Æskan - 01.11.1969, Qupperneq 72
Hér flaug hún fyrst 19. júní 1930 og var síðan mikið notuð,
einkum til síldarleitar, en einnig til farþega- og póstflugs. Henni
flugu Sigurður Jónsson og Björn Eiriksson og að viðgerðum á
henni (og Súlunni) unnu íslenzku vélamennirnir Jóhann Þorláks-
son, Gunnar Jónasson og Björn Ólsen.
Sumarið eftir, eða 22. júní 1931, hvolfdi flugvélinni, þar sem hún
lá við festar undan flughöfninni í Vatnagörðum. Hún flaug ekki
eftir það og var dæmd ónýt síðla sumars 1932.
JUNKERS F 13w: Hreyflar: Einn Junkers L-5, 310 hö. Væng-
haf: 17,75 m. Lengd: 11,00 m. Hæð: 4,50 m. Vængflötur: 43 m^.
Farþegafjöldi: 4. Áhöfn: 2. Tómaþyngd: 1.350 kg. Hámarksflug-
taksþyngd: 1.950 kg. Arðfarmur: 600 kg. Farflughraði: 145 km/t.
Hámarkshraði: 181 km/t. Flugdrægi: 825 km. Flughæð: 4.600
m. 1. flug: 25. júní 1919.
JUNKERS W 33 - ísland-1
Þessi flugvél kom hingað með Hellig Olav 24. júní 1930. Eigandi
hennar var Flugfélag íslands hf. Hún hlaut nafnið Súlan; á
skrokknum bar hún einkennið ISLAND-1.
Hún var smíðuð hjá Junkers Flugzeugwerke AG, Dessau, Þýzka-
landi.
JUNKERS F 13 - lsland-2 Ljósm:. N. N.
Hér flaug hún fyrst 26. júní 1930 og var hér mikið notuð, aðal-
lega til farþegaflugs. Henni var aðallega flogið af Sigurði Jóns-
syni. 3. ágúst 1931 hvolfdi flugvélinni við festar á Akureyrarhöfn.
Hún var flutt til Reykjavlkur, en hún flaug hér ekki eftir þetta.
Hún var send til Þýzkalands með Goðafossi 14. seþtember 1932.
JUNKERS W 33w: Hreyflar: Einn Junkers L-5, 280/310 hö. Væng-
haf: 17,75 m. Lengd: 10,80 m. Hæð: 3,80 m. Vængflötur: 43 m’.
Farþegafjöldi: 4—6. Áhöfn: 1—2. Tómaþyngd: 1,420 kg. Hámarks-
flugtaksþyngd: 2.100 kg. Arðfarmur: 680 kg. Farflughraði: 150
km/t. Hámarkshraði 187 km/t. Flugdrægi: 1000 km. Hámarksflug-
hæð: 5.700 m. 1. flug: 1926.
BLUEBIRD - TF-LÚA
Þessa flugvél keyptu þeir Helgi S. Eyjólfsson, Niels Nielsson
og Karl Schram í Englandi sumarið 1936. Hún hafði þá verið í
eigu Mr. Fields nokkurs, en þar áður f eigu North Sea Aerial &
General Transport Ltd., Brough, E. Yorks. (G-AAOF). Þeir Helgi og
Ljósm.: Kjartan Guðbrandsson.
Niels tóku við flugvélinni í júlí 1936 og hafði henni þá verið
flogið í 676 tíma. Hún var smíðuð hjá Saunders Roe Ltd. Á henni
mátti fljúga listflug.
Saga þessarar flugvélar var mjög viðburðarík og í Englandi
hafði hún brotlent nokkrum sinnum, en jafnan verið gerð upp að
nýju. í leiðabók hennar sést, að 8. apríl 1933 hafði henni verið flog-
ið tæpa 367 tíma. í okt. 1933 skemmdist hún í lendingu á Walt-
ham-flugvelli. 19. jan. 1934 kom hún úr viðgerð frá Blackburns.
Hún skemmdist aftur 10. marz 1934, og 4. apríl er settur í hana
nýr mótor. 5. apríl 1934 fékk Lincolnshire Aero Club hana til
notkunar, og 19. maí brotlendir hún. 25. júlí flaug hún aftur eftir
rækilega viðgerð. 13. okt. varð önnur brotlending, og flaug hún
næst aftur í Waltham 20. apríl 1935. Mr. Fields fær flugvélina af-
henta 15. maí 1936.
Fyrsta flug hennar á Islandi var 1. júní 1937. 7. jan. 1938 voru
flugtímarnir orðnir rúml. 700 og 21. sept. sama ár 788:05. 20.
júní 1939 voru flugtimarnir samtals 827:20. Hér varð hún oft fyrir
smáskemmdum.
Síðasta skráða flug flugvélarinnar var 30 min. ílug 15. ágúst
1939, en þá var samanlagður flugtími orðinn 898:55. Hafði hún
þá flogið 222:55 flugtíma yfir íslandi og m.a. farið hringflug um
landið.
Helgi og Niels seldu þeim Birni Pálssyni og Albert Jóhannes-
syni flugvélina og má geta þess, að 5. des. 1937 hóf Björn flug-
nám hjá Agnari Kofoed-Hansen I Bluebird-inum (3:10). Björn
varð þannig fyrsti flugmaðurinn, sem lærði flug á Islandi, og tók
sitt einliðaflugpróf á þessari flugvél. Hún var rifin haustið 1939.
Ljósm.: Björn Pálsson.
BLACKBURN BLUEBIRD IV: Hreyflar: Einn 120 ha. de Havil-
land Gipsy I. Vænghaf 9,14 m. Lengd: 7,05 m. Vængflötur: 22,85
m2. Farþegafjöldi: 1. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 492 kg. Hámarks-
flugtaksþyngd: 747 kg. Arðfarmur: 180 kg. Farflughraði: 112 km/t-
Hámarkshraði: 168 km/t. 1. flug: 1924. Aðrar athugasemdir: Mark
IV. flaug fyrst 1929.
564