Æskan - 01.11.1969, Blaðsíða 62
SKÁTAOPNAN
Ritstjórn: HREFNA TYNES
Hvaö þarf ég að gera til þess að
verða skéti?
'*7' ið höldum nú áfram þar sem frá var
vikiö í síðasta blaði, en verðum að
stikla á stóru.
Við vorum síðast að tala um Baden-
Powell og aðdraganda og stofnun skáta-
hreyfingarinnar. Hann var fæddur 22. íebr.
1857, og var því fimmtugur, þegar hann
hóf skátastarf. Hann byrjaði aðeins með
drengi, en eins og gefur að skilja, vildu
stúlkurnar einnig verða skátar. Hann fékk
þvi systir sína Agnesi Baden-Powell lil þess
að verða foringja þeirra, en eftir að hann
giftist eftirlifandi konu sinni Olave Baden-
Powell, varð hún foringi stúlknanna, og hef-
ur nú í fjölda mörg ár verið alheimsforingi
kvenskáta. Hún er fædd 22. febr. 1889,
einnig ensk að ætt. Býr nú í Hampton Court
Palace skammt frá London. Annars á hún
landsetur í Kenya í Afríku, sem heitir Pax-
Hill - á íslenzku Friðarhæð. Þar bjuggu þau
hjón um skeið, og þar andaðist Baden-
Powell 1941. Ég mun ekki skrifa sögu
skátahreyfingarinnar í þessum pistlum,
heldur aðeins „koma við“ á þýðingarmikl-
um stöðum, og benda ykkur á, hvert þið
eigið að leita.
Skátahreyfingin barst óðfluga út, og frá
Allar upplýsingar um skátastarf
má fá I skrifstofu Bandalags
íslenzkra skáta, Tómasarhaga
31 — Simi 2 31 90.
Þar fæst einnig bókin:
SKÁTAHREYFINGIN
heimalandi sínu, Englandi, gekk hún eins
og örvar í allar áttir, má segja, að enginn
æskulýðsfélagsskapur hafi náð eins skjótri
útbreiðslu og fest jafn djúpar rætur og hún.
Hingað til íslands barst hún árið 1912,
og var fyrsta skátafélag hér á landi —
Skátafélag Reykjavikur — stofnað 2. nóv.
1912.
Fyrsta kvenskátafélag á íslandi var
Kvenskátafélag Reykjavíkur, stofnað 7. júlí
1922. Upphaflega voru stúlkur og drengir
algjörlega aðskilin í skátafélögum, en þró-
unin hefur orðið sú, að nú eru samfélög
stúlkna og drengja óðum að færst í aukana.
Lengi vel voru það ísland (frá 1944),
ísrael og Indland, sem höfðu þennan hátt
á. Með þessu greinarkorni fylgir listi yfir
skátafélög og félagsforingja þeirra. Þá get-
ið þið snúið ykkur til réttra aðila, hver á
sinum stað, ef þið hyggizt ganga í skáta;
félag, en til þess verðið þið að vera orðin
11 ára gömul og hafa leyfi foreldra ykkar.
Fyrsta prófið, sem þið lærið er Nýliða-
prófið, sem stundum er kallað „Lykillinn
að töfrum skátaævintýrisins". Þetta er nú
spennandi nafn, en það inniheldur líka
mikið.
Skétafélðg og félagsforingjar I Bandalagi isl. skéta
Skátafél. Akraness
Páll Gíslason, Heiðarbr. 32
Skátafél. Borgarness •
Guðm. Ingimundarson
Væringjar Stykkishólmi
Rakel Olsen, Skólastíg 1
Ægir Ólafsvík
Kristin Vigfúsdóttir
Útherjar Þingeyri
Ágúst Ágústsson
Glaðhetjar Suðureyri
Guðm. O. Hermannsson
Framherjar Fiateyri
Sr. Lárus Guðmundsson, Holti
Gagnherjar Bolungarvík
Guðm. Páll Einarsson
Einherjar Isafirði
Jón Páll Halldórsson,
Engjavegi 14
Valkyrjan fsafirði
Auður Hagalín, Silfurgötu 4
Hólmverjar Hólmavík
Sigurður Kristinsson
Skátaféi. Blönduóss
Jón fsberg, sýslum.
Sigurfari Skagaströnd
Pétur Eggertsson
Fylkir Siglufirði
Jón Dýrfjörð, Hólavegi 7
Valkyrjur Siglufirði
Hrafnhildur Guðnadóttir,
Hverfisgötu 1B
Útverðir Ólafsfirði
Björn Stefánsson
Skátafél. Dalvíkur
Jóhanncs Haraldsson,
Sináravegi 12
Skátafél. Hríseyjar
Skátafél. Akureyrar
Ingólfur Ármannsson,
Aðalstræti 62
Valkyrjan Akureyri
Hulda Þórarinsdóttir,
Þórunnarstræti 124
Víkingur Húsavík
Jónas Itagnarsson,
Garðarsbraut 35
Ásbúar Egiisstöðum
Orn Þorleifsson
Skátafél. Norðfjarðar
Pétur Kjartansson,
Liljuvöllum 32
Frumbyggjar Höfn i Hornaf.
Elías Jónsson
Faxi Vestmannaeyjum
Halldór Ingi Guðmundsson,
Box 89
Birkibeinar Eyrarbakka
Fossbúar Selfossi
Ingeborg Sigurðsson,
Austurv. 21B
Skátafélag Hveragerðis
Bergur Sverrisson
Stafnbúar Sandgerði
Jórunn Guðmundsdóttir
Hliðarvegi 19
554