Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1999, Blaðsíða 68

Heima er bezt - 01.07.1999, Blaðsíða 68
fyrst eftir mér hafa þetta verið dugn- aðar, og ágætisstúlkur, og því skyldi lánið ekki enn sem fyrr leika við þig í þesskonar kvennamálum. Að minnsta kosti varstu heppinn í vor, þegar þú réðir Hugborgu hingað til starfa. Hún gefur þeim fullorðnu lít- ið eftir sýnist mér." „Já, telpan, hún er nú aðallega hér til þess að hjálpa mömmu þinni, snúast fyrir hana," ansar Matthías, og spennir gjörðina á reiðskjóta kaupakonunnar. „Já, það leynir sér ekki hvert hlut- verk hennar er, en ætli því fylgi nokkuð minna álag en ganga að útivinnu eins og heyskap," segir Pét- ur Geir alvöruþungum rómi. „Þið húsbændurnir ættuð að leggja metnað í það, að gera vel við þetta duglega og samviskusama hjú ykk- ar, pabbi." „Ætli við teljum okkur ekki gera það, telpan fær fæði og fatnað eftir því, sem hún þarf, og vinna hennar er látin duga fyrir þessu," svarar Matthías, og lítur eilítið undrandi á son sinn. Hvað vakir fyrir drengn- um? „Já, pabbi að sjálfsögðu fær hún mat og einhvern fatnað," samsinnir Pétur Geir. „En bam, sem hefur orð- ið að yfirgefa foreldra, systkini og bernsku heimili, og fara til allra ókunnugra á framandi stað, hlýtur að hafa ríka þörf fyrir fleira en að- eins brýnustu frumþarfir líkamans, smá hlýju, upphyggju, kærleika. Mér finnst mamma sýna Hugborgu harla lítið af slíku, að minnsta kosti, þegar ég sé til. Þessi endalausi, kaldi skipunartónn, frá einu verki í ann- að. Þettta getur ekki hafa farið framhjá þér, pabbi," bætir hann við. „Mamma þín sér vel fyrir því, sem okkur ber að veita krakkanum, en í hvaða tóntegund hún segir telpunni fýrir verkum, hef ég ekki hlustað eft- ir sérstaklega. Fari þessi raddbeiting móður þinnar, sem þú talar um, eitthvað illa fyrir brjóstið á þér eða öðrum, þá er ég sennilega sökudólg- urinn. Ég hitti Davíð föður telpunn- ar af tilviljun í vor út á Drangalóni, og við tókum tal saman. Uppúr því samtali ákvað ég, án vilja og vit- undar móður þinnar, að taka dóttur hans inn á heimili mitt. Ég hafði lengi beðið eftir því að geta sýnt þessum manni í verki smá þakklæt- isvott, fýrir ógleymanlegt dreng- skaparbragð hans við mig á ung- lingsárum mínum, og þarna var það komið upp í hendurnar á mér, og þetta var fastmælum bundið," svarar Matthías , og festir klifber- ann á reiðingshestinn. „Hvaða drengskaparbragð var þetta, pabbi?" spyr Pétur Geir, og leynir ekki forvitni sinni." „Það skal ég segja þér seinna í góðu tómi,en nú er ekki tími til að ræða þau mál frekar, hestarnir bíða óþreyjufullir eftir því að komast af stað," svarar Matthías. „Ég er líka tilbúinn," segir Pétur Geir, og snarast á bak. Hann kastar kveðju á föður sinn, og ríður greitt úr hlaði. Matthías stendur nokkur andartök kyrr á hlaðinu, og horfir á eftir syni sínum, þar sem hann skeiðar niður heimtröðina. Já, víst á hann glæsilegan son, og fallega sit- ur hann gæðinginn, en Pétur Geir er honum stundum ráðgáta. Matthías varpar öndinni, og gengur til sinna starfa. Degi er tekið að halla. Pétur Geir, og nýja kaupakonan ríða í hlað á Lyngheiði. Hjónin koma saman út á hlaðið til þess að heilsa nýju kaupakonunni, og bjóða hana vel- komna. Stúlkan heitir Sesselja Kon- ráðsdóttir. Hún er fremur lágvaxin, en fríð sýnum, brosmild á svip, og býður af sér góðan þokka. Margur er knár, þó hann sé smár, hugsar Matthías, um leið og hann þrýstir hönd kaupakonunnar, honum líst vel á stúlkuna. Eins fer um Ástríði. Henni finnst einhver framandi blær fylgja þessari Reykjavíkurstúlku, sem snertir sveitakonuna þægilega við fyrstu kynni. Húsfreyjan vísar kaupakonunni að ganga inn í bæ- inn, og þær hverfa af hlaðinu. En feðgarnir losa farangurinn af burð- arhestinum, og spretta af gæðing- unum. „Jæja, sonur sæll," segir Matthías léttum rómi. „Sýnist þér ekki hafa tekist vel til með valið á kaupakon- unni okkar?" „Ég hef ekki lagt neitt mat á það, pabbi," svarar Pétur Geir hlutlausri röddu. „Ertu ekki alltaf heppinn með starfsfólk?" „Ó, jú víst má með sanni segja að ég hafi verið það. Eins vona ég að verði með þig, góði minn, þegar þú ert tekinn við óðali feðra þinna," segir Matthías, og lítur broshýr til sonar síns. „Er nú ekki einum of snemmt, að fara að spá í minn búskap. Hvar og hvernig hann verður? Ef til vill legg ég annað gildismat á hlutina en þú gerir, pabbi," svarar Pétur Geir festulega. „Það má vel vera, en hvað sem því líður, bind ég þær vonir við þig, einkason minn, að þú takir við af mér hér á Lyngheiði, og til þess er ég að mennta þig, Pétur Geir," segir Matthías, og broshýran er horfin úr svip hans. „Þú villt vonandi að menntunin komi mér til góða, hvar sem ég festi rætur. En eigum við ekki nú um stundir, að láta það nægja, að líta til nánustu framtíðar?" svarar Pétur Geir, honum þykir nóg komið af þessum vangaveltum. „O, það skemmir engan drengur að líta ögn lengri, en rétt niður fýrir tærnar á sér," ansar Matthías í föð- urlegum tón, og fellir talið. Hestamir eru lausir við klafa sína. Pétur Geir teymir þá niður fýrir tún- garðinn, og sleppir þeim í haga. Matthías tekur farangur kaupakon- unnar, og ber hann inn í bæinn. Hann er ekki sem best ánægður með svör sonar síns áðan. Er eitt- hvað spánýtt að brjótast um í koll- inum á drengnum? Vonandi eru það einungis marklitlir draumórar æskumannsins , sem koma og fara, hugsar hann, en þó... í sömu andrá og Matthías kemur inn í bæinn með farangur kaupa- konunnar, geysist Ástríður til móts við hann. „Þú ferð með farangur stúlkunnar upp í kaupakonuherbergið á fram- 308 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.