Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.02.1979, Qupperneq 33

Æskan - 01.02.1979, Qupperneq 33
 GOSI datt honum gott nafn í hug. „Gosi, það er best, að hann heiti Gosi." Viðfinnur og Tindiltá ætluðu nú aó fara að sofa, það sem eftir var nætur. En þá fór svartálfurinn Nóri að syngja mjóum rómi. Og áður en lagið var á enda, heyrðist hark á hefilbekknum, þar sem Gosi lá. Hann var farinn að hreyfa hendur og fætur. Viðfinnur og Tindiltá vissu ekki fyrr til en hann stökk 3 fætur, hoppaöi niður á gólf og dansaði fram og aftur. Viðfinnur varð frá sér numinn af gleöi. Hann hljóp á eftir Gosa og ætlaði að taka hann í fang sér. En hrekkjalómurinn litli stökk upp á stól og sló um si9 með höndum og fótum, og munaði minnstu, að hann slægi smiðinn í andlitið. „Gosi!" kallaði Viðfinnur og bar hendurnar fyrir andlitið. Honum ofbauó alveg. Þá hoppaði Gosi niöur af stólnum, og Viðfinnur og hann dönsuðu saman á gólfinu í smíðastofunni, þangað til báðir voru orðnir uppgefnir og lögðust upp í rúm og sofnuðu. Um morguninn vaknaði Gosi á undan Viðfinni og fór á fætur til þess að liðka á sér trénaða skankana. „Ég er lifandi," kallaði Gosi. „En skyldi ég nokkurntíma verða eins og aðrir drengir?" ,,Já,“ svaraði svartálfurinn Nóri, sem var vaknaður líka. „Ef þú ert alltaf góður og þægur og ferð í skóla á hverjum degi." „Þá ætla ég að verða góður og þægur og ganga í skóla," sagði Gosi. „Mig langar svo mikið til að verða eins og aðrir drengir." Seinna um morguninn, þegar Gosi var að leggja af stað í skólann, tók Viðfinnur einu krónuna, sem hann átti, upp úr vasa sínum og gaf honum hana fyrir stafrófskveri. Síðan lagði Gosi af stað. „Það er best, að ég fari með þér, ekki mun af veita," sagöi svartálfurinn Nóri. En þó hann væri lítill og léttur á sér, varð hann að herða sig til þess að hafa við Gosa, sem skálmaði áfram. Gosi var ekki kominn nema stuttan spöl, þegar 27

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.