Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1995, Síða 10

Heima er bezt - 01.01.1995, Síða 10
Ur ættfræðinni Foreldrar Guðfinnu og systkini Foreldrar mínir eignuðust 16 böm. Eitt þeirra dó í æsku, öll hin ólust upp í foreldrahúsum og komust til fullorðinsára. Ég er áttunda í röðinni, segir Guðfinna. Systir mín Ólöf er ári eldri en ég, fædd 19. júlí 1921. Við Ólöf vorum mjög samrýmdar. Sváfum saman í rúmi, enda var oft þröngt á þingi á þessum árum í Syðri- Vallar baðstofunni. Ég var fermd í Gaulverjabæjarkirkju árið 1936. Við vorum fjórar fermingarsysturnar. Þrjár okkar eru enn á lífi. Fermingarstrákarnir voru nokkru fleiri. Séra Gísli Skúlason á Stóra-Hrauni fermdi okkur. Ég ólst upp við venjubundinn búskap eins og þá tíðk- aðist víðast hvar í sveitum landsins á árunum milli 1930- 40. Tún og engjar voru víðast hvar slegin og unnin með frumstæðum tækjum og heyið bundið í bagga og flutt heim á hestum. Langt var að flytja heyið heim af engjun- um á Syðra-Velli og oftast 10 hestar í lest. Ég var fjóra vetur við nám í bamaskóla og unglingsárin líðu heima. Svo fór ég að fara að heiman, fór m.a. til Vestmannaeyja. Þar var elsti bróðir minn, Sigursteinn, búsettur með konu sinni, Guðrúnu Gissurardóttur. I Vestmannaeyjum vann ég hjá Ingibjörgu Tómasdóttur kaupkonu. Hún var þar með smávöruverslun og var mér góður vinnuveitandi. Þar í Vestmannaeyjum kynntist ég manninum mínum, Oddgeiri Guðjónssyni frá Tungu í Fljótshlíð. Hann var þar á vertíð á Tanganum hjá Gunnari Ólafssyni, útgerðar- manni. Ég fór að búa í Tungu 1942. Oddgeir var eini sonurinn á bænum og hann langaði að búa þar. Ég var ekki mikið fyrir búskap í sveit en sló þó til og það gekk bara vel. Vélamar komu til hjálpar á þessum fyrstu búskaparárum okkar og börnin fæddust, dóttir 1945 og sonur 1951. Ég var þá orðin föst í sessi og vildi ala börnin mín upp í sveitinni. Tengdafaðir minn, Guðjón Jónsson, dó árið 1952 en tengamóðir mín, Ingilaug Teitsdóttir, lifði þar til hún varð 105 ára og dvaldi hún síðustu æviárin við góðan aðbúnað í Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi. Hún andaðist 26. júlí 1989. Willysjeppa eignuðumst við árið 1946. Eftir Heklugos- ið mikla árið 1947 var bændafólki í Fljótshlíð mikill vandi á höndum. Svartur Hekluvikurinn lá yfir landinu er vorið gekk í garð. Nú voru góð ráð dýr. Menn vissu að annaðhvort var að duga eða drepast! 6 Heima er best

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.