Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1969, Side 51

Æskan - 01.11.1969, Side 51
JOLALEIKUR Allir geta tekið þátt ( þessum jólasveinaleik. Hver leikmaður hefur einn mislitan hnapp eða tölu, sem hann færir svo á sinn reit. Þegar teningurinn, sem alltaf er notaður við svona spil segir til um töluna, sem upp kemur, í hvert sinn, sem kastað er, þá flytur hver þátttakandi sína tölu (hnapp) um svo marga reiti, sem upp koma á teningnum. Sá, sem fyrst kemst að jólatrénu hefur unnið þau verðlaun, sem eru I boði. REGLUR: 1, 2, 3, 4 * Byrjað er á nr. 1. Jólasveinarnir eru á leið heim með jólatréð. Ef þú lendir á nr. 5, þá verður þú að bíða þangað til þú færð 5 eða 6 punkta á teningnum. Pétur jólasveinn fær snjóbolta beint í augað, svo þú flýtir þér áfram á reit 18. Jólasveinapabbi ekur með of miklum hraða og fær áminningu hjá lögregluþjóni. Þú færir þig aftur á bak á nr. 13. Jói litli jólasveinn er að gefa fuglunum jólakornið. Þú færð aukakast. Þarna fór illa. Lassi litli jólasveinn getur ekki stöðvað sig á sleðabrautinni og steypist kollhnís. Nú verður þú að byrja ferðina að nýju á reit 1. Nú máttu færa töluna þína á nr. 46 og verða samferða jólasveinunum í sleðaferð þeirra. Jólasveinafrændi kemur með fullt fangið af jólabögglum, og þú mátt fylgjast með jólasveininum á nr. 64 og opna pakkana. Framh. á bls. 581.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.