Æskan - 01.11.1969, Side 75
Jólin nálgast og allir eru að hugsa um gjafir,
en gjafir kosta peninga og stundum er lítið til að
kaupa fyrir hjá börnum og unglingum sem eru
I skólum. Hvernig væri nú að gefa gjafir, sem
aðeins kosta tima. Hér koma nokkrar hugmyndir
um þess konar gjafir og ekki er að efa að
það eru máske beztu og kærkomnustu gjafirnar.
Mamma myndi ábyggilega verða glöð ef hún fyndi
meðal sinna jólagjafa fallega teiknað og útbúið
kort, sem væri ávísun á 10 uppþvotta á leirtau-
inu, og þá yrði pabbi ekki síður feginn, ef hann
fengi ávísun á korti á bilaþvott, þó ekki væri
nema 3—4 sinnum, og þannig má halda áfram
með hugmyndir um ýmsa hjálp til dæmis ávísun
til ungu hjónana um barnfóstrun nokkrum sinnum
og slátt á blettinum í garðinum. Þið ættuð að reyna
að teikna skemmtileg kort, auðvitað má nota til
þessa falleg jólakort, en hitt gerir ábyggilega
meiri lukku um leið og ávísanir ykkar, sem munu
koma skemmtilega á óvart og gleðja þann sem
i hlut á meira en ykkur grunar.
að lima pappirsrenning, hæfi-
lega langan, að innanverðu í
pokann.
Hafið þið reynt að búa til
„snjókristalla" úr pappír? Það
er dálitið gaman að þvi, eink-
um af því, að maður veit eigin-
lega ekki, hvernig kristallinn
litur út, fyrr en greitt er úr
brotunum. Þunnur teiknipapp-
ir er beztur, silkipappir cr þó
hægt að nota. Klippið fyrst út
ferhyrning úr pappirnum og
hrjótið liann i liorn (sjá mynd-
ir 1 og 2), og síðan er hann
brotinn eins og við sjáum á
myndum 3 og 4. Þá er klippt
burt allt l>að, sem svart er á
myndinni, er örin bcndir á.
Þegar því er lokið og breitt er
úr blaðinu, kemur i ijós krist-
allinn, sem sézt á myndinni.
Talið er, að hægt sé að klippa
út mynztur á þennan hátt á
u. þ. b. 7400 vegu, cn þó er
þess að gæta að klippa ekki
svo mikið, að kristallinn detti
sundur í smáhluta, þegar liann
er breiddur út. Þráður er svo
settur i efsta hornið og er þá
hægt að hengja kristalinn á
jólatréð eða þá út i glugga.
Þessi skrftni jólasveinn er
búinn til úr stórri hnetu, smá
gormum og glitrandi pappír.
Húfa úr pappa og einnig höfuð,
sem svo er málað. Húfan rauð
og andlit gulrautt, nef, munnur
og augu svart og sömuleiðis
hnapparnir. Kjarninn er tekinn
varlega úr hnetunni og hún svo
límd aftur saman eftir að fætur
og hendur hafa verið sett inn
í samskeytin. Athugið vei mynd-
ina, þá sjáið þið hvernig flétta
á silfur- eða gullpappirinn, sem
mynda á hendur og fætur litla
jólasveinsins.
567