Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1969, Síða 48

Æskan - 01.11.1969, Síða 48
Hinir gullnu vinir cJ-leigióögn \rá ^Uietnam Öinhvern tíma íyrir langa löngu voru tveir stúdentar. Þeir hétu Luu-Binh og Zuong-Le. Þeir urðu einlægir vinir. Luu-Binh var einkasonur auðugra foreldra. Hann bað foreldra sína um leyfi til að bjóða Zuong heim til sín og hafa hann hjá sér, en hann var bláfátækur og munaðarlaus. Þeir lifðu svo saman eins og bræður og synir sömu foreldra. Þeir sóttu sama skóla, borðuðu við sama borð og sváfu í sama rúmi. Luu-Binh treysti sífellt á hamingju sína og vitsmuni. Hann varð mjög hyskinn við námið, en áhuginn fyrir gjálífi því meiri sem lengra leið. Aftur á móti stundaði Zuong-Le námið af miklum áhuga og iðni, bæði heima og í skólanum, svo að hann fékkst vart til að líta upp úr bókunum. Mörgum sinnum reyndi Zuong-Le að hvetja vin sinn til að sleppa sér ekki út í fánýtan hégóma. Luu-Binh kinkaði kolli við því sem sjálfsögðum hlut, en hélt þó gjálífi sínu áfram. Hinn ástundunarsami Zuong-Le stóðst háskólaprófið, þegar þar að kom. Hann fékk embætti í fjarlægu fylki. En vegna þess hve Luu-Binh var hyskinn við námið, náði hann ekki prófi, þó að hann reyndi nokkrum sinnum. Kjarkleysi og drykkjufýsn náði tökum á honum, svo að hann varð alger þræll nautnasýki sinnar. Eftir lát foreldra sinna sóaði Luu-Binh auð- æfum sínum í fjárhættuspil. Innan skamms var Luu-Binh orðinn fjárvana og heimilislaus. Hann iðraðist að hafa glatað æsku sinni í niðurlægjandi nautnir. En það var of seint! Þá fór hann að hugsa til gamla vinarins Zuong-Le, sem nú var orðinn auðugur og mikils virtur. Hann var viss um, að Zuong-Le mundi taka vel á móti sér, sem áður hafði fengið að dvelja með honum í húsi foreldra hans! Luu-Binh lagði svo af stað sem ölmusumaður. Eftir margra daga hungur og kulda komst hann loks til húss vinar síns. Hann var gagntekinn fögnuði. „Hér eftir þarf ég hvorki að kvíða hungri né kulda," hugsaði hann með sjálfum sér. Svo sökkti hann sér niður í draumóra um hið liðna óhófslíf. Vonglaður sendi hann Zuong-Le nafnspjald sitt og beið við dyrnar. Hann beið og beið, þangað tíl vörður kom út seint um kvöldið. Vörðurinn lagði hrísgrjónalúku og ögn af salti í lófa hans og rak hann á dyr reiðilegur á svipinn: „Hans hágöl'gi er háttaður og á aldrei ölmusumann að vini.“ Luu-Binh fannst nú sem jörðin sykki undir fótum sér. Hann var ekki aðeins sálarlega bugaður, heldur einnig fullur blygðunar. Hann varð nú að reika um úti á víðavangi, því nú var fokið í hvert skjól varðandi hús- óúasöngut batnanna Híeilög í heimi hefjast nú jól. Ljómar oss lífsins líknandi sól. Frelsarans fæðing fagnar vort geð. Gleðjandi öll góð börn guðs englum með. Huga til hæða hefjum vér þá. Lífgjafans ljósengla ljúft er að sjá. Upphimin6 opnast alfagra hlið, gengur þar gegnum guðsengla lið. Sælunnar sölum svífa þeir frá, blessunar boðskap börnum að tjá. Fylkingar fríðar færast oss nær, stignar á storðu staðnæmast þær. V 540
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.