Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1999, Side 8

Heima er bezt - 01.07.1999, Side 8
læti hjá frænda mínum og þar var ég þegar kistulagn- ingin fór fram fimm dögum síðar. Sumarið eftir fór ég síðan aftur að Hólmakoti og var þar næstu þrjú sumur en fékk ekki að fara fimmta sumarið því þá þurfti ég fara að vinna í fiski í Keflavík. Síðan fór ég í öllum sumarfríum mínum í Hólmakot þar til ég var um tvítugt að ég flutti í Ölfusið og hef ég alltaf litið á þessu einstöku hjón Grétu og Guð- mund, sem fósturforeldra mína. Hún er nýlega látin en Guðmundur er á lífi. Faðir minn var lengst af verkamaður, vann við ýmis störf til sjós og lands. Hann starfaði einnig við skósmíðar en þegar herinn kom fór hann að vinna hjá honum við smíðar og var að vinna við smíð- ar upp í Mosfellssveit þegar hann lést. í frystihús 12 ára gamall Ég lauk barnaskólaprófi 12 ára gamall og fór þá að vinna og var búinn að vera eina vertíð í frystihúsi þegar ég fermdist. En ég sá launaumslagið mitt í fýrsta sinn sjálfur þegar ég var 18 ára gamall. Þetta fór allt til heimilis- ins og fjölskyldunnar. Mamma vann alltaf líka í frystihúsi öll þessi ár. Það var auðvitað sárast að fá ekki að læra, því ég þráði það, en það var vonlaust dæmi. Við urðum að vinna úr föður- missinum sjálf, það var ekkert til sem hét áfallahjálp í þá daga en maður fékk allsstaðar gott viðmót hjá fólkinu í kring. Einu atviki man ég sérstaklega eftir hvað þetta varð- ar. Mjólkursala hér í Keflavík var á ýmsum stöðum. Mjólkin kom með bílum utan úr Gerða- og Miðnes- hreppi og var síðan seld í hús. Við keyptum mjólk hjá Gunnari Árnasyni. Hann var ekkjumaður og var ráðs- kona hjá honum sem hét Guðný. Einu sinni þegar ég kom að fá mjólk nokkru eftir að pabbi lést, þá segir Guðný við mig þegar ég kem inn: „Heyrðu Leifur minn, hann Gunnar vill tala við þig." Hjónin í Hólmakoti, Guðmundur Ósk- ar Helgason og Gréta Gunnhildur Sigurðardóttir. Með þeim er Sigrún dóttir þeirra. Hólmakot í Hraunhreppi, Mýra- sýslu. Þegar ég kom inn þá heilsaði Gunnar mér og sagði: „Þú skalt stinga peningnum aftur í vasann og skilaðu því til mömmu þinnar að ég ætli að borga mjólk- ina fyrir ykkur í vetur." Svona var viðmótið allsstaðar. Hér í Keflavík fór fram söfnun fýrir okkur svo mamma gæti haldið húsinu. Oft sníkti maður líka í soðið og varð þá stundum var við, ef við komum margir saman í aðgerðarhúsið, að hinir strákarnir voru reknir út en ég fékk ýsu til að fara með heim í soð- ið. Samhugurinn var mikill hérna á þessum árum meðal nágranna og bæjarbúa. Ég vann lengi í hraðfrystihúsinu Jökli og öðrum frystihúsum hér í Keflavík, við alls konar fiskvinnslu og í bæjarvinnunni svona eftir því sem til féll. Þúsund vatna gatan Um það leyti sem Guðleifur var að alast upp var Keflavík önnur og ólík þeirri sem við þekkjum í dag. Byggðin var lítil og samþjöppuð og götur var vart hægt að kalla annað er troðninga á milli lágreistra húsa. Þá varysta gatan í bœnum Tjarnargata og svo Suðurgata en efsta gatan var Kirkjuvegur. „Ofaníburður í götumar var að mestu bmni sem sótt- ur var suður á Reykjanes. Kosturinn við þennan ofaní- 248 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.