Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.11.1969, Qupperneq 31

Æskan - 01.11.1969, Qupperneq 31
I NG I BJ ÖKG ÞO RBERGS: „Gítarinn minn“. „Þótt desember sé dimmur, dýrleg á hann jól. Með honum endar árið, og aftur hækkar sól.“ Þannig enda Mánaðavísurnar hans Steingríms Arasonar, og ég er honum sammála. Það er dásamlegt að jólahátíðin skuli vera haldin á meðan mesta skammdegið ríkir hér. Hugsið ykkur, að í Ástralíu eru jólin — auðvitað í desember líka — en þar er þá há- sumar! Ekki vildi ég skipta! — En hvað sem því líður, þá hlakka liklega flest kristin börn til jólanna, hvort sem hjá þeim ríkir vetur eða sumar, og hvort heldur þau eru fátæk eða rík. Jólin eiga að vera hátíð Ijóssins og gleðinnar. Þið megið samt ekki gleyma hvers vegna jólin eru haldin helg. Þið megið ekki halda, að jólin séu bara til að fá gjafir! Þið þekkið söguna um Jesúbarnið. £g ætla ekki að rifja hana upp, en ef þið hafið ekki heyrt þá sögu, ættuð þið að fara í sunnudagaskóla eða kirkju um jólin, til að læra hana. Því að, ef við höldum jólin hátíðleg, þá verðum við líka að vita hvers vegna. — Annars eigum við ekki skilið að eiga nein jól. — Og haldið þið ekki, að jólalaus ár væru heldur tilbreytingar- laus? „Jú,“ segið þið áreiðanlega, „það væri Ijóta lífið!“ — Svo þið sjáið, að Jesúbarnið hefur ekki gert svo lítið fyrir þennan heim. 1969 verður ártal í veraldarsögunni, sem komandi kynslóðir verða að vita einhver deili á. Vitanlega getum við ekki kvatt þetta merkisár, án þess að detta TUNGLIÐ í hug. Það er allt í einu orðið svo nálægt okkur, — og allt í sambandi við það breyttist svo skyndilega á s. I. sumri. Ég veit ekki hvernig þið, sem eruð ekki enn orðin stór, hugsið um lunglið. En einu sinni þóttist ég þekkja Karlinn í Tunglinu. — Mér fannst hann bæði rómantískur og skemmtilegur. Nú er hann allt i einu ekki lengur til. Karlinn í Tunglinu er dauður. ... Ég verð að játa, að ég syrgi hann.... Nú finnst mér tunglið bara vera eins og hvert annað óbyggt land! Hvort sem það er úr „tóm- um osti,“ gulli eða grjóti — þá vitum við nú, að þar situr engin móðir, sem kembir ull nýja, engar Freyjur, sem skafa gulltreyj- ur .... heldur aðeins eldflaugar og annað slíkt. . . . Kannski er líka bezt að horfast í augu við raunveruleikann. .. . Líklega munu börn ykkar og barnabörn ,,skreppa“ í geimferð til tunglsins eða annarra stjarna, eins og sumir „skreppa“ núna til útlanda. Og þeim mun ekki þykja það neitt sérstakt. — Okkur, sem erum fullorðin núna, finnst það samt stórkostlegt. .. . Kannski er ekki brattgengt til stjarnanna lengur, — kannski er allt leikur og allt hægt. .. . Ef svo er, ætti líka að vera hægt að lifa í sátt og samlyndi f heiminum. Mennirnir ættu að hugsa um hnöttinn sinn; að þar sé friður og frelsi. Þá er nú komið að laginu, sem auðvitað er lag um tunglið! „Sé tunglið allt úr tómum osti.“ Það lag, ásamt öðrum, er nú fáanlegt á hljómplötu. Þess vegna finnst mér tilvalið að senda ykkur það nú á nótum (bls. 524) og með gítargripum (bls. 523). Og seinna fáið þið á nótum fleiri lög, sem eru á plötunni. Ég hefi oft verið spurð, hvort ekki væru fáanleg á plötum ein- hver af lögunum úr barnatímunum mínum. Nú er nokkuð úr þessu bætt. Hér var í haust haldið mót stjórnenda barna- og unglinga- þátta við Útvarpsstöðvar Norðurlanda. Það, sem herti á útgáfu þessarar plötu, var eiginlega áskorun vrá þeim Norrænu þátttak- endum, sem heyrðu lögin af segulbandi. GLEÐILEG JÓL! INGIBJÖRG Sé tunglið allt úr tómum osti (Úr „Ferðinni til Limbó“) TEXTI: ingibjörg JÓNSDÓTTIR LAG: ingibjörg ÞORBERGS A D Sé tunglið allt úr tómum osti, E7 A (E7-A í millispili) talsvert held ég að það kosti. A D Þar músapabbar ei mikið gera E7 A (E7-A) og Möllu þætti víst gott að vera. A E7 Naga, naga, alla daga, A D narta bita í sinn maga. A D Þá verður Möllu magi stór, H7 E (H7-E7) og Maggi ekki lengur mjór. A D Sé tunglið alll úr tómum osti. E7 ' A (E7-A) talsvert lield ég að það kosti. A D Þar músapabbar ei mikið gera E7 A (E7-A) og Möllu þætti víst gott að vera. E7 A E7 A Tra la la ha ha, Tra la la ha ha. E7 A E7 A Tra la la ha ha, Tra la la, la la, La ha ha. A D Á ógnar spani’ í eldflauginni. E7 A (E7-A) æddi ég með systur minni. A D Um himingeiminn. ég hentist spenntur, E7 A (E7-A) og hérna er ég nú loksins lentur. A E7 Úr gulum osti allt er hér, A D e£ að tunglið þetta er. A D Nú ég í liann narta vil. H7 E (H7-E7) Ög namm og namm, ég hlakka til. A D Á ógnar spani’ í eldflauginni E7 A (E7-A) æddi ég nteð systur minni. A D Um himingeiminn ég hentist spenntur, E7 1 A (E7-A) og hérna er ég nú loksins lentur. E7 A E7 A Tra la la ha ha, Tra la la ha ha. E7 A E7 A Tra la la ha ha, Tra la la, la la, La ha ha. 523
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.