Æskan - 01.02.1979, Blaðsíða 20
VERÐLAUNASAMKEPPNI
FLUGLEIÐA OG ÆSKUNNAR 1979
FJÖLSKYLDUBOÐ
á ÆSKAN w
í tilefni af 80 ára afmæli Æskunnar á
þessu ári efna Flugleiðir og Æskan til
veglegrar verðlaunasamkeppni, og í þetta
sinn eru 1. verðlaun fjögurra daga ferð til
Kaupmannahafnar fyrir vinningshafa, for-
eldra og eitt systkini. Hér er nýmæli á
ferðinni. Fjölskyldan getur í sameiningu
notið þess að skoða Kaupmannahöfn,
þessa glaðværu borg við sundin. Nú er til
mikils að vinna. Sendið svör svo fijótt sem
mögulegt er, því dregið verður úr réttum
lausnum í maí n. k. Auk Kaupmannahafn-
arferðar verða flugferðir innanlands og
bækur í verðlaun til þeirra sem hljóta
2.—10. verðlaun. Allir lesendur blaðsins
að 15 ára aldri hafa rétt til þátttöku í
keppni þessari. Verðlaunin til Kaup-
mannahafnar verða dregin út að við-
stöddum fulltrúa borgarfógeta. — Svör
berist fyrir 15. maí n. k. Nú er til mikils að
vinna. Hvaða fjölskylda fær boðið til
Kaupmannahafnar, og hverjir fá flugferðir
um ísland og góðar bækur?
Nú er það í 21. sinn sem Æskan og
Flugfélag íslands og nú Flugleiðir, gang-
ast fyrir spurningakeppni.
Nú er til mikils að vinna! Hvaða fjöl-
skylda fer til Kaupmannahafnar? Hverjir
fá flugferðir um ísland? Hverjir fá góðar
bækur?
5KAN .
ol
^ ÆSKAN
^ ÁRA
ÆSKAN er áttræð. Það er hár aldur á íslensku
tímariti. En á ÆSKUNNI eru engin ellimörk. Blaðið
er síungt, fylgist vel með tímanum og heldur aukn-
um lesendahópi í æ kröfuharðara þjóðfélagi.
18