Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1999, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.07.1999, Blaðsíða 24
ANGANTÝR HJÖRVAR HJÁLMARSSON: Lagt út á námsbrautina Seinni hluti Skýringar: Þar sem nokkuð er um liðið síðan nœsti þáttur á undan þessum birtist þykir rétt að gera nokkra greinfyrir fáeinum atriðum í eftirfarandi texta: 1) Kaflinn hér næstur á eftir, um vísnakeppni við Menntaskólann í Reykjavík, gerist á fyrsta vetri höfundar í Kennaraskólanum, 1954-55. Hjónin, sem áttu heima við Vitastíg og höfundur bjó hjá þennan vetur, voru frænka hans, Elínborg Lárus- dóttir, rithöfundur og Ingimar Jónsson, skólastjóri. 2) Seinni hluti þáttarins, um kennsluna í Lindargötuskólanum, gerist á síðasta námsvetri höfundar, 1956-57. Eiginkona hans, sem kemurfram undir gœhinafninu Hilla, hét réttu nafni Torfhildur Jósefsdóttir og Bjarney sem tók að sér dœtur þeirra, var móðir Torfhildar, Bjarn- ey Sigurðardóttir, húsfreyja í Torfu- felli í Eyjafirði. egar ég byrjaði í Kennaraskólan- um, gat ég aldrei gengið al- veg uppréttur. Það var því almennt litið á mig sem gamlan mann og með nokkurri vorkun- semi. Skólasystkini mín voru mér mjög velviljuð með einni smó undan- tekningu. Það var sonur Helga Hjörvars sem aldrei gat fyrirgefið mér að ég skyldi heita Hjörvar. Ég gat heldur lítið við því gert, að foreldrar mínir létu skíra mig þessu nafni, en í framhaldi af því, hvemig Úlfur tók þessu, lét ég alla í skólanum kalla mig Angantý, en hann var ekki dnægður samt. Hann reyndi d ýmsan hdtt að gera lítið úr mér, en ég tók því ósköp ró- lega lengi vel. Einu sinni só hann bæði nöfnin mín skrifuð d einhverja bók og þó staldraði hann við, horfði d bókina og sagði svo upp úr eins manns hljóði: „Jd, hann heitir Hjörvar þetta helvíti." Það hefur sennilega verið skömmu eftir úramótin, sem tveir nemendur úr eldri bekkjum komu til mín og spurðu, hvort ég kynni ekki margar vísur. Ég svaraði því til, að það væri ddlítið afstætt, hvað menn kölluðu margar vísur, en ég kynni dúlítið af vísum. Þd sögðu þeir mér, að það ætti að efna til keppni í útvarpinu milli Kennaraskólans og Mennta- skóla Reykjavíkur um það hver flokkurinn kynni fleiri vísur. Það úttu fjórir að vera í hvoru liði. Ég vildi fá vitneskju um hvemig þessari keppni ætti að vera háttað. Þá sögðu þeir að þetta ættu að vera skanderingar, þannig að við áttum að koma með vísu, sem byrjaði á sama staf og vísa hinna endaði á og ef við kynnum enga vísu, sem byrjaði á rétt- um staf, yrðum við að yrkja hana í hvelli. Ég var þessu vanur frá æsku minni og féllst á að vera með í liði Kennaraskólans. Seinna kom í ljós, að það var alls ekki þetta, sem við áttum að gera og það skapaði okkur mikla erfiðleika, þegar á hólminn kom. Ég veit ekki enn hvort þetta var misskilningur úr félögum mínum, eða þessu var breytt eftir að upphaflega var farið að tala um það og við vomm ekki látnir vita. Menntskælingar fullyrtu, að það hefði verið ákveðið strax í upphafi, að við ættum að botna fýrriparta frá hinu liðinu. Þessi mis- skilningur kom í ljós, þegar allir vom mættir í útvarpssal til upptöku. Þá var hart deilt um það hvora að- ferðina ætti að hafa og loks urðu fé- lagar mínir að láta undan, annars hefði enginn þáttur orðið til og það var búið að auglýsa, að honum yrði útvarpað daginn eftir. Félagar mínir stóðu á því fastar en fótunum, að það hefði verið samið um skander- ingar, en svo hefðu menntaskóla- menn breytt til um fýrirkomulag til Angantýr Hjörvar Hjálmarsson. 264 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.