Æskan - 01.02.1979, Page 23
ÞINGVELLIR OG NÁGRENNI
•’lngvellir.
Hjálp í ÞJórsárdal.
Gullfoss er kunnasti foss á íslandi,
enda einn sá fegursti. Hann er ofar-
lega í Hvítá og fellur í tveim þrepum,
samtals 32 metra hár, ofan í allt að 70
metra djúpt gljúfur, sem í senn er
mjög hrikalegt og fagurt.
Geysir er kunnasti goshver í heimi,
enda hafa allir aðrir goshverir í heim-
inum verið kallaðir eftir honum. Gos
úr Geysi hafa náð 40— 60 metra hæð,
en lítil virkni hefur verið í honum síð-
Álftavatn.
ustu árin. Aðrir hverir eru í kringum
Geysi og kunnastur þeirra er Strokk-
ur. / •
Skálholt er einn merkasti sögu-
staður á landinu. Þar var biskupsstóll
frá 1056 til 1796. Ýmsar gamlar
sögulegar minjar má sjá þar ennþá,
svo sem jarðgöngin sem lágu forðum
milli dómkirkjunnar og bæjarhúsanna
og skólans.
Framhald.
í nóvember s. I. var haldið heims-
meistaramót í Master Mind spili í
Englandi. (slenskur þátttakandi,
; Tómas Gíslason, stóð sig afburða vel
og náði þriðja sæti í keppninni. Mótið,
sem er hið fyrsta sinnar tegundar,
stóö í tvo daga. Þátttakendur voru
ellefu frá jafnmörgum löndum. — Eitt
dagblaðanna hafði samband við
Tómas og spurði hann um þátttöku
hans í mótinu.
— Undankeppni var haldin í okt. s.
sagði Tómas, en þar kepptu tuttugu
roanns. Mér gekk mjög vel, en þetta er
fyrsta keppnin í Master Mind, sem
haldin er hér á landi. Bretlandsmeist-
arakeppni hefur verið haldin nokkrum
sinnum, en keppnin í Englandi er
fyrsta heimsmeistarakeppnin.
— Hvernig gengur Master Mind
spilið fyrir sig, Tómas?
— í stuttu máli sagt er það þannig,
að tveir keppendur spila hvor á móti
öðrum. Annar stillir upp kúlum í fjór-
|um litum eða færri af sex mögulegum
á bak við hlíf — eða skilur eftir eyðu,
eina eða fleiri. Hinn getur sér síðan til
um uppstillinguna og fær stig hjá
andstæðingi sínum fyrir hverja rétta
lausn.
Tómas Gíslason.
NÁÐI ÞRIÐJA S/ETI
í KEPPNI
— Hvernig var fyrirkomulagi
keppninnar í Englandi háttað?
— Fyrstu þrjár umferðirnar voru
hópkeppnir. Fimm leikir voru í hverri
umferð og stig gefin fyrir hverja
þeirra. Því næst voru undanúrslitin,
en það voru þrír leikir. Þar féllu sjö
manns út. Hinir fjórir, sem þá urðu
eftir, urðu síðan að keppa innbyrðis til
lokaúrslita.
Tómas náði 118 stigum í keppninni
og lenti í þriðja sæti. Fékk hann gull-
styttu og 100 sterlingspund í verð-
laun.
í fyrsta sæti varð Bretinn John Ser-
jeant, sem er 16 ára gamall, með 154
stig. Næst á eftir Tómasi komu kepp-
endur frá Nýja-Sjálandi, Ítalíu, Pól-
landi, Noregi og Ástralíu.
9HB
M
21