Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1993, Blaðsíða 41

Heima er bezt - 02.10.1993, Blaðsíða 41
ENDURMINNINGAR OG ÆVISÖGUR málaferlum í skilnaðarmáli sínu og mörgu fleiru sem kemur á óvart. Bók nr. 5044 HEB-verð kr. 700 BJÖRN JÓNSSON (BJÖSSI BOMM): GLAMPAR Á GÖTU Margir þekkja Björn Jónsson undir nafn- inu Bjössi bomm. í bókinni lýsir Bjössi bernskuárum sínum og bommertum á Sauðárkróki, bæ alsælu og sólskins. Bjössi bomm er ærslafullur drengur og uppátæki hans eru sum hver ótrúleg, jafnvel hneykslanleg. Bjössi lýsir þeim og dregur ekkert undan. Lesandinn hrekkur jafnvel í kút eins og einhver hafi læðst aft- an að honum og öskrað í eyra hans. Myndskreytingar í bókinni eru eftir bróður hans, Jóhannes Geir lismálara. 270 bls. Bók nr. 5045 HEB-verð kr. 700 BJÖRN JÓNSSON LÆKNIR (BJÖSSI BOMM): ÞURRT OG BLAUTT AÐ VESTAN Síðara bindi ævisögu Bjössa bomm. Hann segir frá skólaárum á Akureyri og í Reykjavík og ekki síst frá læknisstörfum í Vesturheimi. Bjössi bomm er ekki venju- legur maður en hann er hreinskilinn við sjálfan sig og aðra. Hann segir frá drykkjuskap og daðri við fallegar konur. Hann var læknir á meðal indíána og varð þá að gera ýmislegt sem ekki mundi við- urkennt í Skagafirði, en Bjössi er og verð- ur Bjössi bomm. Bók nr. 5046 HEB-verð kr. 700 ÞÓRA EINARSDÓTTIR: AF LÍFI OG SÁL Þóra Einarsdóttir sem kennd er við Vernd segir í þessari bók frá ýmsu sem á daga hennar hefur drifið. Þessi ákveðna kona hefur beitt kröftum sínum í þágu þeirra sem fæstir vilja vita af. Hún lætur ekkert aftra sér þegar hún berst fyrir þetta fólk, hvort sem það eru rónar á íslandi eða holdsveikir á Indlandi. Hrífandi frásögn hrífandi konu sem á erindi til okkar allra. Bók nr. 5047 HEB-verð kr. 700 BETRl HELMINGIMNN Pær hafa áhrif Þær eru sjaldan í fjölmidlum t>æ r hafa frá ýmsu að segja ÝMSIR HÖFUNDAR: BETRI HELMINGURINN Sérstæð bók um konur sem giftar eru þekktum einstaklingum í íslensku þjóðlífi. Þær eru: Guðlaug Brynja Guðjónsdóttir, maki Guðjón B. Ólafsson forstjóri S.Í.S., Ebba Sigurðardóttir, maki herra Ólafur Skúlason biskup, Margrét Kristín Sigurð- ardóttir, maki Ragnar Halldórsson, fyrrv. forstjóri íslenska álfélagsins, Jónína Benediktsdóttir, maki Svavar Gestsson, menntamálaráðherra og Gerður Unn- dórsdóttir, maki Vilhjálmur Einarsson, skólameistari, Egilsstöðum. Bók nr. 5048 HEB-verð kr. 1750 ÝMSIR HÖFUNDAR: BETRI HELMINGURINN Frásögn kvenna sem giftar eru þekktum einstaklingum. Unnur Ólafsdóttir, maki séra Pálmi Matthíasson, Sigríður Haf- stað, maki Hjörtur E. Þórarinsson bóndi Tjörn, Ólafía Ragnarsdóttir, maki Sigurð- ur Geirdal, bæjarstjóri Kópavogi, Gunn- þórunn Jónsdóttir, maki Óli Kr. Sigurðs- son, forstjóri Olís, Helga Jóhannsdóttir, maki Ómar Ragnarsson, fréttamaður. 220 bls. Bóknr.5049 HEB-verð kr. 1750 ÝMSIR HÖFUNDAR: BETRI HELMINGURINN Frásagnir kvenna sem giftar eru þekktum einstaklingum. Jóna Dóra Karlsdóttir, maki Guðmundur Árni Stefánsson, bæjar- stjóri í Hafnarfirði, Sigríður Guðmunda Brynjólfsdóttir, maki Ásgeir Guðbjartsson skipstjóri, ísafirði, Ólöf Stella Guðmunds- dóttir, maki Róbert Arnfinnsson, leikari, Matthildur Jónsdóttir, maki sr. Bolli Gúst- afsson, vígslubiskup á Hólum, Ástríður Andersen, maki Hans G. Andersen fyrrv. sendiherra. Bók nr. 5050 HEB-verð kr. 2200 KRISTJÁN PÉTURSSON, LÖGGÆSLUMAÐUR: MARGIR VILDU HANN FEIGAN Kristján er langþekktasti löggæslumaður seinni tíma á íslandi. Hann hefur stjórnað rannsóknum á helstu sakamálum og átt stærstan hlut í að upplýsa þau. Hann hef- ur aftur og aftur rakið mál til fyrirmanna í samfélaginu og þá verið stöðvaður. Hann lét illa að stjórn enda fór hann sínar eigin leiðir. Þessi bók staðfestir margvíslega spillingu í íslensku réttarfari. Bók nr. 5051 HEB-verð kr. 750 ÁSGEIR GUÐMUNDSSON: GAGNNJÓSNARI BRETA Á ÍSLANDI Heimsstyrjöldin síðari skóp mörgum manninum sérkennileg örlög og íslend- ingurinn Ib Árnason Riis fór ekki varhluta af því. Þýska leyniþjónustan sendi hann hingað til lands vorið 1942, en hann gekk til liðs við bresku leyniþjónustuna og gerðist gagnnjósnari hennar. Hann segir frá atburðum sem tengdust njósnum hans og kemur þar margt á óvart. 200 bls. Bók nr. 5052 HEB-verð kr. 1750 PELE - SVARTA PERLAN ÞÝÐING: ÁSGEIR INGÓLFSSON Bókarauki eftir Víði Sigurðsson Hér segir frá frægasta knattspyrnumanni fyrr og síðar, Brasilíumanninum Pele. Hann ólst upp við erfiðar aðstæður en af einstökum dugnaði og útsjónarsemi varð hann ókrýndur konungur knattspyrnunn- ar. Bókin er saga hans utan og innan knattspyrnuvalla. Bókinni fylgir viðauki, frásögn af komu Pele til íslands á þessu ári í máli og myndum. Bók nr. 5053 HEB-verð kr. 4000 Bókaskrá 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.