Heima er bezt - 01.01.1995, Side 23
við hverasvæðið og hefur það verið
notað sem hesthús, en var notað áður
fyrr af Arnesingum sem sæluhús.
I gamla ferðafélagshúsinu gista
gangnamenn þegar þeir eru að Ieita
afréttina í kring. Ég þekki marga
gangnamenn á Auðkúluheiði sem
þarna hafa áð og öllum ber saman
um að Hveravellir séu friðsæll og
ævintýralegur staður. Margar minn-
ingar eru frá Hveravöllum og margt
skemmtilegt hefur gerst þar.
Sjálf kynntist ég Hveravöllum í
gegnum föður minn, Halldór Ey-
þórsson, sem var vörður þar nokkur
sumur ásamt Einari Gíslasyni frá
Kjarnholtum, en þeir unnu við
vörslu fyrir sauðfjárveikivarnir.
Þessi varsla er enn viðhöfð. Faðir
minn á margar skemmtilegar minn-
ingar frá dvölinni á Hveravöllum.
Þar kynntist liann mörgu góðu fólki
sem átti leið um. Þeir félagarnir
Halldór og Einar nýttu sér auðlindir
staðarins, létu þreytuna renna úr sér í
lauginni góðu og suðu mat í hverun-
um. Fyrst þegar þeim félögum datt í
hug að nýta hver til suðu, settu þeir
lambakjöt í grisjupoka og stungu í
bullandi hver. Eftir langa mæðu þeg-
ar þeir félagar voru orðnir svangir
fóru þeir að vitja matarins en þá var
ekkert eftir í pokanum nema nokkur
bein. Eftir það pössuðu þeir betur
uppá tímann. Það tekur ekki langan
tíma að sjóða kjötið á þennan máta.
Það var skemmtilegt að kynnast
Hveravöllum á þennan hátt. Að
leggja á hest og spretta úr spori á
þessum slóðum var ógleymanlegt.
Verðirnir riðu vestur í fjöll og austur
að Blöndu. Fóru þeir meðfram girð-
ingu sauðfjárveikivarna til að athuga
hvort einhver sunnlensk ærin væri að
leita norður eða öfugt. Höfðu þeir
með sér nokkra hesta til að brúka og
svo hundana sína sem voru ómiss-
andi í vörslunni.
Verðirnir bjuggu í litlum en hlýleg-
um skúr sem ber nafnið Ysta-Nöf.
Hann lætur ekki mikið yfir sér, en
þangað var óskaplega gott að koma.
Þegar haustaði að og dimmt var á
kvöldin, breiddist einhver dulúð yfir
Verðirnir Einar og Halldór við Ystu-Nöf.
staðinn. Það lá við að maður byggist
við að vættir úr gömlu ævintýrunum
okkar birtust og bönkuðu upp á. Ég
hefði ekki orðið hissa, þó að ég hefði
rekist á huldufólk, álfa eða tíva á
þessum stað.
í góðu veðri er útsýnið mjög fall-
egt. Það eru líka margir staðir sem
áhugavert er að skoða í kringum
Hveravelli. Stutt er í Kerlingafjöll,
Þjófadali og einnig út að Seiðisá,
sem er mjög skemmtileg silungsá.
Þar veiðast vænar bleikjur. A síðasta
sumri var þar mokveiði, frétti ég. En
í rauninni finnst mér svo ótal margt
áhugavert ef farið er yfir Kjöl. Má
þar til dæmis nefna Beinahól, þar
sem Reynistaðabræður urðu úti
haustið 1780. Margar sögur eru
tengdar Kili sem svo sannarlega lifa
í þjóðarsál okkar.
Allir þekkja söguna um Fjalla-Ey-
vind og Höllu, en sagt er að þau hafi
búið um tíma á Hveravöllum. Stutt
frá Eyvindarhver er rúst, sem heitir
Eyvindarkofi, og þar er talið að úti-
legufólkið hafi haft aðsetur. Það að
setjast á þessar rústir og hugsa til
þessa óhamingjusama fólks, getur
flutt mann á augabragði aftur í for-
tíðina. Eflaust hefur vistin verið góð
að sumri til, en að hugsa um þau á
þessum stað í blindhríð og frosti er
heldur kaldranaleg tilhugsun.
I suðri frá sæluhúsinu er svo Ey-
vindarrétt. Þar eru hleðslur í sprungu
Heima er best 19