Æskan - 01.11.1969, Síða 5
J sa1
\ sta
Aítalíu, sem er kaþólskt
land er mikið af kirkjum.
í Rómaborg eru þær um
300. í einni lítilli kirkju í Róma-
borg, nálægt Capitoi, er lítið
trélíkneski eða mynd af Jesú-
barninu, sem er dálítið öðru-
vísi en margar þessara helgi-
mynda, sem alls staðar eru í
kapellum og kirkjum. Þessi
litla helgimynd er skorin í tré
og andlitið er sérstaklega fal-
lega gert og lifandi, því flestar
þessara gömlu tréskurðar-
mynda voru málaðar með fal-
legum litum.
ítalir kalla þessa litlu helgi-
mynd II Santo Bambino (heil-
aga barnið — Jesúbarnið), og
hún hefur gegnt sérstöku
hlutverki á löngu liðnum tíma.
Styttan er öll skreytt skart-
gripum, gullkeðjum, demants-
hringum, gullnælum og á
seinni tímum hefur henni
áskotnazt gullarmband úr
hvítagulli með demöntum, og
er sérkennileg og öðruvísi en
aðrar helgimyndir fyrir það í
fyrsta lagi. í öðru lagi er hún
sérstök því að um hver jól fær
II Santo Bambino bréf frá
kaþólskum börnum alls stað-
ar í heiminum, lítil sakleysis-
leg bréf með utanáskriftinni:
,,ll Santo Bambino“. Bréfin
eru stimpluð af hinni ítölsku
póstþjónustu og ná þar með
áfangastað sínum til Santo
Bambino í litlu kirkjunni hjá
Capitol. Þetta er líkt því er
önnur börn skrifa jólasveinin-
um á Norðurlöndum og óska
sér jólagjafa, því efni bréf-
anna er oftast hið sama, að
biðja Jesúbarnið um gjafir.
Gamali hvíthærður munkur
safnar bréfunum saman og
staflar þeim í kringum helgi-
myndina. Ítalía er sem kunn-
ugt er mikið ferðamannaland
og meira en 6 mánuði ársins
heimsækir mikið af ferða-
mönnum II Santo Bambino og
kaupa smámyndir af honum til
minja, en þær eru seldar þarna
í kirkjunni.
Um miðnætti á aðfanga-
dagskvöld bera munkarnir
litlu helgimyndina í skrúð-
göngu upp að altarinu og
leggja II Santo Bambino í
litla jötu, eins og sargan segir
að Jesúbarnið hafi fæðzt í.
Jóladagana er kirkjan oftast
full af börnum, sem koma að
heimsækja Jesúbarnið á af-
mæli þess og trú eru gömlum
siðum. Þau ganga upp á lít-
inn söngpall og syngja eða
fara með Ijóð II Santo Bam-
bino íil heiðurs, þar sem hann
liggur þögull í jötunni og glitr-
ar allur af dýrgripum, sem um
hann eru vafðir og ugglaust
hafa munkarnir oft þurft að
mála og skýra upp litla and-
litið hans í gegnum árin.
Sagan segir, að þessi litla
helgimynd hafi orðið til í Jerú-
salem. Munkur einn af reglu
Fransiskusar á að hafa skorið
myndina út úr olíutré úr Get-
semanegarðinum. Um aldir
hefur myndin verið tilbeðin af
kaþólskum mönnum, sérstak-
lega um jólin. Skartgripirnir
eru frá þeim tímum, er siður
var að bera myndina heim til
sjúkra, því var trúað, að lækn-
ingamáttur fylgdi henni sem
og reyndar fleiri helgimynd-
um. Oftast var nú víst farið
með II Santo Bambino til efn-
aða fólksins eða þess, sem
gat gefið kirkjunum gjafir, og
þar af leiðandi fékk þessi litla
helgimynd alla þessa dýr-
gripi, og líkast til miklu meira
en hægt var að hlaða og vefja
utan um litla II Santo Bam-
bino, því kirkjan þurfti á fé að
halda. Árið 1720 bannaði svo
páfinn að gefa þessar sjúkra-
gjafir og var því þá hætt. Árið
1798, er franskir hermenn
ruddust inn í Rómaborg og
rændu kirkjur, þá rændu þeir
einnig Sankti Maríu kirkjuna,
þar sem litla Jesúbarnið var
og rændu þar öllum skartgrip-
unum, en Rómverja einum
tókst að bjarga litla II Santo
Bambino og koma honum fyr-
ir í klaustri einu. Árið eftir var
svo helgimyndin komin aftur á
sinn stað, og ekki leið á löngu
þar til II Santo Bamþino litli
var aftur hlaðinn gjöfum úr
gulli og gimsteinum og smá
óskabréf tóku að berast til
hans frá litlum börnum víðs-
vegar að.
En eitt er víst, að þeir, sem
séð hafa börnin og heyrt þau
syngja og lesa upp Ijóð til
heiðurs II Santo Bambino á
jólunum í litlu Maríu-kirkjunni
í Róm, gleyma því aldrei. L. M.