Heima er bezt - 02.10.1993, Blaðsíða 20
ÞYDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR
MICHEL DEL CASTILLO:
LJÓS í MYRKRINU
Tanguy er lítill drengur, sem hrekst um í
Evrópu á styrjaldarárunum. Hann kynnist
hræðilegri útlegð, hungri og skelfingum
stríðsins. En svo undrum sætir, getur
hann alls staðar fundið trausta, innilega
vináttu. Tanguy ferðast um tryllta veröld
styrjaldar án nokkurs kala eða haturs.
Hann hefur varðveitt hjartalag barnsins
og trúna á lífið og góðleikann.
Bók nr. 2090 Heb-verð kr. 300
SVERRE MAGELSSEN:
SIGURFÖR
„Sigurför" segir frá fjörmiklum piltum, sem
setja sér háleit markmið, berjast við freist-
ingar og lausung á tímum siðferðilegrar
hnignunar og sýna og sanna að vegur
trúar og heiðarleika er vegur hamingju og
ótrúlegra ævintýra. Þetta er lifandi frá-
sögn um brautryðjandann og æskulýðs-
leiðtogann Georg Williams, sem varð
upphafsmaður KFUM. Atburðirnir gerast í
Englandi á öldinni sem leið, en hreyfingin,
sem ungu mennirnir hrundu af stað,
breiddist fljótlega út. Enn í dag gætir
heillavænlegra áhrifa af starfi þeirra um
víða veröld, einnig hér á íslandi.
Bók nr. 2091 Heb-verð kr. 300
ODDMUND LJONE:
VILLTUR VEGAR
Árni litli er munaðarlaus. Móðir hans er
ekkja, sem á heima í litlu húsi inni í skóg-
inum skammt fyrir utan þorpið. Strákun-
um í skólanum þykir Árni dálítið sveita-
mannslegur og eiga það til að setjast að
honum og geta þá orðið harðleiknir. Út-
gáfuár: 1974
Bók nr. 2092 Heb-verð kr. 300
FINNSK ÆVINTÝRI
Finnar eiga mikinn fjölda ævintýra, en
flest þeirra eru enn sem komið er, lítt
kunn meðal annarra Norðulandaþjóða,
þar sem finnsk tunga er svo fjarskyld mál-
um þeirra. Turid Farbregd, sem lengi hef-
ur verið norskur lektor í Helsingfors, sneri
ævintýrum þessarar bókar á nýnorsku, en
eftir henni er íslenska þýðingin gerð.
Finnski listamaðurinn Erkki Alajarvi hefur
teiknað myndirnar í bókina.
Bók nr. 2093 Heb-verð kr. 300
WYHN & LBNNY -1.
Á MEXICAI11000
ERIC SPEED:
RALLÝ
Á MEXICALI 1000
Wynn og Lonny, sem eru strákar frá
Norður-Karólínu í Bandaríkjunum, hafa
nýlega lokið menntaskóla og eyða nú öll-
um stundum sínum við aðaláhugamál sitt,
bíla og kappakstur. Þeir hefja feril sinn
með því að skrá sig á námskeið í
hraðakstri í Kaliforníu, en margt fer öðru-
vísi en ætlast var til. Á vesturströndinni
lenda þeir í ýmsum hættum og ævintýrum
og flækjast meðal annars í smygl og átök
bófaflokka í Mexíkó.
Bók nr. 2094 Heb-verð kr. 200
ERIC SPEED:
KAPPAR í KAPPAKSTRI
Wynn og Lonny búa sér til Formúlu-V
kappakstursbíl. Þeirtaka þátt í keppnum
á hinum ýmsu kappakstursbrautum Suð-
urríkjanna og vinna sér þar rétt til þess að
keppa í landsmótinu á Road Atlanta í Ge-
orgíu.
Bók nr. 2095 Heb-verð kr. 200
ERIC SPEED:
GT-KAPPAKSTURINN
Wynn og Lonny selja Formúlu-V bílinn
sinn og kaupa í staðinn Datsun 260-Z
sportbíl. Þótt þeir lendi í hættulegum æv-
intýrum og mæti mótlæti, er GT-kapp-
aksturinn alltaf efstur á baugi hjá þeim.
Bók nr. 2096 Heb-verð kr. 200
ERIC SPEED:
BIKARKEPPNIN
Wynn og Lonny hefja keppni í bikar-
keppninni fyrir Super-V bíla... Þeir eiga í
höggi við óþekkta andstæðinga, sem
svífast einskis, en gera þó sitt besta til að
standast sænska ökusnillingnum, Sven
Rosen, snúning. Útgáfuár: 1976
Bók nr. 2097 Heb-verð kr. 200
ERIC SPEED:
HÖRKUKEPPNI
Á LE MANS
Æskudraumur þeirra Wynns og Lonny
verður að veruleika. Þeir aka Chevrolet
Monza í GTX-flokki í frægasta kappakstri
veraldar í Le Mans í Frakklandi. Þó fer
ekki allt sem skyldi... Misindismenn og
hryðjuverk fylgja þeim fram á síðustu
stund.
Bók nr. 2098 Heb-verð kr. 200
ERIC SPEED:
NÆTURRALLÝ
Wynn, Lonny, Inky og Nancy-Rae ráða
sig til kvikmyndafyrirtækis sem staðgengl-
ar við töku kappakstursmyndar. Áður en
þau halda af stað til New York með kvik-
myndahópnum gerir undarlegur ókunnur
maður strákunum tilboð, en þeir neita.
Upp frá þessu taka undarlegir atburðir að
gerast, skemmdarverk og banatilræði
sem ekki fæst botn í fyrr en á síðustu
blaðsíðunum.
Bók nr. 2099 Heb-verð kr. 200
MARRYAT:
FINNUR FRÆKNI
Sagan um Finn frækna og drenginn Vil-
hjálm, sem enn er ungur og óreyndur sjó-
maður. Þeir lentu í ótal ævintýrum sem
segir frá í þessari bók.
Bóknr.2100 Heb-verð kr. 300
F.W. SCHMIDT:
PATTI FER í SIGLINGU
Sagan af Ratta er handa röskum strákum
á öllum aldri. Þyrill er sonur ríkra foreldra,
en velur sér leikfélaga að sínu skapi, án
þess að skeyta um efni þeirra eða stöðu í
þjóðfélaginu... Nú á Þyrill að fara í langt
ferðalag með foreldrum sínum... Leik-
fangið, sem Þyrill hefur mesta ánægju af,
20
Bókaskrá