Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.02.1979, Qupperneq 44

Æskan - 01.02.1979, Qupperneq 44
ustu varfærni og yfirgefur hann ekki, en eftir fyrstu vik- una getur hann alls staðar fylgt henni eftir. Dádýrið er aðeins minna vexti og hefur annað horna- lag, en er að öðru leyti eins í háttum. Það er jafn hratt í ferðum og skynnæmt og hjörturinn. Hreindýrið og elgsdýrið eru hins vegar það frábrugðin, að þeirra verður sérstaklega getið. Elgsdýrin eru risar hjartar- fjölskyldunnar. Það eru stór og þunglamaleg dýr, með sérstaklega sterkt höfuð og hornalag, sem hjá karldýrinu geta orðiö 20 kg á þyngd, en kvendýrið hefur ekki takka á hornunum. Áður fyrr var elgsdýrið út- breitt um allan norðurhluta jaröar og algengt í Danmörku, Þýskalandi og Englandi. Nú hm, ft ■p" & wBT. 60 n V- ' V- \ J !/ t. 1 WO 1 o a íi 0 o ao 1 ?0 1 60 Elgsdýrið var fyrr á tímum miklu víðar á ferðinni en nú þekkist. Þetta kort sýnir takmörkin í Evr- ópu þar sem elgsdýr eru kunn, en þó allvíða orðin mjög sjaldgæf, og svo útbreiðslu þeirra í Asíu og N.-Ameríku. þekkist það í Evrópu aðeins í Noregi og Svíþjóð milli 59° og 67° nbr. og í A.-Evrópu. í N.- Ameríku eru einnig til elgsdýr, sem eru mjög náskyld tegund gamla heimsins. Elgsdýrið leitar sér heim- kynnis í eyðiskógum, þar sem vörn er og mýrlendi. Það syndir frábærlega vel, og vegna fótalags, með breiðar klaufar, sem það getur spennt út, kemst þetta þunglamalega dýr auðveldlega yfir mýrarfen, þar sem önnur dýr og menn myndu óhjákvæmilega sökkva niður. Elgsdýrið er mjög skynsamt og bjargar sér auðveldlega við erfiðar kringumstæður. Það getur verið hættulegt að lenda í útistöðum við karldýr- ið, en kvendýrið verður þó miklu harðara af sér, meðan það er að vernda kálfa sína, en sýnir þeim aftur á móti mikinn kærleika og um- hyggjusemi. Hreindýr Heimkynni hreindýrsins eru hæstu norðurslóðir. Það þekkist í öllum löndum norð- an við 60° nbr., en á stöku stað fer það nokkru sunnar. Ótamið og sjálfalið þekkist það enn í N.-Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og á Lapplandi. Ennfremur í Síberíu, á íslandi, Grænlandi og í N.-Ameríku. f Noregi heldur það sig ekki í skógunum, en í hörðum vetrarkulda Síberíu sækir það skjóls í þeim. Á vorin fyllast þessir skógar hins vegar af mýflugum og skordýrum, sem hrjá hreindýrin mjög. Þá yfir- gefur það skógana og sækir norður á bóginn út í hinar víðáttumiklu freðmýrar. Dýrin eru mjög horuð og illa útlít- andi um þetta leyti eftir flugnabit, en þegar þau snúa aftur til skóganna í ágúst og september, eru þau feit og vel útlítandi. Þessi ferðalög eru mjög reglubundin og þær leiðir sem þau fara eru ávallt þær sömu. Það er kunnugt að hreindýr eru einnig tamin og mikið ræktuð. Lappar eiga stóra flokka af þeim og ríkur Lappi á stundum mörg þúsund þeirra í einu. Dýrin eru þeim til ómetanlegs gagns. Þeir fá af þeim mjólk og kjöt, jafnframt því sem þeir nota þau fyrir dráttardýr fyrir sleða sína. f Síberíu eru sterkustu dýrin einnig notuö til margskonar ferðalaga.

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.