Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 17

Heima er bezt - 01.09.1998, Blaðsíða 17
Ég ræð mig á „transportbát" Veturinn 1942-43 hafði breski sjó- herinn allmarga íslenska vélbáta í sinni þjónustu, einnig nokkur skip, sem kölluð voru línuveiðarar og var svo öll stríðsárin, allt frá þeim degi er herin steig hér á land. Fleytur þessar önnuðust margs konar flutn- inga fyrir her og flota Breta. Stærri bátarnir voru einkum í ferðum kring- um landið og í flutningum með menn og alls kyns vörur á þá staði þar sem hernámsliðið hafði aðsetur en smærri bátarnir í því sem kallast gat snatt og öðru því um líku. Þessi vinna var kölluð „transport,“ og var eftirsótt af eigendum vélbáta og fengu færri en vildu. Sá hét Oddur, sem annaðist samn- inga við Breta fyrir hönd íslensku vélbátaeigendanna og átti að sögn, nokkra báta sjálfur eða hlut í þeim. Ekki verður sagt um þá báta sem voru í þjónustu Breta í Hvalfirði þennan vetur, en þeir voru allmargir, að þeir væru allir sérstök úrvalsskip, enda tæpast þörf jafngóðra báta og á vertíð við fiskiveiðar eða í strand- ferðirnar, þar sem hér var um að ræða flutning á mönnum og vörum innfjarðar, auk ferða til Reykjavíkur hálfsmánaðarlega eða þar um bil. Einhverjir bátanna hurfu frá þess- ari vinnu eftir áramót, sumir líklega á vertíð. í byrjun nóvember 1942 vantaði kokk á einn þessara „transportbáta.“ Ég var þá á „lausum kili“ hvað vinnu snerti, nýlega kominn frá vinnu í Hvítanesi í Hvalfirði og vann hér og þar, smá tíma i einu, meðal annars Fyrri hluti við Reykjavíkurhöfn. Starfið var auglýst og ég var einn í hópi um- sækjenda. Ég hafði heppnina með mér og fékk vinnuna. Báturinn hét Sævar og hafði áður verið á Siglufirði en var nú „gerður út“ frá Sandgerði. Sævar var 29 smálestir og eigandinn hefur sjálfsagt prísað sig sælan að hafa þessa vinnu fyrir hann. Eigandi bátsins og sá sem endan- lega réði mig til starfsins, hét Ólafur, viðfelldinn, alvörugefinn maður og ekki margorður. Auk þess að sjá um mat fyrir áhöfnina, átti ég að skilja þau fyrir- mæli sem okkur bærust ffá Bretun- um, þar eð skipsfélagar mínir hvorki töluðu né skildu þeirra mál. Þá skyldi ég og hjálpa til á dekkinu svo sem með þyrfti. Við vorum þrír á bátnum, Guð- mundur Bæringsson formaður, Sæ- mundur Helgason vélamaður (það hét að vera mótoristi), og svo ég. Ekki var Sævar þesslegur að hægt væri að senda hann á vertíð í því ástandi sem hann var. Auk þess að vera ljótur og gangtregur, vantaði al- veg á hann frammastrið. Heyrði ég því fleygt að báturinn væri á undan- þágu frá skipaskoðuninni og félag- arnir í bátaflotanum sögðu hann vera ósjófæran, þó hann flyti ennþá. Ekki voru þetta uppörvandi upp- lýsingar um farkostinn í byrjun ráðn- ingartímans, en ég kærði mig kollótt- an. Það var svo mörgu logið. Síðar, þegar ég var kominn um borð í bátinn og fór að átta mig á hlutunum, skammaðist ég mín alltaf þegar ég sá þokkalegu bátana, eins og til dæmis Jón Finnsson, Dags- brúnu og íslending. Það voru snyrti- legir og fallegir bátar, þó þeir væru ekki stórir. En hjá Bretunum var Sævar alltaf vinsæll. Kannski hefur það verið vegna þess hve nafn bátsins var þeim þjált á tungu. Matur og matarvenjur Sjálfsagt fannst mér ég vera nokk- uð vanbúinn því að taka að mér mat- reiðslu þegar ég réði mig til starfa á Sævari. Félagar mínir á kvöldrúntin- um í miðbæ Reykjavíkur, voru vissir. „Hann verður ekki lengi í þessu. Kannski einn túr, í mesta lagi tvo,“ sögðu þeir. Ég ákvað þó strax að gera mitt besta og var ófús að láta hrakspár þeirra rætast. Ég gerði mér ljóst, að þegar maður er búinn að ráða sig til einhverra starfa, þá verður maður að standa sig, þótt á hið besta verði ekki ævinlega kosið. Að vísu var ég ekki alls óvanur að vinna í eldhúsi, hafði unnið við slíkt nokkurn tíma í Hvíta- nesi sumarið 1942, og auk þess verið aðstoðarmatsveinn á togaranum Jóni Ólafssyni á fyrstu mánuðum ársins 1942. Ég reyndi að afla mér upplýsinga hjá verðandi skipsfélögum mínum um hvernig forveri minn hefði hagað sínum vinnubrögðum, ef ég gæti af því lært, en komst fljótt að því að þeir vildu ekkert um hann tala. Hvers Heima er bezt 333

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.