Æskan - 01.02.1979, Blaðsíða 9
NOKKUR ORÐ UM
PRENTIÐNAÐINN
SEINNI HLUTI
Á miðöldum skrifuðu klausturmunkar af frábærri þol-
gæði handrit sín, sem við aldrei fáum nægilega veg-
samaö, Fyrir þeim vakti ekki að Ijúka verki sem fyrst. Starf
þeirra var guðsþjónusta og þeir leystu allt svo vel af
hendi, sem þeim framast var unnt án tillits til þess hvort
nokkur kynni að meta verk þeirra eða ekki.
Elzevieren ættinni í Amsterdam eigum við að þakka
iitla brotið. Þá uróu til bækur, sem menn geta hæglega
stungið í vasann og farið með hvert á land sem þeir vilja.
Á 18. öld fékk bókin á sig þann svip sem hún hefur enn
þann dag í dag.
Strax og við erum lítil eru helstu atburðir venjulega
skrifaðir í Dagbók barnsins sjálfs, síðan fáum við bækur
með litmyndum og svo auðvitað ævintýrin, sem að vísu
þarf að lesa fyrir okkur áður en við sjálf kunnum aó lesa.
Seinna þegar við kunnum bæði að lesa og skrifa er ekki
óalgengt að semja ævintýrin sjálf og ennfremur að teikna
með þeim myndir.
Síðan koma að sjálfsögðu skólabækurnar hver af
annarri. Og auðvitað skáldsögurnar einnig, bæði inn-
iendar og þýddar bækur, að ógleymdum öllum vísinda-
bókunum, sem veita svör við svo mörgum spurningum.
Hægt er að töfra fram með bókum öll heimsins lönd, öll
^aara ,,Æska"!
e9 heyri sagt að þú sért að
Verða áttræö, en ég trúi því
varla, því að mér finnst þú
alltaf jafn ung. Ég kynntist þér
fyrst fyrir 63 árum, eignaðist
þig, þegar ég var tíu ára. Þá
strax varðst þú mín besta
eign. Ég safnaði blöðum þín-
um og lét svo binda þau inn,
er tímar liðu. Ég hélt áfram að
kaupa þig, þótt ég yrði full-
orðin, handa börnum mínum
og barnabörnum, sem öllum
þótti gaman að þér og þótti
vænt um þig.
Nú þakka ég þér kærlega
fyrir öll okkar samskipti í öll
þessi ár og óska þér af alhug
langra lífdaga og góðs gengis
geymd í hinum stóru bókasöfnum. Ekkert er til, sem hef-
ur eins góð skilyrói til þess að tengja saman þjóðir heims
eins og bókin. Skáld og hugsuóir margra landa tala til
okkar í þýðingum, segja okkur frá landi sínu og fólki. Rit
skálda okkar fara á kreik út um heiminn og lýsa hugsun-
um okkar og séreinkennum. Bókin gegnir því miklu hlut-
verki í því að sameina þjóðir.
Katrín Guðjónsdóttir.
í framtíðinni, að þú haldir
áfram að gleðja og þroska ís-
lenska æsku og kennir henni
allt gott og fallegt og hjálpir til
að gera börn og unglinga að
heilbrigðu og góðu fólki. Svo
kveð ég þig með bestu ósk-
um!
Þín einlæg,
Þóra Marta Stefánsdóttir,
kennari.
Jón Sigurðsson skrifar:
Kæra Æska! Ég hef keypt
Æskuna í 20 ár og finnst mér
hún alltaf jafngóð. Auk þess
er ég alveg sammála því, að
hún sé besta blaðið fyrir börn
og unglinga. Ég hef komist að
raun um að sumir unglingar
telja það barnalegt að kaupa
blaðið en reykja í staðinn, en
þetta er mesti misskilningur.
Það er einmitt barnalegt að
reykja. Ég held að allir sem
gætu keypt Æskuna ættu að
gera það.
Framhald.
7