Æskan - 01.11.1969, Page 30
Hótel Bifröst.
Samvinnuverksmiöjurnar á Akureyri-
Ný spurningaþraut
í ársbyrjun 1970
í tilefni af 70 ára afmæli barna- og unglingablaðsins ÆSKUNN-
AR efna blaðið og Klúbbarnir ÖRUGGUR AKSTUR sameigin-
lega til nýrrar spurningaþrautar varðandi umferðarmál á meðal
yngri lesendanna.
Umferðarvandamálin eru þegar mikil og margþætt meðal
flestra þjóða, og má búast við því, að þau fari frekar vaxandi en
minnkandi hérlendis, eftir því sem fram líða stundir. Það er þess
vegna brýn nauðsyn, að sem allra flestir, og þá einkum æska
landsins, láti þessi mál alls almennings til sín taka og hafi já-
kvæð afskipti af þeim. Á þetta ekki aðeins við um þá, sem
stjórna vélknúnum ökutækjum, heldur einnig aðra vegfarendur svo
sem hjólreiðamenn og fótgangandi vegfarendur. Allir eiga einhvern
hlut að umferðinni — ýmist beinan eða óbeinan — og þar með
því öryggi eða öryggisleysi, sem hún hefur upp á að bjóða.
Spurningarnar, sem lagðar verða fyrir til úrlausnar, snerta all-
ar umferðaröryggismál með einhverjum hætti. Þær verða 30 að tölu
og munu birtast í 3 fyrstu blöðunum eftir áramót, jan.-, febr.- og
marz-blöðum.
Veitt verða 5 verðlaun fyrir rétt svör við öllum spurningunum.
Úr réttum svörum verður dregið um verðlaunin, en þau verða þessi:
1. verðlaun: Vandað reiðhjól af gerðinni DBS, — norskt.
2. verðlaun: Tvö 10 daga námskeið við sumaríþrótta-
skólann að Leirá.
3., 4. og
5. verðlaun: NORDPOL-kuldaúlpa og alklæðnaður frá
samvinnuverksmiðjunum á Akureyri:
HEKLU, GEFJUN og IÐUNNI.
Auk framantalinna verðlauna verður verðlaunahöfunum öllum
boðið í ferðalag innanlands, hverjum frá sínu heimili, og verða
helztu áfangastaðirnir Aðalskrifstofa SAMVINNUTRYGGINGA í
Reykjavík, Sumaríþróttaskólinn að Leirá, Hótel Bifröst og sam-
vinnuverksmiðjurnar á Akureyri. Fer verðlaunaafhendingin fram
í sambandi við ferðalagið.
Sérhver lesandi ÆSKUNNAR allt að 15 ára aldri hefur rétt til
þess að taka þátt í spurningaþrautinni og tryggja sér þar með að-
ild að möguleika til verðlauna.
Aðalskrifstofa Samvinnutrygginga í Reykjavik.
522
íþróttaskólinn að Leirá-