Æskan - 01.02.1979, Page 8
Andrea Oddstelnsdóttir.
Um leið og ég árna Æsk-
unni heilla á þessum merku
tímamótum vonast ég til að
hún haldi áfram eftirleiðis að
vera það sama leiðarljós í fé-
lagslegu, uppeldislegu og
menningarlegu tilliti, eins og
hún hefur verið síðustu átta
áratugi. Æskuna ættu sem
flestir að lesa, enda svíkur sú
lesning engan velþenkjandi
íslending.
Andrea Oddsteinsdóttir.
og bókum hellt úr þeim á
gólfið. í þeirri hrúgu var margt
forvitnilegt, en ekkert held ég
hafi glatt barnshuga minn
meir en Barnablaðið Æskan.
Því langar mig að óska henni
góðs gengis er hún fyllir átt-
unda áratuginn, um leiö og
ég þakka henni ógleymanleg
kynni fyrr og síðar. Undir rit-
stjórn Gríms Engilberts finnst
mér Æskan bókstaflega hafa
yngst með ári hverju enda
hefur hann stýrt henni með
myndarskap og verksýni á
mestu byltingartímum í ís-
lenskri blaðaútgáfutækni.
Kæra Æska, lifðu heil,
ávallt glæsileg, fróðleg og
skemmtileg.
Sigurður Skúlason,
magister.
Siguröur Skúlason.
Skemmtllegar bernsku-
minningar eru tengdar komu
póstsins sem barst okkur úr
Reykjavík austur í Biskups-
tungur einu sinni í mánuði.
Það fannst mér mikill við-
burður í fásinninu að vetrar-
lagi. Töskur voru bornar inn í
baðstofu og bréfum, blöðum
Guðmundur Jónsson.
Þegar ég var ungur fannst
mér að ekkert barnablað gæti
verið betra en „Æskan". Nú
er ,,Æskan“ enn stærri, fjöl-
breyttari og glæsilegri en þá
var. Ef nokkurt barnablað er
betra en ,,Æskan“ var fyrir
hálfri öld, þá er það ,,Æskan"
í dag. Ég sendi þessu ágæta
blaði, ritstjórn þess og les-
endum bestu kveöjur með
þeirri ósk að ,,Æskan" megi
um ókomin ár halda áfram að
veita íslenskum börnum
margskonar fróðleik og holla
gleði.
Guðmundur Jónsson,
söngvari.
Arngrímur Sigurðsson.
Á þessum tímamótum í
sögu Æskunnar er mér Ijúft
að verða við beiðni ritstjórans
um að láta í Ijós álit mitt á
nauðsyn og nytsemi íslensks
barnablaðs.
Satt að segja hef ég ekki
séð Æskuna reglulega nema
seinustu 13 árin, en það er
miklu lengra síóan ég heyrði á
hana minnst. Þegar ég var
barn, var þess ekki kostur á
heimiii mínu að kaupa áskrift
að tímaritum. Barnabækur
voru gefnar á jólunum. Þegar
þær bækur höfðu verið lesn-
ar, varö að leita til Bæjar-
bókasafns Reykjavíkur við
Ingólfsstræti. Þangað kom ég
oft, ýmist einn eða í fylgd Ing-
veldar móðurömmu minnar,
en hún las mikið bækur sem
fjölluðu um andatrú og lífið
eftir dauðann. Hún var góð og
trúuð kona.
Svo að ég víki aftur að
barnablöðunum, sem ég sem
barn þekkti ekki af eigin raun,
hef ég heyrt svo mikiö og vel
um þau talað, að ég hlýt að
draga þá ályktun, að þau hafi
verið kærkomið og hollt lestr-
arefni sem mikið gildi hafði
fyrir uppvaxandi kynslóð.
Á þeim tímum sem við nú
lifum, álít ég að barnablöð og
raunar hvers konar unglinga-
blöð með mannbætandi frí-
stundaefni séu afar mikilvæg.
Frítími jafnt fullorðinna sem
Ibarna er nú meiri en áður, og
sýnist mönnum reyndar sitt
hvað um þá þróun. En hvort
sem frítími er mikill eða lítill,
hlýtur það að skipta miklu
máli, hvernig honum er varið.
Ég tel það ekkert vafamál, að
það sé mikil þörf fyrir mynd-
arlegt, uppbyggilegt barna-
og unglingablað á íslandi. í
þessu sambandi hljóta augu
almennings að beinast að
Æskunni. Vegna aldurs síns
Iog útbreiöslu hefur þetta
barnablað mesta möguleika
til að gegna góðu og þakkar-
verðu hlutverki. Þótt það sé
auðvitaö góður siður á tylli-
Idögum að fara fögrum orðum
um afmælisbarnið, þá er það í
góðri meiningu gert að benda
á, að Æskan þarf að gera átak
í því að laða að sér starfs-
krafta, sem geta séð blaðinu
fyrir eftirsóknarverðu efni. Af
Inógu er að taka. Það verður
líka að vera svigrúm til að
koma efninu til skila á mynd-
arlegan hátt. Vitanlega verður
að sýna sparsemi og aðgæslu
við þennan rekstur sem ann-
an, en svo má of fast um
halda, að það bitni fyrr eða
síðar á blaðinu sjálfu. Þetta
ber að forðast.
Að endingu óska ég Grími
Engilberts ritstjóra og Krist-
jáni Guðmundssyni fram-
kvæmdastjóra, svo og starfs-
1 fólkinu öllu, til hamingju á af-
mælinu. Ég óska þess, að
Æskan haldi áfram að koma
i út enn myndarlegri og eftir-
j sóknarveróari en áður.
Arngrímur Sigurðssori-
o
Blað, sem nýtur vinsælda fólks á öllum aldri, er vel úr garði gert.