Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1998, Síða 37

Heima er bezt - 01.09.1998, Síða 37
r sta brosti. Hún var nokkuð ánægð að heyra það. Þó að hún væri að hugga frænku sína þá var hún dálítið hrædd um að naðran hún Kristbjörg, hefði rétt fyrir sér. Það var ekki alveg víst að hún Sigríður prestmaddama yrði hrifin af Heiðu. En það var nægur tími til að hugsa um það. Nú var um að gera að porra stúlkuna upp. Bannsett eitur- tönnin hún Kristbjörg átti ekkert með að særa hana svona. Ásta kyssti Heiðu á vangann. - Svona telpa mín. Þú ert vel af guði gerð og við erum öll stolt af þér. Þú skalt bera höfuðið hátt og við lát- um ekki fleiri blaðurskjóður spilla fyrir okkur. Heiða, sem nú var orðin léttari í sinni, kyssti frænku sína á móti. - Ég er farin að hlakka til sunnu- dagsins, þá fær litla prinsessan nafn. - Ég hlakka líka til, ég skal hvísla því að þér og svo förum við að sofa. Ásta beygði sig að Heiðu og hvísl- aði. Stúlkan ljómaði. - Þakka þér fyrir, nú líður mér vel. Ég held ég hafi aldrei grátið svona mikið. Heiða fór að hátta en Ásta sat kyrr og hugsaði. Hún vissi ekki hvað framtíðin bæri í skauti sínu, en hún Níundi hluti var ákveðin í að hjálpa þessari frænku sinni hvað sem á dyndi. Þess bað hún guð í bænunum sínum. Og hún gerði meira, hún bað fyrir öllum lausaleiksbömum í heiminum og bað þess að heimurinn breyttist. 9. Kafli. Sunnudagurinn rann upp, bjartur og fagur. Enn var þessi blessuð blíða og góður heyþurrkur. Á bæjunum í Árdalshreppi vann fólk frá morgni til kvölds. Það var slegið, rifjað, rakað saman, sætt og svo sátunum komið heim í hlöður og tóftir. Ef fram héldi sem horfði þá yrði þetta metsumar hvað heyskap varðaði og afkomu alla. Bændur og búalið var því í sínu besta formi. Allir kepptust við, með- vitaðir um hve nauðsynlegt var að halda á spöðunum á meðan veð- urguðirnir voru bændum svo hlið- hollir. Og þó að allt hefði gengið vel, þá vissu Iíka gamlir og grónir bænd- ur, að einn daginn yrði þurrkurinn úti og ef til vill tæki við þreytandi rign- ingakafli. Það var guðsþakkarvert fannst fólkinu í sveitinni, hver tugga sem komst í hús. Það var því ekki mikið um bæjarferðir eða félagslíf þessa dagana í sveitinni. Þó bar við að Kristbjörg á Ytra-Hóli vatt sér á milli bæja sem snöggvast, en fáir voru til þess að hafa ofan af fyrir henni. Þó var svo komið að öll sveitin og fleiri en það, vissu að nú var búið að panta nýjan Willisjeppa á Ytra-Hóls heim- ilið. Allir vissu líka að Geirmundur var í þann veginn að fara í ökunám hjá Karli á mjólkurbílnum, en hann hafði, einn manna þar um slóðir, rétt- indi til að kenna á bíl. En þó að fátt væri um mannaferðir og mikið að gera, þá var ýmislegt sem fólk vissi. Allir vissu að tengda- dóttirin tilvonandi í Árdal, hafði þurft að fara skyndilega suður. Það fór tvennum sögum af því hvers vegna, en Páll virtist í það minnsta vera eins og hann átti að sér, glaðlyndur og vænn piltur. Það fór heldur ekki framhjá neinum að Andrés í Mjóadal gerði sér eins margar ferðir og hann gat út að Fossi. Líklega var hann far- inn að líta elstu heimasætuna hýru auga, þó að hún væri vart af barns- aldri. Sumum fannst börnin í Mjóa- dal fá náttúruna helst til of snemma, en enginn vissi þó hvað var til í Heima er bezt 353

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.