. Er þá ekki frelsi bóndans neins virði í þinum aug- um? Hverjir byggðu þetta land? Jú, það voru menn, sem lögðu út í þá óvissu að sigla yfir úfin sæ, vegna þess að þeir gátu ekki hugsað sér að gerast annarra þrælar. Held- ur þú að þetta frelsi, sem þeir sóttust eftir, já, fórnuðu öllu fyrir, sé fánýtt hjóm? ég segi nei og aftur nei. Og hvers vegna heldur þú að kaupstaðarfólkið keppist við að koma börnum sínum í sveit að sumrinu. Það er vegna þess, að samskipti unglinganna við frjálsa náttúru er besti og hollasti uppeldisskólinn, sem barnið getur fengið. Hann lítur hvasst á mig. - En hvernig er hægt að lifa í sveit, þegar afurðir bú- anna hrökkva ekki fyrir nærri öllum reksturskostnaði hvað þá lífsframfæri þeirra er við framleiðsluna fást, segi ég og þykist tefla fram haldgóðum rökum. - Nei, þarna liggur einmitt hundurinn grafinn. Þannig er að landbúnaðinum búið í dag, að það geta ekki aðrir en þeir, sem standa á gömlum merg, lifað af þeim at- vinnuvegi. Búin eru of smá, ræktunin ekki nógu langt á veg komin og vélvæðingin ekki nógu almenn. - Hann fær sér aftur í nefið um leið og hann leitar að orði. - En hvernig á þá að fara að því að stækka búin, rækta jarðirnar og kaupa vélar, þegar hvergi er hægt að fá fjár- magn til þess og vextir af lánum það háir, að ógerningur er að taka þau? - Nei, það er einmitt vandamálið. Þetta er allt satt sem þú segir. Ég er oft búinn að ræða þetta við Hauk minn. Þetta á eftir að breytast. Þið eruð of svartsýnir ungu mennirnir, of óþreyjufullir. Hægt er að þreyja þorrann og góuna, segir máltækið. - Oþreyjufullir. Við viljum bara lifa eins og frjálsir menn, en ekki eins og moldvörpur. Sá er munurinn á okkur og ykkur, eða trúir þú því virkilega að þetta eigi eftir að breytast í náinni framtíð. - Já, ég meira en trúi því. Ég veit það, hvort sem þeim er það ljúft eða leitt, sem með völdin fara, þá neyðast þeir til að breyta þessu, segir Loftur, stendur upp og fer að ganga um gólf. Sjáðu nú til, Snær, þjóðinni fer ört fjölgandi, en um leið fækkar þeim er við landbúnað vinna svo landbúnaðarframleiðsla hlýtur að dragast saman á næstu árum. Þess vegna verður þess ekki langt að bíða að vöntun verði á landbúnaðarvöru og þá verður ekki spurt að því hvað þær kosta. - En heldur þú, góði maður, að við hér í sveit og ann- ars staðar sjáum ekki þann mikla mun sem er á lífsafkomu okkar og fólksins við sjóinn núna. Heldur þú að við sjáum ekki þegar það leikur sér hér á sumrin í 2-3 vikur á fullu kaupi, meðan við stritum myrkranna milli fyrir skít og ekki neitt. Og hugsaðu þér, Loftur, allan peningaaustur- inn kringum síldina. Það er fljótfengin krónan þar. - Já, síldin, segir Loftur og sígur upp í nefið. Þar komst þú einmitt með það. Hvað heldur þú að sú dýrð standi lengi og hvað heldur þú að allt þetta fólk geri er það stendur frammi fyrir þeirri staðreynd að búið er að veiða alla síldina? - Veiða alla síldina, ét ég upp eftir honum eins og kjáni. Finn eitt puntstrá á bringunni fleygi því í öskuskúff- una á eldavélinni. Framhald í nœsta blaði. 70 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.