Æskan

Volume

Æskan - 01.02.1979, Page 10

Æskan - 01.02.1979, Page 10
ÆSKAN AKUREYRI Texti og myndir: Karl Helgason. M. I eð hálfum huga sest ég niður til að skrifa um Akureyri. Því það? Jú, verið getur að minningar frá fjögurra vetra skóladvöl þar flykkist fram í hugann, læðist milli lína, letrist jafnvel á blað. Ég kynni til að mynda að lýsa hástemmdum orðum gullnum bjarma kvöldsólar, ilminum af nýútsprunginni björk á vori eða marglitu haustlaufi, já, eða hinni sérstöku „stemningu" í ,,bæjarferöum“ og bardaganum við tröppurnar — að hoppa upp kirkju- tröppurnar á öðrum fæti. . . Ah, ég vissi að mér myndi verða hált á þessu . .. hált, já . . . skautasvell á Pollinum, skíðabrekkur í Hlíöarfjalli og ...og . . . Nei, nú verð ég að taka mig á og hrista af mér minningarnar, fegraðar af fjarlægð í tíma. Víst var stundum vitlaust veður og voðalega kalt. Lík- lega er best að grípa til hins óbrigðula ráðs til að rýma burtu of mikilli róm- Gestur Pálsson. antík — að hugsa til hinna hræðilegu stunda við skólaborðið; þið vitið, fyrsta tíma á mánudegi, síðasta tíma á föstudegi . .. eöa var þá líka kennt á laugardögum . . . allratíma réttfyrirfrí og svona undir vorið . . . Mál er að vakna, Gróa ,,Nú er mál að vakna Gróa", sagði langafi minn, greip um það er hann hugði vera rúmstokk og ætlaði að sveifla sér fram úr. En það var þá ó- vart borðstokkurinn á báti á miðjum Breiðafirði — hann hafði lagt sig í erfiðri ferð — og bátsfélagar hans gátu með naumindum forðað því að hann stykki fyrir borð. Ég tek undir með langafa; mál er að vakna frá minningunum og hefjast handa við verkefnið, að skrifa eitt- hvað um Akureyri sem lesendur Æskunnar gætu hugsað sér að glugga í. 8

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.