Æskan - 01.02.1979, Qupperneq 39
- ' — .v s-
bréftilæskunnar
Aðalbjörg Garðarsdóttir,
Ha*narfirði, skrifar: Æska
^’n. Ég þakka þér fyrir allan
Þann fróðleik og skemmtun,
®em þú hefur flutt mér og
r®örum mínum. Æskan er
er til á heimilinu frá því árió
1948. Ekki má ég gleyma því,
eern hann bróðir minn annar
að mig um aö þakka þér fyr-
’ 09 Það er myndasagan um
hann Bjössa bollu.
Erla Óskarsdóttir, Reykjar-
óli> skrifar: Kæra Æska mín.
9 Þakka þér fyrir þær mörgu
anasgjustundir, sem þú hefur
Veitt mér á undanförnum ár-
Urn- Frá því ég hef nokkuð
9etað lesið, hef ég beðið þín
rneð eftirvæntingu. Þú hefur
avallt fært mér nýtt lestrarefni.
Jón Halldórsson, Reykja-
vík, skrifar: Ég þakka Æsk-
unni fyrir allar þær skemmti-
legu stundir, sem hún hefur
veitt mér á undanförnum ár-
um, en ég hef verið kaupandi
hennar í síðastliðin 5 ár. En
það, sem mér finnst verst, er
hvað blaðið er lítið í hverjum
mánuði, þegar lítið annað en
erlend hasarblöð og þess
háttar efni er fáanlegt handa
okkur unglingunum. Væri
nauðsynlegt að eigendur
blaðsins, sem er Stórstúka
íslands, sæi sér nú fært á 80
ára afmæli blaðsins, að
stækka það, og þar með
bjarga okkur frá soranum,
sem alls staðar er boðinn
fram.
Halla Sigurðardóttir, Ár-
nessýslu, skrifar: Ég þakka
þér kæra Æska, fyrir allar
þínar fræðandi greinar, sög-
ur, kvæði og hinar skemmti-
legu myndasögur, og allt gott
sem þú hefur gefið mér á
undanförnum árum.
Gunnlaugur Baldursson,
(safirði skrifar: Ég hlakka
alltaf til, þegar Æskan kemur
út. Sérstaklega þykir mér
gaman að smásögunum og
öllum fallegu myndunum,
sem prýða hvert blað. Ég hef
mikinn áhuga á frímerkjum,
og ættu þættirnir um þau að
koma oftar.
Halldóra Jónsdóttir, Akur-
eyri, skrifar: Kæra Æska. Ég
sendi þér mínar bestu kveðjur
og óska þér alls góðs á kom-
andi árum. Ég þakka hiö fjöl-
breytta efni, sem blaðið færir
mér, og sérstaklega vil ég
nota tækifærið og þakka
þann mikla fróðleik, sem er í
þættinum „Hvar lifa dýrin?"
Að endingu sendi ég mínar
bestu kveðjur til ritstjórans,
framkvæmdastjórans og ann-
arra, sem leggja fram starf sitt
í að gera Æskuna að
skemmtilegasta blaði lands-
ins.
Ásta M. Sigurðardóttir,
Vestur-Landeyjum, skrifar:
Kæra Æska. Ég þakka þér
fyrir allar góðu og skemmti-
legu sögurnar þínar. Sérstak-
lega Tarzan. En sú saga er
svo spennandi að ég get varla
beðið eftir næsta tölublaði.
Ég vil þakka ritstjóra fyrir frá-
bæra fræðslu, og öllum sem
að blaðinu standa.
Það er skylda hvers ís-
lendings sem vill vinna að
menningarmálum að auka
útbreiðslu ÆSKUNNAR á
80 ára afmælinu.
1972. Þá var almennt burðar-
9laid bréfa af fyrsta þyngdar-
lokki innanlands kr. 7.00, en
nu er samsvarandi burðar-
9Jald kr. 70.00. Þegar 50 kr.
rirnerki kom fyrst út, en það
Var árið 1958, var framan-
9remt burðargjald kr. 2.25 og
e9ar 100 kr. frímerki kom
Vst út 1965 var burðargjaldið
r; 4.50. Miðað við hlutfallið
^1*1' elmenna bréfburðar-
Sjaldsins 1972 og 250 kr. frí-
^©rkisins ætti hæsta verð-
J|ldið nú að vera 2450 kr.
Iöað við sama hlutfall á ár-
hnurn 1958 og 1965 hefði
®sta verðgildi átt að vera
1555 kr.
þ°rf mun vera núorðið fyrir
haf!v verö9lidi’ °9 eru Þa
Se 'r ' ^u9a stærri bögglar,
la ncl'r' flugpósti til fjarlægra
tMn a’ f- d. hangikjötspakkar
Astralíu! G. H.
1979 — ár barnsins —
ár ÆSKUNNAR
ÆSKAN er ómissandi í
þroskaferli þjóðarinnar
ÆSKAN er áhrifamikiö blað og engin ellimörk á
því að finna. Þrátt fyrir þennan háa aldur er ÆSKAN
alltaf jafn ung. Minnist þess, að eftir því sem áskrif-
endum ÆSKUNNAR fjölgar, verður blaðið stærra
og fjölbreyttara. Á þessum merku tímamótum í sögu
blaðsins er takmarkið, að ÆSKAN komist inn á
hvert barnaheimili landsins. Hefjumst nú öll handa
og látum nýja áskrifendur streyma til blaðsins.
Minnist þess, að ÆSKAN er stærsta barna- og
unglingablað landsins. Sýnið jafnöldrum ykkar
þetta glæsilega blað og bendið þeim á að gerast
áskrifendur strax!
33