Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1993, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 02.10.1993, Blaðsíða 34
ÞÝDDAR SKÁLDSÖGUR C.S. FORESTER: HORNBLOWER SJÓLIÐSFORINGI Hortatio Homblower er yngsti sjóliðsfor- inginn á HMS „Renown,“ þegar skipið heldur í leiðangur gegn Frökkum og bandamönnum þeirra í Vestur-lndíum árið 1802. Skipið er ekki farið úr höfn, þegar Ijóst verður að Sawyer skipstjóri er vanheill á geðsmunum og í rúmsjó verður hann fyrir slysi svo að hann verður óvinnufær. Það kemur því í hlut foringja hans að vinna það verk, sem honum hafði verið ætlað, að uppræta hreiður vík- ingaskipa á Samanaflóa á Haiti. Bók nr. 4053 Heb-verð kr. 500 ARTHUR CONAN DOYLE: SJÖ SÖGUR Höfundur þessarar bókar var einn af kunnustu rithöfundum Breta. Hann var fæddur 1859, las læknisfærði og stundaði lækningar um skeið, en gerðist síðan blaðamaður og að lokum skáldsagnahöf- undur. Mesta frægð hefur hann hlotið fyrir leynilögreglusögur sínar, Ævintýri Sherlock Holmes, en auk þeirra hefur hann ritað fjölda lengri og styttri sagna frá ýmsum tímum. Bók nr. 4054 Heb-verð kr. 300 ELICKMOLL: ELDFLUGAN DANSAR Þetta er skemmtileg saga. í henni segir frá hæglátum vefnaðarvörukaupmanni, sem sendur er til Japan í verslunarerind- um. Eins og að líkum lætur kynnist hann þar einni af þessum stúlkum (geisha), sem hafa það að atvinnu að skemmta ferðamönnum og viðskiptavinum stórra fyrirtækja. En mörgum hættir til að mis- skilja starf slíkra kvenna og af því getur leitt hin spaugilegustu atvik. Frásögnin er létt og lipur og þó hispurslaus. Bók nr. 4055 Heb-verð kr. 300 I. ARNEFELT: SONURFANGANS Þetta er ástarsaga og gerist í Frakklandi á þeim tímum er nýi tíminn er að ganga í garð. Gömlu aðalsstéttirnar eru að missa auð og völd en ættardrambið og hrokinn stendur eftir nakinn, og harðbrjósta. í sög- unni fléttast saman ást og hatur, blóðhiti og kaldrifjuð raunhyggja. En ástin, sem er blind, fer sínar eigin götur og sigrar að lokum. Sagan er vel skrifuð og bráð- skemmtileg aflestrar. Bók nr. 4056 Heb-verð kr. 300 HARRY PATTERSON: VIÐ RAGNARÖK Það er komið að stríðslokum í Evrópu vorið 1945. Margir foringjar nasista ætla að ráða sér bana til þess að lenda ekki í ómildum höndum bandamanna. Einn þeirra, staðgengill Hitlers, Bormann, þyk- ist kunna ráð til að komast undan. Hann ætlar að nota þekkta fanga, sem hafðir eru í haldi í Bæjaralandi, til að semja við bandamenn um að hann fái að vera laus allra mála. Hann fær vaskan SS-foringja, Ritter að nafni, í lið með sér og þeir fara til Bæjaralands til að taka fangana í sína vörslu. Þeir hafa Ifka ráð á vaskri, finnskri hersveit við framkvæmdina. Það á að vera auðvelt að vinna verkið... En Bor- mann kemur of seint. Fangabúðastjórinn hefur náð sambandi við bandamenn og þrír amerískir hermenn hafa tekið við uppgjöf búðanna. Bormann vill ekki una því og leggurtil atlögu. En verjendurnir, fyrrum fangar, fangaverðir og hermenn, búast til varnar og hrinda árás Bormanns og manna hans. Bormann kemst að vísu undan, en þeir eru margir sem leita hans, meðal annars einn fanganna, sem á sér- stakra harma að hefna... Bók nr. 4057 Heb-verð kr. 500 JACK HIGGINS: STRÍÐ í STORMI Bókin fjallar um ævintýralega siglingu nokkurra Þjóðverja frá Brasilíu til Evrópu á síðasta ári seinni heimsstyrjaldarinnar. Farkosturinn er ævagamalt seglskip og meðal farþeganna eru nokkrar nunnur, sem starfað hafa í Brasilíu öll styrjaldarár- in síðari. Áhöfnin er mestmegnis sjóliðar af kafbátum, sem ýmist höfðu farist eða hrakist til Brasilíu undan ofurveldi Banda- manna. Inn í frásögnina fléttast auk þess ýmsir atburðir að baki víglínunnar, bæði á meginlandinu og í Englandi, og auk þess Noregi. Bók nr. 4058 Heb-verð kr. 800 JACK HIGGINS: EINLEIKARINN Mikali var heimskunnur og eftirsóttur ein- leikari. Hvar sem hann fór, var honum tekið sem miklum aufúsugesti. Kvenhylli hans var slfk að jafnvel kaldlyndustu kon- um hitnaði um hjartarætur, er hann birtist, þó að hann sýndi þeim oftast fálæti. En hann lifði tvöföldu lífi, því að jafnframt var hann einn grimmlyndasti morðinginn, sem lagði leið sína um stórborgir Evrópu. Hann vann verk sitt eingöngu vegna spenningsins, sem því fylgdi, en hvorki af hugsjón né í hefndarskyni. Asa Morgan var einnig morðingi en hann var hermað- ur að eðlisfari og atvinnu, sem hafði barist við skæruliða og hermdarverkamenn í Kóreu, Malasíu og á Kýpur, svo eitthvað sé nefnt. Þegar þessum tveimur mönnum laust saman gat það aðeins endað á einn veg. Bók nr. 4059 Heb-verð kr. 800 JACK HIGGINS: LUCIANO SENDIFÖR MAFÍUFORINGJANS Sumarið 1943 ráðgerðu Bandamenn inn- rás á Sikiley. Mönnum óaði við því mikla mannfalli sem talið var að sú hernaðarað- gerð hefði í för með sér. Ákveðið var því að reyna að fá ítalska bændur til að rísa upp gegn hernámsliði Þjóðverja, sem öllu héldu í járngreipum. Ljóst var þó, að Mafí- an sikileyska var eini aðilinn, sem gæti fengið fólkið til þessa og var því leitað til alræmds Mafíuforingja og glæpamanns í New York, Lucky Luciano að nafni. Hann var af sikileysku bergi brotinn og átti enn mikil ítök í ættlandi sínu. Bók nr. 4060 Heb-verð kr. 500 34 Bókaskrá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.