Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1999, Qupperneq 33

Heima er bezt - 01.07.1999, Qupperneq 33
að var sumarið 1939 í júlí- mónuði. Þennan dag var glampandi sól og hiti. Ég var að þvo þvottinn minn i þvottahúsinu. Mér varð hugsað til Hrefnu vin- konu minnar, sem nú var í sumar- dvöl austur í sveit. Sú var nú ekki að hírast inni í svona góðu veðri, eins og ég. Slíkt núttúrubam. Ann- að hvort var hún nú að svamla í sundlauginni eða á hlaupum upp um holt og út um móa. „Elsku Hrefna mín," hugsaði ég. Hún er svo glöð, óspillt og ung. Við emm reyndar jafngamlar, en ég giftist ótjún úra og eignaðist barn og var þar með bundin við hjúskap- arskyldurnar. En Hrefna hélt úfram við númið og hafði nú lokið prófi. Ég gat sannarlega unnt henni að njóta frjúlsræðisins. Margur pilturinn hafði reynt að binda hana hjúskaparböndum, en árangurslaust. „Ég verð ekki ást- fangin," sagði hún. Og nú lék hún sér úti í sólskininu, en ég nuddaði óhreinar skyrtur eiginmanns míns, á þvottabretti. Ég heyrði ekki þegar barið var að dyrum, en er ég leit upp, stóð móðir Hrefnu við hlið mér. „Ég er komin til að biðja þig bón- ar," sagði hún. „Það er vegna Hrefnu. Ég fór austur í gær. Hrefna verður að koma strax heim. Það þolir enga bið. Þú getur fengið hana til þess. Á mig vill hún ekki hlusta og mér vill hún ekkert segja. Hún Smásaga má ekki vera þarna einum degi lengur. Ég treysti þér til að hjálpa mér." Vesalings konan var föl í framan og varir hennar titruðu. „Hvað hefur komið fyrir?" spurði ég undrandi. Hún svaraði ekki en greip hönd mína. „Viltu fara austur nú í dag?" bað hún. Sú Hrefna, sem tók á móti mér við áætlunarbílinn, var öll önnur en hin snotra, hversdagslega vinkona mín, er ég hafði kvatt fyrir sex vik- um. Þessi stúlka var hvorki meira né minna en forkunnar falleg. Hár hennar meira og ljósara en áður. Hörundið bjartara og svipur augn- anna mér ókunnur. Hún var í hvít- um kjól með breiðu, rauðu mittis- bandi og vöxtur hennar og hreyf- ingar með yndisleik, sem ég hafði ekki séð áður. Það geislaði af henni, líkt og hún væri að keppast við sól- ina að skína. „Hvað hefur komið fyrir þig?" spurði ég. Hún heyrði undrunina í rödd minni og skellihló. „Manneskjan er ástfangin," svar- aði hún og lagði höfuðið á öxl mína. Þegar við vorum lagstar til hvíld- ar í tjaldinu hennar um kvöldið, fékk ég að heyra söguna. Hún var ástfangin og það var svo unaðslegt. Aldrei hafði hún trúað að ástin væri svona stórkostleg. Og hann var svo fallegur, eins og ungur guð. Þetta hafði byrjað daginn eftir að hún kom austur. Hún var að synda í lauginni. Hann var þar einnig. Um leið og hún steig upp úr laug- inni rétti hann henni höndina til hjálpar. Hún leit á manninn. Þá fór um hana undarlega sterkur straum- ur, líkt og rafmagn, og þegar hún áttaði sig, stóð hún á laugarbakk- anum og starði í tvö hlæjandi mannsaugu. Hann sagði eitthvað, sem hún heyrði ekki hvað var. Um kvöldið kyssti hann hana fyrsta kossinn, á milli tveggja þúfna í hvamminum. Og frá þeirri stundu var hún á valdi þessa heita, sterka afls, sem kallað er ást. Hann kom til hennar í tjaldið á hverju kvöldi, og þar átti hún sína brúðarsæng. Á meðan hún talaði, fann ég hvernig óttinn læddist inn í huga minn. Heima er bezt 273
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.