Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1964, Blaðsíða 24

Æskan - 01.04.1964, Blaðsíða 24
SPURNINGAR OG SVÖR Hayley Mills er talin vera einhver efnilegasta stjarnan, sem fram hefur komið síðustu 25 árin. Skólagarðar. Kæra Æska. Mig iangar til að komast í skólagarða Reykjavík- ur á komandi sumri. Gætir ])ú ekki frætt mig eitthvað um þessa starfsemi? Jóhanna, 12 ára. Svar:í skólagörðunum er börn- um kennt að rækta og þekkja allar algengustu tegundirgræn- metis og sumarblóma. Þeim er í skólagörðunum. þá fenginn 25 ferm. gróðurreit- ur, sem þau hugsa um að öllu leyti sjálf. Auk þess fara þau í kynnisferðir um borgina og gróðursetningarferðir í Heið- mörk. Skólágarða'rnir tóku til starfa 5. júní 1948, og innrit- uðust þá 68 börn í garðana, en þeir voru þá starfræktir á Klambratúni við Lönguhlíð. Skólagarðar eru nú reknir á tveimur stöðum i borginni, við Holtaveg í Laugardal og i Alda- mótagörðunum við Laufásveg. Um það bil 500 börn á aldrin- um 9—14 ára voru í skóla- görðunum á síðastliðnu sumri. Börnin greiða 150 kr gjald fyr- ir dvöl yfir sumarið, en áætlað er, að tekjur livers barns af garðávöxtum séu ca. 1.200 kr. miðað við sumarið 1963. Frímerki frá 1944. Kæra Æska. Iig ætla að biðja þig að gefa mér upplýsingar um verð á Jóns Sigurðssonar frímerkjunum frá árinu 1944. Örn. Svar: Eftir því verði, sem ís- lenzki verðlistinn árið 1964 gef- ur upp, er verðið þetta: 10 aura grátt, 6 kr., 25 aura brúnt, 10 kr., 50 aura grænt, 10 kr., 1 króna blátt, 10 kr, 5 krónur rauðbrúnt, 50 kr.. 10 krónur gulbrúnt, 275 kr. Verð þetta er á notuðum merkjum. Fyrsta dags merki, 17. júní 1944, 500 krónur. Hver er Hayley Mills? Kæra Æska. Eg þakka þér fyr- ir allt, sem þú flytur. Mig lang- ar til að biðja þig um að segja mér eittlivað um Hayley Mills, og birta mynd af henni. Með fyrirfram þökk. Adda. Svar: Ifayley Mills er aðeins 17 ára gömul, og er nú þegar orð- in heimsfræg kvikmynda- stjarna. Aðeins einni nnnarri stjörnu í kvikmyndaheiminum hefur tekizt að ná slikri frægð svo ungri, en það var Shirley Temple, fyrir 25 árum. Faðir Hayley Mills er hinn frægi leikari Jolm Mills, og móðir hennar er kvikmyndaleikkonan Mary Beli. Hayley Mills iék sitt fyrsta stóra hlutverk í Bng' landi fyrir 4 árum. Myndin hét „Hún sá það“, og var sagn flóttafólks frá Póllandi. Mynd þessi fór sigurför um Evrópu og Ameríku, og meðal annars fékk hún viðurkenningu á kvik- myndahátíðinni í Berlín. Sigur Hayley Mills i mynd þessavi 132

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.