Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1969, Side 27

Æskan - 01.11.1969, Side 27
8. Úlfarnir Póstafgreiðsla var á einum bænum í nýlendunni og urðu landnemarnir að flytja og sækja bréf sín þangað. Oft var Lóa send þangað með bréf eða til að sækja blöð og bréf. Leysti hún það jafnan af hendi með dugnaði og samvizku- semi. Einn góðan veðurdag um vetur biður pabbi hennar hana að fara á pósthúsið með áríðandi bréf. Hún flýtir sér að búast tii ferðar, tekur við bréfinu, kveður heimifisfólkið og leggur af stað. Hún varð að fara í gegnum skóginn. Hún leggur nú ai stað og hljóp við fót, til þess að komast heim fyrir myrkur. Eftir nokkra stund kemur hún að landamæragirðingu, sem var á leið hennar. Varð hún að klifra yfir girðinguna til þess að komast áfram. Þetta var stauragirðing, hlaðin úr trjábolum. Hún fer nú að klifra upp á girðinguna, en ailt í einu heyrir hún hljóð, sem næstum kom hjarta hennar til að nema staðar af ótta. Það var úlfa-ýlfur, sem henni barst til eyrna. Heyrði hún, að þeir voru inni í skóginum, hinum megin við girðinguna. Hún vissi, að þeir höfðu stundum sézt á þessum slóðum. Hvað átti hún nú að gera? Henni lá við að snúa við heim aftur strax, til þess að forða sér undan úlfunum. En þá datt henni í hug, að pabbi hennar hafði sagt, að bréfið væri áríðandi. Það var víst bezt að halda áfram og koma því í pósthúsið. Það var svo leiðinfegt að geta ekki gert það, sem hún átti að gera fyrir pabba og mömmu. Enn hikaði hún augnablik á girðingunni. í sál hennar börðust hræðslan og skylduræknin harðri baráttu. Að lokum sigraði skylduræknin í huga litlu land- nemastúlkunnar. Hún ákvað að halda áfram í guðs nafni, í trausti þess að hann myndi vernda hana gegn hættunni, ef hún bæði hann þess og gerði svo skyldu sína. Mamma liennar hafði oft sagt við hana, þegar hún var hálfhrædd að fara um dimma skógana: „Þér er alltaf óhætt, Lóa mín, ef þú biður guð að vernda þig og ert gott barn.“ — Saga frá Nýja-íslandi ÚLFURINN Ljónið vildi endurgjalda úlfinum dygga þjónustu yið sig og sagði: „Ég ætla að gefa þér lnndspildu, úlfur litli, þú getur plægt hana og sáð í hana.“ En úlfurinn spurði strax: „Get ég þá étið liana?“ „Nei, ekki ennþá, litli úlfur. f fyrsta lagi verður kornið að spira, vaxa og þrosk- ast, þá uppskerðu það.“ „Mun ég ])á geta farið að éta?“ „Nei, ekki enn! Svo verðurðu að hinda það i knippi, þurrka það og stakka það svo.“ En úlfurinn vældi enn: „Get ég þá farið að éta það?“ „Nei, ekki ennþá. Þú verður að þreskja það, flytja það til myllunnar og fá það inalað." Úlfinum fannst ómögulegt að bíða svo lengi eftir því að éta og var að hugsa um að flýja. „Þú vilt þetta þá ekki?“ spurði ljónið. „Nei, ég vil það ekki.“ „Ef ])ú vilt éta strax, skaltu fara út i liaga. Þar finnurðu hryssu með folaldi. Þetta folald skaltu éta.“ Úlfurinn fór til liryssunnar. Folaldið faldi sig strax undir hryssunni, sem sló úlfinn af svo miklu afli, að hann þeytt- ist í háa loft. Hann reyndi að lilaupa á hryssuna, en árangurslaust. Úlfurinn fór aftur til ljónsins og bar sig illa vegna þessa lélega árangurs. Þá sagði ljónið: „Farðu út á graslend- ið, þar eru kindur á heit. Veldu þér stærsta hrútinn og éttu hann.“ Úlfurinn fór þá til stærsta hrútsins og sagði við hann: „Heyrðu, kindin min, ljónið sagði mér að fara til þin og éta þig.“ Hrúturinn andmælti því ekki, en fór aðeins að biðja: 519

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.