Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1999, Qupperneq 55

Heima er bezt - 01.07.1999, Qupperneq 55
vildi víst hafa þessar 50 krónur, sem um var talað. Þegar ég leit á blaðið þá sá ég þar ýmislegt sem ég bjóst ekki við. Ég hélt að ég ætti þessar 50 krónur inni, en því var nú ekki að heilsa. Samkvæmt reiningnum átti ég að- eins eftir 10 krónur. Hér var ýmis- legt tínt til og sumt all óvenjulegt. Ekki var það tiltökumál þótt hestlán kæmi hér við sögu. Sérstæðara var með torfurnar, sem hann lánaði mér á heyið. Þar stóð greinilega 12 torfur, hver á 15 aura = 1 króna og 50 aurar. Ég varð meira hissa en reiður og spurði hann vort meining- in væri að reikna svona. Hann sagði: „Ég hafði hugsað mér að reikna þér allt sem ég gæti." Við skildum svo með skömmum og brigslyrðum á báða bóga. Það síðasta sem ég sagði var eitthvað á þá leið að líklega gæti ég aldrei launað honum lítilmennsku hans, nema mér tækist að gefa honum nýtt nafn: „Torfu-Beggi." Vitanlega er ég nú löngu búinn að fyrirgefa honum og þetta er alls ekki ritað hér til að sýna eða sanna að hann hafi ekki haft neitt gott til. Nú er mér ljóst að maðurinn var sjúkur og að þessir skapsmunir hans voru honum ekki sjálfráðir. En það skildi ég ekki þegar ég var hjá honum. Sagan af viðskiptum mínum við Björgúlf barst um alla sveitina og var þá misjafnlega lögð út. En eitt voru menn þó sammála um. Torfu- leigan þótti einsdæmi um nirfils- hátt. Sumir höfðu þá skoðun á málinu að ekki væri öll sökin hjá Björgúlfi, ég væri sennilega nokkuð erfiður unglingur. Víðar en í einum stað heyrði ég það að ég færi úr öskunni í eldinn að fara að Snóksdal. Kristján, bónd- inn þar, var orðinn aldraður. Hann var af sumum talinn hranalegur, ósanngjarn og öfgafullur. Heimilið var fátæklegt og þrifnaður tæplega í meðallagi. Ég hafði haft kynni af Kristjáni frá barnæsku og alltaf fall- ið hann vel í geð, þrátt fýrir hrana- skapinn. Ég lét því allar hrakspár sem vind um eyrun þjóta. Ég kem til Kristjáns Það mun hafa verið tveimur árum síðar að ég kom til Kristjáns, eftir að ég fór frá honum. Það var viku fyrir réttir. Ég var þá í vega- vinnu á Bröttubrekku. Ég fann það strax þegar ég kom, að eitthvað amaði að gamla manninum. Hann var daufur, ekki eins hressilegur og hann átti að sér að vera. Ekki spurði ég hann þó að því hvað væri að. Ég vissi af reynslu að hann var ekki fyrir það að barma sér eða berja. Ég leiddi talið að heyskapnum, hvernig hann hefði gengið hjá honum um sumarið. Kvað hann heyskapinn hafa gengið vonum framar. En ekki væri nú hægt að búast við miklu, því ekki hefði verið fjölmennu liði á að skipa, aðeins hann sjálfur, orð- inn 71 árs að aldri og dóttir hans, sem þar að auki varð að sinna hús- verkum. Móðir hennar var svo lasin að hún var til engra verka fær. „Það er verst með bindingarnar," sagði Kristján. Hann gat ekki bundið, var fatlað- ur, hafði meiðst á fæti. Og nú fékk hann engan til þess að binda fyrir sig heyið, sem hann átti úti, en það var töluvert. Ekki bað hann mig samt að hjálpa sér. En það fann ég, að hann hafði af þessu þungar áhyggjur. Ég varð gripinn ákafri löngun til þess að hjálpa gamla manninum. Mér fannst samskipti okkar öll hafa verið á þann veg að hann ætti það skilið af mér. En mér var einnig ljóst að fjárhag hans var þannig varið að óvíst væri hvort hann hefði nokkra getu til þess að borga mér. En ég var fjárþurfi, því ég hafði ákveðið að fara í Laugar- vatnsskóla. Ég hugleiddi þetta um stund og fannst það óbærilegt ef hann næði ekki heyinu inn fyrir göngur og svo færi að það hrektist og yrði hálf ónýtt. Svo ég sagði við hann: „Ætli ég reyni ekki að hjálpa þér til þess að koma þessu heim." Kristján ljómaði allur upp og leit á mig þessu hvassa, starandi og stingandi augnaráði, þagði litla stund, en segir síðan: „Þetta er eftir þér." Ég var svo hjá honum alla vikuna við það að koma heyinu heim og búa um það. Hann spurði mig síðan hvað hann ætti að greiða mér fyrir hjálp- ina, en lét þess jafnframt getið að hann væri ekki svo staddur að hann gæti borgað mér strax, því peninga ætti hann ekki til. Ég var seinn til svars, því mér varð það á að hugsa til skólaveru minn- ar og greiðslugetu, því fjarhagurinn var ekki burðugur á þeim árum. Ég sagði þó gamla manninum að ég setti ekki neitt upp. Hann skyldi hafa þetta fyrir gömul og góð kynni. Tár komu fram í augun á Krist- jáni. Hann lagði hendurnar um hálsinn á mér og sagði: „Ég vona að guð gefi að þitt verði ekki minna fyrir það, sem þú nú hefur gert fyrir mig." Ég tel nú að það hefði verið eitt- hvert hið versta óhappaverk, sem ég hefði gert í lífinu, ef ég hefði krafið Kristján um greiðslu. Ég hefði iðrast eftir það ævilangt. En það verður alltaf bjart yfir viðskiptum okkar Kristjáns og kynningu. Leiðrétting í grein minni um Flatey á Breiðafirði, í maíhefti blaðsins á þessu ári, varð misritun í setningu um flutning prentsmiðjunnar í Hrappsey en þar segir: „... sem þekkt er vegna prentsmiðjunnar er þangað var flutt úr Leirárgörð- um..." Svo sem kunnugt er, var prent- smiðjan stofnuð í Hrappsey, og því átti setningin að vera svona: „...sem þekkt er vegna prent- smiðjunnar er síðar fluttist í Leirár- garða." Virðingarfyllst, Guðmundur Sæmundsson. Heima er bezt 295
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.