Æskan - 01.02.1979, Síða 7
”Æskan“ hefur alltaf veriö
st°lt Reglunnar. Þetta mynd-
ar|ega barna- og unglinga-
blaö 3 ekki sinn líka á Norð-
Ur|öndum. Þar hafa barna-
löö þrifist heldur illa vegna
^yndablaða sem mörg eru
9efin þar út.
En hvaöa efni flytur blaðiö?
að flytur fyrst og fremst
Sö9ur og ævintýri. En sögur
°9 ævintýri eru vinsælt lesefni
arna. Og yfirleitt flytur
”Æskan“ vandað lesefni,
sögur sem hafa siðrænan
°ðskap og glæða góða eig-
^uleika í brjósti æskunnar.
Ævintýrin auka ímyndunar-
aflið og lyfta huga barnanna
uPPyfirhversdagsleikann. Nú
stendur bókin höllum fæti í
samkeppni við aðra fjölmiðla
°9 hefur „Æskan“ mikilvægt
utverk að kynna börnum
0|una á unga aldri.
1 ölaðinu er líka alltaf tals-
Vert efni um bindindismál eins
°9 eðlilegt er. Þar eru börnin
v°ruð við skaðsemi eitur-
uautna. Er þess full þörf þar
SerTl tóbaksreykingar hafa
uukist meðal barna og ungl-
'°9a á síðasta áratug og er
^0r9um mikið áhyggjuefni.
'nnig er au|^jn áfengisnautn
PJ°ðarböl.
Þa flytur hún einnig margar
^saðandi greinar með mynd-
a^1' ^a Þáttur blaðsins miðar |
ÞV| að auka þekkingu |
barna á almennum efnum,
sögu landsins, háttum og
náttúru þess. Einnig fróðleik
um fjarlæg lönd og þjóðir. Þá
er þarna oft sagt frá ýmsum
merkum mönnum.
En nauðsynlegt er að svona
gott og áhrifamikið blað
standi í nánu sambandi við
samtíðina. Ég vildi óska að
blaðið væri í meiri tengslum
við barnabókahöfunda í
landinu og flytti árlega nýjar
sögur eftir þá. Að vísu er þetta
gert nú, en mætti vera meira.
Á þessum tímamótum flyt
ég „Æskunni" og ritstjóra
hennar bestu heillaóskir með
þökk fyrir það efni sem hún
hefur flutt æskulýð landsins
frá upphafi — í áttatíu ár.
Eiríkur Sigurðsson,
fv. skólastjóri.
Ágústa Björnsdóttir.
í tilefni 80 ára afmælisins
sendi ég þér, Æska, mfnar
bestu árnaðaróskir. Jafnframt
þakka ég þér allan þann fróð-
leik og skemmtun sem þú
hefur miðlað mér allar götur
frá því að ég var lítill telpu-
hnokki, tæplega læs. Oft hef
ég dáðst að því og jafnvel
undrast hve vel þér hefur tek-
ist að fylgjast með tímanum, á
það jafnt við um efnið sem þú
flytur og glæsilegt útlit. Þaó
má með sanni segja aó þú
sért síung og þjóðleg að auki,
— og er það von mín og trú að
þeim einkennum haldirðu
framvegis sem hingað til.
Kærar kveðjur,
Ágústa Björnsdóttir.
%
\
Guðmundur Vigfússon.
í áttatíu ár hefur barna-
blaðið Æskan verið einskonar
skóli í tengslum við heimilin í
landinu og gegnt mikilsverðu
uppeldishlutverki. Blaðið hef-
ur flutt börnum og unglingum
margvíslegan fróðleik og
skemmtiefni og sviðið sem
það hefur helgað sér verið
býsna víðfeðmt. Útgefendur
og ritstjórar Æskunnar eiga
miklar þakkir skildar fyrir
hugkvæmni, úthald og dugn-
að við að gefa út og ritstýra
fjölbreyttu æskulýðsblaði
með menningarlegu yfir-
bragði í átta áratugi.
En það sem mestu varðar
er framtíð Æskunnar. Allir
vinir hennar hljóta að óska
henni áframhaidandi þroska
og síaukins gengis á ókomn-
um árum. Barna- og ungl-
ingablað sem setur markiö
hátt hefur jafnan nægum
verkefnum að sinna. Nýir tím-
ar með nýjum viðhorfum færa
að höndum ný áhugasvið og
ný verkefni sem Æskan mun
láta sig varða og sinna undir
vökulli og dugmikilli ritstjórn
og útgáfustjórn. Þar munu
haldast í hendur vaxandi
kröfur lesenda um enn fjöl-
breyttara og betra blað og
góður vilji aðstandenda
blaðsins til að mæta þeim
kröfum með efnismeira og
fjölbreyttara blaði.
Þjóðin öll stendur í mikilli
þakkarskuld við þetta vand-
aða og menningarlega æsku-
lýðsblað sem hefur í átta ára-
tugi staðið af sér alla erfið-
leika og er nú eitt útbreidd-
asta rit landsins. Ég óska ís-
lenskum börnum og ungling-
um til hamingju með afmælis-
barnið. Æskunni sjálfri óska
ég góðs gengis og bjartrar
framtíðar á þessum merku
tímamótum.
Guðmundur Vigfússon,
fv. borgarfulltrúl.
Vladimir Jakúb.
Kæra Æska!
Ertu orðin 80 ára? Nei, það
er ekki hægt. Alltaf ungleg og
falleg, hress og fjörug. Fyrir
okkur, kennara og stúdenta,
sem læra hið fallega íslenska
tungumál í útlöndum, ertu
glæsilegur fulltrúi þess, við
hlökkum stöðugt til að fá að
lesa hvert nýtt blað og við er-
um alltaf vissir um að það
verður fróðlegt og fjölbreyti-
legt að efnisinnihaldi, spenn-
andi og skemmtilegt.
Við sendum þér, kæra
Æska, okkar bestu hamingju-
óskir í tilefni afmælisins og
vonum að þú mundir halda
áfram að gleðja okkur með
ágætu og fróðlegu lesefni um
ókomin ár. Vertu ævinlega
ung og fögur!
Kær kveðja,
Vladimir Jakúb,
prófessor Háskóla Moskvu.