Æskan - 01.11.1969, Side 55
FÖR GÚLLÍVERS TIL PUTALANDS
járnstögum og járnstöngum, sem til voru i ríkinu. Járnreipin voru
að gildleika á við seglgarn, og stengurnar á borð við prjóna að
lengd og digurð. Ég þrinnaði reipin til að styrkja þau og sneri
saman þrjá prjóna og batt krók á endann. Þegar ég var búinn að
búa út 50 vírreipi með krókum, fór ég til norðausturstrandar eyjar-
innar, fór úr yfirhöfninni, leysti af mér skóna og fór úr sokkunum og
óð því næst út á sundið í skinnúlpu minni hér um bil hálfri stund
fyrir háflæði. Ég óð svo hratt sem ég gat og synti yfir miðálinn
þar til ég fann botn, og náði ég flotanum á tæpri hálfri klukku-
stund. Óvinaherinn varð þá svo hræddur, þegar hann sá mig, að
fólkið hljóp fyrir borð og synti til lands, og virtist mér þar ekki
færra saman komið en 50 þúsundir manna. Ég tók þá upp allt
víravirki mitt og festi alla þráðarendana saman á einn krók. En
meðan ég var að hnýta þessum reipaendum á krókinn, skutu
Blefúskúmenn á mig nokkurum þúsundum örva og lentu margar
af þeim f höndunum á mér og andlitinu. Mig sveið alveg afskap-
lega í þessar stungur, auk þess sem það tafði ekki lítið fyrir mér.
Ég var nú búinn að krækja öllum smákrókunum í skipin og tók nú
í allt saman og ætlaði að draga að mér, en gat ekki þokað neinu
skipinu, því að þau héngu öll föst á akkerunum, svo að ég náði
aðeins litlum hluta af þeim, sem ég hafði komið krókum í. Ég
sleppti því strengjunum, en lét krókana vera kyrra í skipunum og
flýtti mér að skera á akkerisfestarnar með hnífnum mínum, en
fékk við það um 200 örvaskot i andlit og hendur. Svo greip ég
alla endana samanhnýtta, og lék mér nú að því að draga 50
stærstu herskipin á eftir mér út á sundið.
Þegar þið þvoið hárið, þá er
ekki gott að nota mikið sápu-
efni eða hárþvottaduft. Það
skaðar hárið. Aftur á móti eigið
þið að nudda vel hársvörðinn
og munið að nota góða hár-
bursta, helzt með ekta hári.
Nælonburstar slíta hárinu og
gera það rafmagnað.
Ef þið gangið mest með slétt
hár þá munið, að oft þarf að
klippa það.
Hér koma leiðbeiningar um
nokkrar hárgreiðslur, hvernig
þið eigið að rúlla hárlokkunum
upp á réttan hátt.
HÁRIÐ
1. Slétt og dálítið gróft hár
er rúllað þannig upp (sjá mynd
1), stórar rúllur: Hárið er þurst-
að vel eftir að rúllurnar hafa
verið fjarlægðar. Hárið greitt
upp frá enninu. Af hliðarhárum
takið þið lokk, sem þið leggið
fallega þvert yfir hárið og undir
hinum megin og festið þar svo
ekki sjáíst með spennum. Greið-
ið hliðarhár fallega meðfram
vöngunum.
2. Skiptu hárinu í miðju og
rúllaðu því upp, eins og mynd
2 sýnir. Notaðu hárnálar þar
sem hárið er stytzt í hnakkan-
um og bezt er að nota milli-
stærð af rúllum.
Þegar þú greiðir úr hárinu,
skaltu lyfta því dálítið upp með
þvf að túbera það lítilsháttar.
Til hliðanna greiðist það slétt
frá skiptingu, en siðan látið
lyfta sér vel fram með vögun-
um. Þið sjáið, að skiptingin er
aðeins stutt og I hnakkanum
greitt aftur og látið lyfta sér
dálítið upp á höfðinu.
547