Æskan - 01.11.1969, Page 13
Sveitamaður nokkur keypti
sex hesta í borginni og hélt
með þá heimleiðis. Á leiðinni
settist liann á bak einum
)>eirra, hinir lilupu á undan
honum. Á leiðinni taldi hann
l>á:
„Einn, tveir, l>rír, fjórir,
fimm ■— hvað er þetta? Ég
keypti ])ó sex hesta, og nú sé
ég ekki nema fimm?“ Af því
liann trúði ekki sínum eigin
augum, taldi hann liestana aft-
ur nokkrum sinnum, og sjötti
hesturinn liafði alveg tapazt.
Hann hugsaði á leiðinni um
hinn vonda hestaþjóf. Heim
komst hann. Konan hlýddi á,
livað fyrir iiafði komið, svo
sagði hún: „Vertu rólegur,
vitri maður minn, þú sérð uð-
eins fimin liesta, en ég sé sjö.“
K. G. sneri úr esperanto.
HVAÐ ER NANNA
AÐ GERA?
Ef þú vilt vita það, skaltu
draga strik með blýanti milli
tölustafanna og byrja á 1 og
halda svo áfram að iölunni 18.
il er gömul frásögn um það, að ekki aðeins leir og mar-
mari hafi fengið líf í höndum hins mikla meistara Thor-
valdsens, heldur líka kökudeig.
Thorvaldsen, sem var íslenzkur að föðurnum en átti danska
móður, og ólst upp í Danmörku, stundaði nám í höggmyndalist
í Rómaborg. Á Ítalíu dvaldi hann og vann mestan hluta ævinnar.
Eftir heimkomu sína frá Rómaborg árið 1838, þá orðinn aldrað-
ur eða um 70 ára gamall, dvaldi hann mikið hjá barónsfjöl-
skyldu, sem hafði ættarnafnið Stampe, og bjó á herragarðin-
um Nysö við Prestö á Fjóni. Stampe-fjölskyldan safnaði um
sig skáldum og öðrum listamönnum og þar á meðal voru ævin-
týraskáldið H. C. Andersen, Adam Oehlenschláger, hið fræga
skáld, og sjálfur Grundtvig.
Barónsfrúin Christine Stampe var mjög góð og umhugsunar-
söm við Thorvaldsen. Hún lét meira að segja útbúa litla vinnu-
stofu fyrir hann þarna á herragarðinum svo að hann gæti grip-
ið í að móta myndir þegar hann vildi, og það er sagt að hann
hafi mótað meðal annars mynd af sjálfum sér, og einnig er
vitað að þar gerði hann mynd í leir. Sú mynd var jólagjöf til
Stampehjónanna. Þessi mynd sýnir þrjá engla, sem eru að
syngja og spila á hörpu, og þeir eru umluktir mörgum smá-
englum, sem mynda nokkurs konar kór. Þessa mynd kallaði
Thorvaldsen Jólagleði á himnum. Myndina mótaði Thorvald-
sen í leir og henni var komið fyrir á jólaborðinu, sem hlýtur
að hafa verið nokkuð stórt, því margt manna var á þessum
herragörðum á fyrri tímum. Myndin þótti mjög fögur og sjálfur
Oehlenschláger gerði um hana mjög fagurt Ijóð.
/
505