Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1998, Síða 32

Heima er bezt - 01.09.1998, Síða 32
Ingvar Pálma- son, f 26.7. 1873, á Litla- Búrfelli í Ásum. D. 23.7. 1947. um oft síðan. Meðal annars, sem draummaður sagði honum í þetta sinn, var eftirfarandi: „Nú er skipið hennar móður þinnar að ganga niður.“ I svefninum lagði Ingvar enga sér- staka merkingu í orð draummanns- ins. En þegar hann vaknaði, stóðu þau honum svo glöggt í huga, að hann leit inn í herbergi móður sinnar og spurði um líðan hennar. Hún var sögð óbreytt. Gekk hann þá niður af svefnloft- inu, en að vörmu spori var komið á hæla honum og honum tjáð að móðir hans væri dáin. Eftir þetta hélt draummaðurinn áfram að birtast og Ingvar að veita orðum hans meiri athygli. Samræður draummannsins við Ingvar voru einkum um dagleg störf, aðallega þeim, sem sneru að sjósókn, veðri og fiskgengd. Brást Ingvari aldrei það sem draummaðurinn sagði fyrir um þau atriði, enda gekk útgerðin vel og farsællega. Draumvitranirnar hurfu snögglega haustið 1898 og ekki tilefnislaust. Liðið var nokkuð fram í september- mánuð og nótt orðin dimm. Róðrar voru aðeins sóttir á grunnmið og róið í myrkri, svo komið væri í birtingu á miðin. Svartaþoka var eitt kvöldið og þótti tvísýnt um hvort róið yrði um nóttina. Þannig var ástatt þegar geng- ið var til náða. Um nóttina vitraðist draummaður- inn Ingvari. Taka þeir tal saman að venju, meðal annars um þokuna og róðrarútlitið. Draummaður kvað þok- una ekki þurfa að hamla róðri, hún nái ekki Iengra til hafs en út undir Rauðubjörgin. Þar sé nægur fiskur á miði, sem hann tiltók. Ingvar vaknaði á venjulegum tíma, klæðist og Iítur til veðurs. Þokan var hin sama. Vekur hann nú háseta sína og segist ætla að róa, þótt veðrið væri óbreytt. Þeir mölduðu í móinn og töldu tilgangslaust að róa vegna þokunnar. Ingvar sagði að þokan myndi aðeins vera fjarðarfylla og nógur fiskur væri undir Rauðubjörg- um. Hlaut formaður að ráða. Það rættist sem draummaður hafði sagt. Út við Rauðubjörg var þoku- laust og gnægð fiskjar á hinu tilvís- aða miði. Hásetarnir undruðust mjög hve nákvæmlega fyrirsögn for- mannsins hafði rætst og spurðu hann um það hvemig hann hefði getað vitað þetta svo glögglega. Urðu Ingvari þá á þau mistök að segja þeim frá draummanninum. Upp frá því vitraðist hann honum aldrei. Eitt af því, sem draummaðurinn færði oft í tal við Ingvar var það, hve hættuleg sigling væri úti fyrir Norð- fjarðarnípu, enda þótti þar veðra- samt. Ottaðist Ingvar að þar mundi hann farast eða komast í háska. 011 hans sjóskóknartíð leið þó án þess að honum bærist á, hvorki þar né annars staðar. En árið 1904, stuttu eftir að Ingvar hafði látið af formennsku á róðrar- báti, varð það slys að þriggja manni fari, sem hann átti og gerði út, hvolfdi á siglingu einmitt á þessum tiltekna stað. Runólfur Guðmunds- son formaður drukknaði en hásetarn- ir tveir björguðust. Taldi Ingvar að aðvörun draummannsins hefði varðað þetta slys, enda útgerðin hans. Heimildir: Viðtal við Ingvar Pálmason, 28. sept. 1933, skráð af Halldóri Stefánssyni, birt í Eimreiðinni LV. árg. 2. hefti, apríl-júní 1949. Kvatt hinstu kveðju Haustið 1949 var áhöfn m/s Helga Helgasonar, VE 343, að búast til heimferðar frá Raufarhöfn, eftir sumarsíldveiðarnar. Arnþór Jóhanns- son skipstjóri, kom upp í verkstjóra- skúr til þess að kveðja. I spjalli við Guðmund Eiríksson verkstjóra sagðist hann ekki búast við að koma oftar norður til síld- veiða. Guðmundur spurði hvort hann væri að hætta með skipið, en hann sagði það ekki vera og bætti við: „Allan minn skipstjóraferil hefur amma mín heitin, birst mér í draumi og vísað mér á afla. Sambandið er nú ArnþórJó- hannsson, f. 12.1. 1907, á Selá í Eyjaftrði. orðið svo náið að ég á erfitt með að greina á milli draums og veruleika. Ég geri því ráð fyrir að ég sé að hverfa alfarinn til hennar.“ Það var svo 7. janúar 1950 að Arn- þór fór á vit ömmu sinnar. Arnþór og Gísli Jónasson, stýri- maður hans, voru Siglfirðingar. Arn- þór var heima um jólin og áramótin, en Gísli leysti af stýrimanninn á m/s Helga, VE 333. í byrjun janúar héldu þeir suður til skips síns. Þeir fóru 6. janúar frá Reykjavík áleiðis til Vest- mannaeyja með m/s Helga VE 333, en hann fórst í fárviðri við Faxasker, 7. janúar 1950, og með honum sjö manna áhöfn og þrír farþegar. Þetta hörmulega slys olli þjóðarsorg og enn vekur það trega þeim, sem muna þetta sorglega slys. Ungri stúlku frá Vestmannaeyjum hafði verið lofað fari með Helga og var farangur hennar kominn um borð, en hún hætti við að fara. Hann- es Hansson frá Hvoli, sóttist eftir fari, en komst ekki með. Gísli Jónasson og Óskar Magnús- son komust upp á Faxasker, en af- 348 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.