Heima er bezt - 02.10.1993, Blaðsíða 36
ÞÝDDAR SKÁLDSÖGURUNAR
PETER N. WALKER:
CARNABYÁ
RÆNINGJAVEIÐUM
Breska lögreglan óttast, að stórþjófnaður
kunni að verða framinn bráðlega í ein-
hverri járnbrautarlest landsins og hún læt-
ur þess vegna einn helstu manna sinna,
Carnaby lögregluforingja, koma sér í
mjúkinn hjá þekktum bófaflokki. Hlutverk
hans er að grafast fyrir um það, hvernig
glæpamennimir ætli sér að afla fjár til að
kaupa nauðsynlegar upplýsingar um
væntanlega flutninga á stórri sendingu af
gulli.
Bók nr. 4068 Heb-verð kr. 300
PETER SANDER:
DAUÐINN KEMUR TIL
MIÐDEGISVERÐAR
Óveðursnótt í október. Eftir auðum vegi
um dimman skóg ekur MG-bíll með ofsa-
hraða. Þurrkurnar hafa vart undan að
strjúka af framrúðunni. í brattri skógar-
brekku stansar vélin, því að bensínið er
þrotið. Hvað skal nú til ráða? Yfirgefið
hús... En öll Ijós tendruð og útvarpið í
gangi... Veisluborð, sem sýnilega hefur
verið yfirgefið í ofboði... Vínglas, sem velt
hafði verið... Símasambandið rofið... Lík í
svefnherberginu og hlaðin skammbyssa
við hliðina á því. Hvað hafði gerst hér?...
Fótatak og högg í hnakkann... Fögur og
dularfull kona... Undarlegur drengur sem
er ofviti eða umskiptingur... Þetta eru að-
eins nokkur atriði úr efni þessarar við-
burðaríku leynilögreglusögu, sem einnig
er skemmtileg og þægileg aflestrar. Út-
gáfuár: 1968
Bók nr. 4069 Heb-verð kr. 200
Þetta mikla verk kom út
1957 og þá skrifað af Ólafi Jónssyni.
Nú hefur verkið allt verið yfirfarið og
endurbætt. Auk þess hefur verið bætt
við frásögnum af snjóflóðum og skriðuföllum'
frá 1958-1990 og koma þar margir að verki, en Jóhannes
Sigvaldason hefur ritstýrt verkinu og leitað fanga víða.
Fyrri útgáfan var í tveimur bindum en þessi útgáfa ergefiti
út í þremur glæsilegum bindum og ekkert til sparað að
verkið sé þannig úr garði gert að sómi sé að.
úhi mh/biíH
36
Bókaskrá