Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1999, Side 70

Heima er bezt - 01.07.1999, Side 70
Kaupakonan rís þegar úr sæti, og réttir Friðgerði höndina. „Komdu sæl, Sesselja Konnrúðsdóttir heiti ég, kölluð Setta." Friðgerður tekur hlýtt í hönd nýju kaupakonunnar. „Sæl, stúlka mín," segir hún vingjarnlega. „Velkomin að Lyngheiði." „Þakka þér fýrir," svarar Setta glöðum rómi, og brosir til Friðgerð- ar. Þetta er gæðaleg gömul kona, hugsar hún, og sest að nýju. Ástríð- ur býður fólkinu að gjöra svo vel og taka til matar. Matthías, Setta og Friðgerður byrja þegar múltíðina, en Pétur Geir situr aðgerðalaus. Hann ætlar að bíða þess, að snún- ingshljóð skilvindunnar deyji út fram í búrinu, og Hugborg mæti við matborðið, með þeim hinum. Brútt þagnar skilvindan, Hugborg kemur inn í eldhúsið, og sest í sæti sitt við borðið. Pétur Geir lætur hana fyrst taka sér mat á diskinn, svo byrjar hann sjúlfur móltíðina, síðastur allra. Þetta fer ekki fram hjá móður hans. Hverskonar vitleysa er hlaup- in í drenginn, hugsar hún gremju- lega. Gat hann ekki byrjað að borða, þó stelpan væri fram í búri, að skilja mjólkina. Það hefur ef til vill verið siður á skólasetrinu, að hefja ekki máltíð fýrr en allir væru mættir til borðs, og hann tileinkað sér þann sið svona rækilega. Hann breittist óneitanlega að ýmsu leiti þennan vetur sinn í búnaðarskólan- um, og þetta er trúlega eitt af menningarstraumunum þaðan. Hvað ætti það að geta verið annað? Máltíðinni er lokið. Ástríður rís fýrst frá borðum. „Verði ykkur að góðu," segir hún virðuleg í fasi. Svo snýr hún sér að Hugborgu og skiptir yfir í sinn kalda skipunartón. „Þú rýmir matborðið, Hugborg og þværð upp, mundu eftir að þvo skil- vinduna." En áður en telpan nær að svara nokkru grípur Setta fram í. „Ég skal hjálpa Hugborgu." „Þess gerist ekki þörf," ansar Ástríður að bragði. „Þetta er hennar verk. Þú hlítur að vera þreytt, stúlka eftir ferðalagið." „Þreytt!, nei ekki vitund, leiðin er ekki svo löng frá Brimnesi og hing- að," svarar Setta léttum rómi, og rís úr sæti. „Ég er vön að vinna á veit- ingastað, í eldhúsi, og uppþvottur verið mitt aðalstarf, svo ég ætti að kunna handtökin" „Ég efast ekki um kunnáttu þína, en þetta er hreinn óþarfi. Þú ert ráð- in hingað í heyvinnu, en ekki til eldhússtarfa," segir Ástríður, og örl- ar á þótta í rödd hennar. Friðgerður lítur til Settu. „Jæja, stúlka mín." segir hún glaðlega. „Þú ert viljug til verka, heyri ég, þann góða mannkost ættu allir að kunna að meta." Að því mæltu þakkar gamla konan fyrir matinn og hverf- ur til baðstofu. Ástríður sendir óhýrt auga til bað- stofudyranna sem eru í þann mund að lokast að baki tengdamóður hennar. Eins og vant er þurfti þessi kerling að sletta sér fram í það, sem henni kom ekkert við, hugsar hún gremjulega. En Matthías svarar síðustu orðum móður sinnar. „Jú, víst kunnum við öll að meta starfsfúsar hendur," seg- ir hann hress í bragði. Svo snýr hann sér að konu sinni. „Þú þiggur það, Ástríður að Sesselja rétti þér og telpunni hjálparhönd, þegar slíkt er í boði. Margar hendur vinna létt verk." Ástríður svarar ekki að bragði, en henni sýnist vænlegast að slá und- an í þetta skipti. Hún vill síður falla í áliti hjá ókunnugri stúlku, fyrir þessar sakir. „Því skyldi ég neita því," ansar hún hvatlega. „En mér finnst hreinasti óþarfi að níðast á kaupakonunni, svona fyrsta kvöldið hennar í vistinni hérna, slíkt hefur ekki verið siður í mínum búskap á þessum bæ," bætir hún við, og stik- ar hnarrreist ffarn í búrið. í innsta sálarkima veit hún, að ástæðan var einungis sú, að henni fannst Hug- borg ekkert of góð til þess að ljúka sínu dagsverki eins og venjulega, án íhlutunar annara, og það skal hún fá að gera í framtíðinni, hvað sem allri hjálpfýsi líður, hugsar húsfreyj- an, blinduð í sjálfglöðum valda- hroka. Pétur Geir hefur fylgst grant með orðaskiptum fólksins, og ekki séð ástæðu til þess að blanda sér í þau, en hann brosir þakklátur til Settu um leið og hann gengur á brott úr eldhúsinu, ásamt föður sínum, og það fer ekki framhjá kaupakon- unni. Setta og Hugborg taka rösklega til starfa. Þær eru fljótar að rýma mat- borðið, þvo ílátin, og ganga á hefð- bundinn hátt frá öllu í eldhúsinu. Þeim lætur vel að vinna saman. Þar sem húsfreyjan hefur ekki sagt Hug- borgu frekar fyrir verkum á þessu kvöldi, og æði langur vinnudagur að baki, fýlgir hún Settu upp í her- bergi þeirra, og tekur á sig náðir. Setta hefur í hyggju fýrir svefninn, að spyrja herbergisfélaga sinn um sitthvað, sem við kemur heimilis- fólkinu á bænum og háttum þess. En Hugborg hefur ekki fyrr lagt höf- uðið á koddann, en hún andar í djúpum svefni. „Aumingja telpan," hugsar Setta, „sú hefur verið orðin þreytt. Skyldi hún vera vandalaust tökubarn á þessu höfuðbóli?" Setta stígur upp í rekkjuna. Hún hefur aldrei fyrr gist sveitabæ, og finnur að hún muni ekki geta sofn- að strax í þessu nýja umhverfi. Hún hagræðir sér í hvílunni, og horfir út í bjarta sumarnóttina. Kyrrðin er óendanlega djúp og friðsæl, og ungu borgarstúlkunni eilítið fram- andi. Henni finnst útsýni hér á Lyngheiði einkar fagurt, og henni lýst vel á heimilisfólkið upp til hópa. Þó rennir hana í grun að hús- freyjan kunni að vera dálítið stórlát að eðlisfari. En hún Setta litla Konna kvíðir því ekki, hún er ver- aldarvön. Hún varð, næstum á bamsaldri, að yfirgefa æskuheimili sitt og fara í vistir hjá vandalaus- um, lenti meðal annars hjá stórlát- um húsfreyjum, sem litu niður á hana, vinnukonuna. En hún fann fljótt ráð við slíku. Hún sneri stæri- læti þeirra upp í glens og grín, og í daglegri umgengni lét hún eins og um jafhinga væri að ræða, þó með tilhlýðilegri virðingu fyrir stöðu 310 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.