Heima er bezt - 01.01.1995, Side 17
Irá upphafi
hafa íslcnd-
ingar verið
forvitnir um framtíðina.
Það hafa ávallt verið til
einstaklingar sem séð
hafa inn í ókomna tíð
og eftir þeirra orðum
hefur almenningur beð-
ið við hver áramót. Til
þess að halda þcssum
forna sið sncri Heima
er bezt sér til liins
margreynda miðils,
Þórunnar Maggýjar
Guðmundsdóttur, og
fór þess á leit við hana
að hún skyggndist eitt-
hvað inn á nýja árið og
næstu líð fyrir lesendur
okkar.
Þórunn Maggý tók
erindi okkar vel og
kvaðst tilbúin að reyna
hvað hún gæti.
„En þar sem ég hefi
aldrei reynt við þennan
þátt í samskiptum mín-
um við liuldar væltir veit
ég ekkert um hvernig til
tekst en vona bara að
allt gangi vel og ykkur
sem þetta kunna að lesa
bið ég þess að þið takið
viljann fyrir verkið,“
segir hún.
Það væri að bera í
bakkafullan lækinn að
fara að kynna miðilinn
Þórunni Maggý, svo
margir hafa notið hennar
hæfileika í gegnum árin.
Fyrir lesendur er rétt að
minna á viðtal við hana
Horft til
framtiðar
Þórunn Maggý Guðmundsdóttir, miðill,
skyggnist á bak við tjöld komandi árs
og segir frá þeim straumum sem henni
þykir líklegt að muni liggja um það.
Skráð af Ingvari Bjömssyni
sem birtist í októberhefti
Heima er bezt 1992.
Spjallið sem hér fer á
eftir var ritað upp eftir
samtali við Þórunni
föstudaginn 6. janúar
1995 og við þann tíma
miðast allar lýsingar sem
hér koma fram.
Svör Maggýjar eru að
mestu leyti byggð á
spurningalista sem hún
hafði fengið í hendur frá
okkur.
Þó að þessi spá sé að
mestu og fyrst og fremst
fyrir árið 1995, má segja
að hún nái að mörgu
leyti allt til ársins 2002,
því að margt sem byrjar í
ár nær ekki endanlegum
árangri fyrr.
Landbúnaður
Eg ætla að byrja þessa
umræðu á stöðu íslensk
landbúnaðar á nýja árinu
og næstu framtíð hans.
Hvers vegna ég byrja
hér veit ég ekki gerla, því
ég hef lítil tengsl haft við
þennan undirstöðuatvinnu-
veg okkar enda alin upp
við sjó og borgarlíf.
Um langan tíma hef ég
skynjað miklar breytingar
í nánd á rekstrarformi
hins hefðbundna landbún-
aðar hér. Þessi skynjun er
ekki ný, hún er búin að
fylgja mér allt nýliðið ár
og gerir það enn.
A ferðalögum mínum
Heima er best 13