Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1998, Side 14

Heima er bezt - 01.09.1998, Side 14
Sæll vertu hór. Er hóbóndi heima? Eg vil kyssa á snös þína, ef þú græðir vör mína. Eftir þennan formála, kyssti bamið á krókinn á hónum. Það stóðst venjulega á endum, að þegar ég var búin að mala, sauð í pottinum, og þá var komið að því að kasta út á. Við það verk notaði ég grautarhríslu, smávönd úr hrísi. Ég sáði út með vinstri hnefa og sló útákastið um leið út með hríslunni, sem ég bar í hægri hendi. Grautarhrísla var líka not- uð, þegar hrært var í lummur. Ég Magáll af vœnni kind. færði soðbrauðið (soðkökur) upp úr grautnum, þegar hann var soðinn, og gekk frá eldinum, svo hann héldi lífi þar til húsmóðirin kom heim til kvöldverkanna. Stundum átti ég líka að baka kökur á glóð, en var ekki handlagin við það. Ég gat hnoðað deig- ið og flatt út en var verri við að baka kökurnar á glóðinni. Fór ég þá til Guðrúnar og bað hana hjálpar eða hina ná- grannakonuna. Guðrún sagði mér alltaf til um það, þegar hæfilegt var að byrja grautarsuðuna. Þessar blessuðu konur voru fúsar til hjálpar. Þær slógu sundur glóðina fyrir baksturinn svo hún væri sem sléttust og með jöfnu lífi. Til verkaléttis höfðu þær áhald, sem þær kölluðu viftu. Það var kringlótt tréspjald með skafti. Þær viftuðu Bítið að taka innanúr. að glóðinni til að glæða hana og viftuna notuðu þær, þegar þær sneru kökunni við á glóðinni, lögðu kökuna á hana í meðförun- um. Eitt eldaverkið enn, sem ég átti að annast um, var að brenna kaffi, er þörf krafði. Eleimildarmaður af Horn- ströndum fæddur 1890 segir frá sláturverkum. Þórður Tómasson skráði árið 1968: Kind, sem slátra átti, var vana- lega lögð niður á hurð á blóðvell- inum og blóðtrogið haft framan við hana. Slátrarinn setti alltaf þumalfingur hægri handar upp í kind, sem slátrað var, þegar hann var búinn að leggja hana niður, og hélt utan um neðri skoltinn. Kind, sem jarmaði, þegar búið var að leggja hana niður á blóð- velli, bað um líf og var veitt það. Hún nefndist eftir það ýmist Ófeig eða Lífgjöf og var fyrra nafnið algengara. Slátrari sló hausnum þrisvar við strjúpann, jafnskjótt og hann var búinn að skera hann frá og tautaði eitthvað um leið. Ekki man ég, hvað hann sagði. Um að gera var að slátra með útfalli sjávar. Blóðrennsli var þá meira. Skinn áttu að verða endingarbetri til slits, ef slátrað var með vaxandi tungli. Slátrari brá hnífsblaðinu milli tanna sér, milli nota við slátrun. Maður, sem Kristján hét Jóhannes- son, var að leita að hnífnum við slátrun og varð ekki ágengt, þar til hann sagði: „Hver andskotinn hefur orðið af hnífnum?“ Þá datt hnífurinn fram úr honum. Oft höfðu innri hurðina. Gat ég svo lokað henni tryggilega, svo börnin kæmust ekki út óséð. Þegar leið á daginn átti ég að fara að annast um eldastörfin, hnoða soðbrauð handa engjafólkinu til að hafa með sér á engjarnar og sjóða bankabyggsgrautinn handa því í kvöldmat. Ég varð líka að mala útákastið. Lítil kvörn var inni í eldhúsinu. Hús- móðirin setti hæfilega mikið bankabygg handa mér að mala í litla tréskál. Soðbrauðið var soðið í grautnum, og varð ég að hnoða það svo fast, að það færi ekki út í graut- inn við suðuna. Eldinn tók ég upp, áður en ég fór að mala; tók af honum felhelluna og kom í hann lífi. Taðstálið var inni í eldhúsinu, og ífaman við skánina var afrak og hrossatað, sem logaði fljótt upp og gott var að hafa með. Ég setti pottinn yfir eldinn og í hann grábland- ið í grautinn. Potturinn hékk á potthöldu, sem var fest á krókinn á hónum, en hlóðasteinar voru engir. Þegar ég var búin að ganga frá þessu, sópaði ég öskunni utan að glóðinni, svo hitann legði vel upp undir pottinn. Hór var víðast í eldhúsum, þar sem ég þekkti til á þeim árum. Stundum ávarpaði barn með áblástur eða skeinu á vör, hóinn með þessu stefi: 330 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.