Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1969, Page 21

Æskan - 01.11.1969, Page 21
 Dómkirkjan i Reykjavik. vélinni. Kötturinn hann Brandur nuddaði sér upp við hann alveg óhræddur og sleikti höndina, þegar hann strauk honum. — Allt var svo gott hjá henni öinnm — og nú var hún dáin. — Skyldi hún hugsa um dýrin hjá é'iiði núna? — Það sagðist amma vilja gera, þegar hún væri komin til himna. — Dýrin og litlu börnin. — En hver átti núna að hugsa um hann Brand, sem var lifandi? Hann hafði beðið mömmu um hisu, og hún sagðist sjá til, yrði hann duglegur að selja í vetur. — En hver átti að hugsa um hann þangað til? Þegar hann sagði Pétri, að hann íengi kannski Brand, gretti Pétur sig. „Iss, kettir,“ sagði hann, „það á að drepa köttinn okkar. Mamma seg- ir, að hann skíti á gólfið og eyði- leggi húsgögnin." — Já, Péturs köttur óhreinkaði hannski gólfið og skemmdi húsgögn- in, en hann hafði heldur aldrei átt ömmu eins og Brandur. — Já, enginn var betri en amma. Mamma var reyndar líka góð. Stund- Unt gaf hún honum gott og gos- drykk um helgar fyrir að passa yngri systkinin meðan lrún var á ballinu " og konurnar, sem fóru með henni, hlöppuðu honurn þá á kinnina og gáfu honum aur. — Hann liataði þær! Ó, hvað hann hataði þær! Á daginn sátu þær svo í eldhúsi naömmu, drukku kaffi, reyktu og þvöðruðu tímunum saman um böll °g vonda pabba, og að bærinn gæti borgað Jjetta og hitt. — Ef þá var liðið á vikuna, var hann sendur eft- ir aur til pabba. — En J)að var ekki alltaf gaman að koma til pabba. — Ekki Jsað, að bann væri svo slæmur. Til dæmis á laugardögum var hann ósköp góð- ur. Þá var hann rakaður og fínn og söng svo hátt, að heyrðist um allt húsið. Og Jregar pabbi var búinn að kyssa hann og gefa honum epli eða svoleiðis, gekk hann um gólf eins glæsilegur og greifarnir í bíó, sveifl- aði höndunum og kvaðst nú ætla að greiða allar sínar skuldir og hel'ja nýtt líf. Og þá var hann svo ung- legur í framan og fallegur, að hann Jtorði ekki að snerta neitt í eigu pabba. — En karlinn var öðruvísi á sunnu- dögum. Stundum liélt hann jafnvel að pabbi væri ekki lieinra. Hann varð að lemja og lemja á hurðina Jrar til hann sárverkjaði í hnúana. Loks kom Jró pabbi til dyra, en stynjandi og úrillur. Svo Jregar hann var kom- inn inn, settist pabbi á dívaninn, kvartaði um að allir væru á móti sér og sparkaði vonzkulega í tómar flöskur eða grét og las upp heillöng kvæði, sem hann hafði ort, langtum leiðinlegri en kvæðin í skólanum, um rústir heimilisins. Nei, liún var ekki skemmtileg heimsóknin sú. Hann var líka fljótur að koma sér út. — Þá var betra að koma til ömmu. Hún var alltaf eins. — Bara að Guð yrði nú góður við hana ömmu og gæfi henni allt, sem hana langaði í. ★ ★★☆★★★★★★★★★★★★★★★■☆★☆★★★ 513

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.