Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1999, Blaðsíða 64

Heima er bezt - 01.07.1999, Blaðsíða 64
búnað, til þess að geta nóð og not- að sér strax það fræðslu- og skemmtiefni, sem vissa var fyrir að þar yrði boðið og flutt. Nokkrir núðu sér í tækin og annað sem til þurfti með góðum fyrirvara, en aðr- ir fóru sér rólega, flýttu sér hægt, eins og stundum er sagt og oftast er hyggilegt, og voru foreldrar mínir í þeim hópi. En auðvitað voru þeir dkveðnir í að fá sér tækið, áður en útvarpssendingarnar byrjuðu. Loks voru svo nokkur heimili í sveitinni, sem sáu sér ekki fært að kaupa tækin að svo stöddu vegna kostnaðar. Menn höfðu almennt ekki úr miklu að spila á þessum árum, því að mikil viðskiptakreppa var þá í landinu. Aðalafurðir bænd- anna í minni sýslu, lambakjötið, seldist þau ár á lægra verði en nokkru sinni fyrr, eða 7 til 9 krónur lambið til jafnaðar. Tækin voru líka að sjálfsögðu töluvert dýr og auk þeirra þurfti að kaupa allháa loft- netsstöng, sem var grannur trjá- stofn, langt loftnet, en það var margþættur málmþráður, og loks tvær sýrurafhlöður til skipta. En fólkinu á þeim heimilum var strax boðið að hlusta hjá næsta ná- granna og það notuðu flestir sér frá þessum heimilum, á meðan tækið var ekki fyrir hendi. Það er gaman að geta sagt hér og fullyrt í þessu sambandi, að ég minnist ekki, á meðan ég var heima, að það hafi nokkru sinni borið á nágrannakrit eða óvild á milli heimila í sveitinni minni. í þessum hópi ríkti eingöngu vinátta og gagnkvæm hjálpsemi, hvenær sem á þurfti að halda. En nú var kominn desember, og það leið því óðum að stundinni stóru, þegar útvarpa skyldi fyrstu dagskránni um land allt. Nokkru áður en foreldrar mínir ætluðu að kaupa útvarpstækið og það, sem því fylgdi, gerðust á heim- ili okkar mikil og óvænt tíðindi, sem nú verður sagt frá með nokkrum orðum. Rannveig, elsta systir mín, var bú- sett á Kópaskeri, gift Birni Kristjáns- syni kaupfélagsstjóra og síðar al- þingismanni, athafnasömum og virtum héraðshöfðingja. Um þetta leyti hringja þau hjón til foreldra minna, eins og þau raunar gerðu oft, og segjast hafa ákveðið að gefa þeim útvarpstæki og það sem því fylgi. Þau hafi lengi haft í huga að senda þeim í þakkar- skyni eitthvað, sem þeim kæmi vel, og hefði komið saman um að þetta tæki, sem allir vildu nú eignast á þessum tímamótum, ætti vel við og mundi gleðja þau. Mætti þá líka líta á það sem jólagjöf þeirra að þessu sinni. Nú þyrftu þeir bara að láta sækja tækið sem fyrst og það, sem því fylgdi, svo að hægt væri að koma því vel fyrir og njóta þess, þegar útvarpssendingamar byrjuðu. Mágur minn taldi að best yrði að flytja gjöfina á kerm með lang- grind, því að þótt tækið væri hvorki stórt né þungt, fýlgdi því bæði tölu- vert löng útvarpsstöng og tvær all- þungar sýrurafhlöður. Eins og nærri má geta urðu for- eldrar mínir bæði undrandi og glað- ir að heyra þetta, og auðvitað þáðu þeir með þökkum þessa óvnæntu og góðu gjöf. (Ég set hér í svigum nokkur orð til skýringar á tækinu langgrind, sem óvíst er að ljóst sé í hugum margra nú á dögum. Langgrind nefndist löng trjágrind, sem faðir minn smíðaði á kerruhjól og var mikið þarfaþing til ýmissa flutninga, ekki síst á þurm heyi á sumrin. Við kom- um fimm stórum böggum í einu á grindina og var þetta miklu þægi- legra en að flytja heyið á klökkum.) Næst var þá framundan að sækja þetta eftirsótta undratæki. Það átti raunar ekki að vera neitt vanda- mál, því að við þurftum oft að fara til Kópaskers, ýmist á sjó eða landi. Aðalatriðið var að hitta á gott veð- ur. Annars er þetta töluvert löng leið milli Skóga og Kópaskers, tæpast skemmri en 18 kólómetrar og oft mikil torfæra á leiðinni. Það er fljót- ið Bmnná, sem var hinn versti far- artálmi, bæði breið og vatnsmikil, þegar vöxtur var í henni. Þá þurfti að fara yfir hana á pramma, eins og sú bátskæna var kölluð, og láta hestana synda yfir. Væri hins vegar enginn vöxtur í ánni, var auðvelt að ríða hana, og stundum mátti þá líka aka yfir hana á kerrn á vissu vaði með því að kanna botninn áður. Þennan vetur var ég 18 ára gam- all snáði, sem las heima 1. bekk Gagnfræðaskólans á Akureyri með leiðsögn séra Páls Þorleifssonar, sem var nýlega tekinn við Skinnastaða- prestakalli, en bjó þann vetur á Bakka, næsta bæ vestan við Skóga, í fimm kílómetra fjarlægð. Þangað gengum við oftast daglega, tveir frændur og vinir, þegar gott var veð- ur. Flutningsmálin réðust þannig að foreldrar mínir báðu mig, sem þótti röskur unglingur, að fara þessa ferð og sækja töfratækið. Ég lét áreiðan- lega ekki ganga lengi eftir mér og var strax fús til þess, taldi að ég myndi fljótt geta unnið upp námstapið. Ég man enn glöggt að ég hlakaði til þessarar tilbreytingar, hlakkaði til að hitta systur mína og mág og ýmsa fleiri, og hlakkaði til að skoða söluvarninginn í verslun- inni, sem var sú eina í þremur nær- liggjandi sveitum. Þetta mun hafa verið í lok fyrstu viku í desember, þítt þessa daga og snjólaust að kalla. Veður var því eins hagstætt á þessum tíma og hugsast gat. Töldum við því einboð- ið að ljúka strax við að sækja tækið, því að á þessum tíma skipast veður oft skjótt í lofti. Og einn þennan blessaða skamm- degisdag, tímanlega, var ferðin ráð- in og undirbúin. Ég var drifinn í hlýjustu vetrarfötin því að gert var ráð fýrir að ég sæti lengst af á kerrunni. Sjálfur var ég ákveðinn í að ganga alltaf öðru hverju til að halda á mér hita, og gat þá fækkað fötum eftir því sem henta þótti. Langi-Jarpur, einn allra traustasti og besti dráttarklárinn okkar, sem ég hafði miklar mætur á, var spenntur fyrir langgrindina og síð- an lagt af stað, nokkru fyrir hádeg- ið, með góðum ráðleggingum og fyrirbænum foreldra minna. 304 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.