Æskan - 01.02.1979, Qupperneq 38
frímerki 1978
Tæpum mánuði síðar kom
svo sjöunda frímerkið út, og
var það með mynd af Skeið-
arárbrú. Verðgildi þess er 70
krónur og gildir sem burðar-
gjald fyrir venjulegt sendibréf
þegar þetta er skrifað. öll
þessi frímerki voru prentuð í
Sviss og þá ýmist með svo-
kallaðri djúp-prentun eða
sólprenti. Annars kynnir
póststjórnin þetta frímerki á
þessa leið:
Vegagerð ríkisins heyrir
undir samgönguráðuneytið
og sér um gerð og viðhald
vega, sem ætlaðir eru al-
menningi til frjálsrar umferðar
og kostaðir eru af fé ríkis eða
sýsluvegasjóða. Árið 1776
kemur konungstilskipun um
vegi, brýr og ferjur. Fyrstu
vegalög, sem marka tímamót
eru frá 1894. Með vegalögum
frá 1924 kemur sjálfstæð
stjórn vegamála og með
vegalögum frá 1963 fær
vegagerðin sjálfstæða tekju-
stofna; bensíngjald, bifreiða-
skatt o. fl. Þar eru vegir flokk-
aðir eftir umferðarmagni og
tala byggðra býla látin ráða,
hvaða vegir mega teljast
þjóðvegir.
Frímerkið, sem Póst- og
símamálastofnunin gefur nú
út, sýnir mynd af Skeiðarár-
brú, en 1974 var lokiö lagn-
ingu hringvegar umhverfis
landið, að mestu meö malar-
slitlagi og brúm á öllum ám.
Þegar þetta er ritað (17.
10.) hafa komið fréttir af því,
að von sé útgáfu þúsund-
króna frímerkis með mynd af
eldfjallinu Heklu. Ekki hefur
enn komið auglýsing frá Póst-
og símamálastofnuninni um
útgáfuna, en myndir og
greinar hafa komið um þetta
væntanlega merki í dagblöð-
unum. Mynd merkisins er af
málverki Jóns Stefánssonar,
sem hann nefnir „Hraunteig-
ur við Heklu".
[ árbók Ferðafélags (slands
1945 segirsvo:
„Tungan milli Hraunteigs-
lækjar og Rangár er öll vaxin
hinum fegursta birkiskógi og
nefnist Hraunteigur. Þar er
víðast djúpur jarðvegur, vaf-
inn grasi bæði í lundum og
rjóðrum, en æði mishæðótt,
því aö hólótt helluhraun er
undir. Vötnin beggja vegna
falla í strengjum og smáfoss-
um eftir fremur grunnum
gljúfrum. Bæði eru tær og
nístandi köld, og fleira er á-
þekkt með þeim, greinilegt
ættarmót, þó að stærðar-
munur sé allmikill. Undan
miöjum Hraunteigi er skógi
vaxinn hólmi á fossbrún í
Rangá. Hann nefnist Klapp-
arhólmi. Auðvelt er að vaða út
í hann að austanverðu, en ó-
fært að utan. Neðar í ánni er
annar hólmi, minni og skóg-
lítill. Allvíðsýnt er í Hraunteigi,
þar sem rjóður eru á hraun-
hólum eða grisjar gegnum
birkilimið. En fegurst er að sjá
til austurs, þar sem Hekla
gnæfir hátt upp yfir öll önnur
fjöll, í hæfilegri fjarlægð til
þess að hvort tveggja njóti
sín, hið tígulega yfirbragð og
litbrigðin í hlíðunum. — Kot-
býli eitt var í Hraunteig um
fárra ára skeið á síðustu öld.
Fjölfarnasta leið til Heklu
liggur um Hraunteig endi-
langan, og þar er óhjákvæmi-
legt að staldra við vegna
náttúrufegurðar. Margur sá
sem ætlaði til Heklu, hefur
orðið að snúa viö vegna þoku
á fjallinu. En enginn skyldi
snúa við fyrr en í Hraunteig.
Fegurð hans eins er langrar
ferðar virði, jafnvel þótt
dimmviðri byrgi alla útsýn.“
Jón Stefánsson listmálari
fæddist 1881 á Sauðárkróki
og andaðist 1962. Hann
stundaði menntaskólanám í
Reykjavík en hélt síðan til
Kaupmannahafnar og hóf
verkfræðinám við háskólann
þar, en sneri sér fljótlega að
málaralistinni og innritaðist i
listaskóla haustið 1905. Árið
1919 komu málverk hans fyrst
fram á sýningu og vöktu þeg'
ar mikla athygli. Fyrst framan
af listaferli sínum málaði Jón
Stefánsson aðallega manna-
myndir og blómamyndir en
síðar sneri hann sér að
landslagsmyndum og var hin
stórbrotna íslenska náttúra
höfuðviðfangsefni hans-
Hann fékkst einnig mikið við
að mála dýr og felldi þau
þannig inn í landslagið, aó
þau urðu nauðsynlegur hluti
af heildinni. Jón Stefánsson
málaöi aldrei annað landslag
en íslenskt, ef undan eru
skildar nokkrar æfingamynd-
ir.
Frímerkið er að verðgil^
1000 kr. og eru 20 stykki í
hverri örk. Hæsta frímerkja'
verðgildi í umferð nú er 250
kr. og var það gefið út í mars
ÆSKAN hefur sáð í hjörtu landsins barna í 80 ár
þeim frækornum sem hafa gefið góðan ávöxt og
uppskeran er mikil og birtist jafnvel á ólíklegustu
stöðum.
32