Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1969, Síða 43

Æskan - 01.11.1969, Síða 43
óskir, sem hann fengi uppfylltar, jafnvel gat ég hugsað mér, að hann fengi alltaf þrjár óskir til sinna nota dag hvern, meðan hann liíði. En ald- irnar liðu, enginn fann mig og tók ég þá að gerast súr og argur í skapi. Síðast sór ég að drepa hvern þann er leysti mig úr prísund þessari. Nú er það þitt, fiskimaður góður, að kjósa þér dauðdaga og segja mér til um það, á hvern hátt þú vilt að ég sálgi þér.“ Þannig lauk andinn máli sínu og var nú orðinn hinn hrikalegasti ásýndum. Hæð hans var um það bil þrjár venjulegar mannhæðir og ummál hans eftir því. Var sem eldur brynni úr augum lians og út úr nösum hans lagði reykslæðu. Vesalings íiskimaðurinn var nú sem vonlegt var orðinn dauðhræddur, og tók hann að barma sér ákaflega: „Vesalings ég,“ sagði hann, „hvað hef ég til saka unnið? Og getur það verið, mikli andi, að þú sért svo vanþakklátur að ætla að drepa mig, björgunar- mann þinn? Hafðu meðaumkun með mér og gef mér líf. Allah, guð okkar, mun launa þér.“ En andinn var hinn þverasti. „Nei,“ sagði hann, „það kemur ekki til mála. Segðu mér bara fljótt til um það, á hvern hátt þú vilt helzt deyja.“ En fiskimaðurinn var ekki allur þar sem hann var séður, honum datt nú ráð í hug. „Jæja,“ sagði hann, „þetta verður þá svo að vera, en svaraðu einni spurningu fyrst.“ Jú, það sagðist andinn skyldu gera. „Er það nú áreiðanlegt, að þú hafir verið niðri í þessum kút? Ég get varla trúað því,“ sagði fiski- maðurinn. „Já, vissulega hef ég verið þar og raunar alltof lengi.“ „Þetta finnst mér merkilegt," sagði fiskimaður- inn, „Jjví að mér sýnist fóturinn á þér svo stór, að hann einn gæti alls ekki komizt niður í kútinn, hvað þá allur líkami þinn.“ Andinn sór og sárt við lagði, að hann hefði verið í kútnum og hvergi annars staðar, en fiskimaðurinn sagðist ekki trúa því, nema hann sæi það með eig- in augum. Þá breytti andinn sér í reyk, sem varð að mjórri súlu og hvarf síðan niður um stútinn á kútnum. Þá var fiskimaðurinn ekki seinn á sér að þrýsta tappanum í opið og búa vel um. „Hæ!“ kallaði hann til andans, nú skal ég svei mér kasta þér út á sextugt dýpið aftur." En nú varð andinn hinn blíðasti og hélt því fram, að það, sem hann hefði áður talað, hefði verið spaug eitt og gamanmál, og vissulega skyldi hann gera björg- unarmann sinn að ríkum manni. Þegar fiskimanninum varð hugsað til barnanna sinna, sem biðu svöng heima, gat hann ekki staðizt tilboð andans og tók tappann úr kútnum á nýjan leik, og var þá andinn fljótur að skjótast út í reyk- skýi. Hið fyrsta, sem hann gerði, var að sparka kútnum langt út á sjó. Síðan sagði hann fiski- manninum að taka net sín og fylgja sér. Gengu þeir um stund, en komu þá að vatni einu. „Þarna skaltu kasta netum þínum," sagði andinn, „hér muntu afla vel.“ Fiskimaðurinn gerði svo, og fljótlega komu allmargir fiskar í netið. Og aldrei hafði hann augum litið jafn fallegan afla. Fiskarnir voru ekki aðeins stórir og feitir, heldur voru þeir líka merkilega litfagrir. Sumir þeirra voru rauðir, aðrir bláir, gulir og hvítir. „Taktu nú nokkra fiska úr þessum afla og færðu soldáninum þá,“ sagði andinn, sem var nú orðinn liinn vingjarnlegasti í garð fiskimannsins. Því næst stappaði andinn niður fætinum og mynd- aðist þá sprunga í jörðina. Hvarf hann síðan niður í hana og laukst jörðin þá saman aftur. Fiskimaðurinn-gerði eins og íyrir hann var lagt, og þegar soldáninn sá hina litfögru fiska, varð liann svo glaður, að hann lét strax kalla á matsvein sinn og bað hann matreiða fiskana, en gjaldkera sínum skipaði hann að greiða fiskimanninum háa fjárupphæð og óskaði eftir viðskiptum við hann framvegis. Upp frá þessu þurftu fiskimaðurinn og fjölskylda hans ekki að búa við sult og seyru. Framhald. 535 V.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.