Æskan - 01.02.1979, Qupperneq 46
1. Ríkisþinghús í Bandaríkjunum
eru stundum nefnd „Capitol''.
Hvert má rekja uppruna þess
orðs?
2. Hvað er hæsti fjallstindurinn á
tunglinu hár?
3. Hvenær var Forngripasafnið
stofnað?
4. Hver er stærstur kaupstaöur á
Austurlandi?
5. Hver er frægasti Korsíkumaður-
inn, sem sögur fara af?
6. Hvar er Djöflaeyjan?
7. Hvar er lýðveldið Andorra?
8. Hvað er klukkan í Boston, þegar
hún er 12 á hádegi á fslandi?
9. Hvað eru ristarbeinin mörg á
hvorum fæti í manninum?
10. Hvað heitir lengsti fjörður Dan-
merkur?
11. Hver er vindhraðinn, þegar talið
er að sé ofviðri?
12. Hvert var fyrsta skip Eimskipa-
félags íslands?
13. Hvenær var Jón Helgason,
biskup?
14. Hvenær var rithöfundurinn Jón
Trausti uppi og hvað hét hann
réttu nafni?
15. Gáta:
Lyktargóður, þunnur, þéttur,
þefvís, beinn, hár áleitinn,
svartur, ómóður, lipur, léttur,
Lævísasti heilsu hvinn?
jn>|Á0y :e}B9 gi. —
'uossnu6ei/\| jnpunujQng jujeu n}}0J
l?ú ‘8L6U —£Z8L n - 8C61- —Z L6 U
?Jd Cf - ssoínno zi -
>|0s e uj oe-92 'll — •jnQjoíjeujn
'0L — n|pj qb 6 s||\/ '6 — 'ju6jow <?e
8 'l>l '8 — Jeueds 6o spue|>|>|ejy j|||W
wniiofiesuajAd j L — n>|ij0wv-JnQns
puojisjngjou e nuomg-n^suoJd
puojjs JNÁj un ’9 — '!l>)!W uo0|ode|\|
'S — jnQBisdne>|S0N 't’ — '6981 QMV
0 — 'w 0028 wn '2 — Q!wo>| Qjujeu
unw ueQBcj wn!|0}!deo }S!pu}0U
nuj)B| e wes ‘Q!>|!W ))j0 )oi)SJ0)!dnp l!)
jba nujo) iuum 6joqewQH | ■) :joas
,,Jæja," sagði risinn. ,,Þið eruð lítil, greyin, en . . . Þið
eruð auðvitað hrædd við mig. Eruð þið ekki hrædd?"
Aggie svaraði: ,,Ég er hrædd en Rex bróðir minn er
ekki hræddur við nokkurn skapaðan hlut. Hann er svo
hugrakkur."
„Er það satt?" spurði risinn. „Það er gott ef svo er. Ég
er risinn Hrani og kem úr Svartaskógi. Allir eru hræddir
við mig. Þið ættuð að sjá hve óttaslegnir menn flýja. Vitið
þið af hverju ég er kominn?"
Rex svaraði: ,,Ég hef frétt að höll yðar í Svartaskógi sé
hrunin, og að þér séuð hingað kominn til þess að taka
höll hertogans til íbúðar.
„Alveg rétt," svaraði risinn. „Ég hef það í hyggju. Þú
ert greindur drengur. Það er hægt að tala við þig um
þetta mál. Álíturðu að höll hertogans sé heppileg íbúð
handa mér?"
Rex svaraði: „Ég álít að þér komist ekki inn í þá höll."
Risinn svaraði: „Ég get látið hækka útgöngudyrnar."
Rex sagði: „Herbergin eru of lítil handa yður. Þau voru
nógu stór fyrir hertogann og hans fólk. En um yður er
öðru máli að gegna. Þér eruð svo stór vexti."
Risinn sagði: „Ég gæti rifið skilrúm milli herbergja og
fengið stórar stofur. Ég gæti sofið á gólfinu. Það er
þægilegra að taka höllina en byggja nýtt hús eða nýja
höll í Svartaskógi."
Rex sagði: „Höll hertogans stendur við ána. Það er því
gólfraki í henni, og ógerningur að sofa á gólfinu."
„Það kom mér ekki til hugar," mælti risinn. „Ergólfraki
í höll hertogans?"
Rex svaraði: „Já, það er raki á neðstu hæðinni. Að-
stoðarbryti hertogans kemur oft hingað til að finna föður
minn, og hann hefur sagt okkur frá rakanum.
Risinn mælti. ,,0g ég sem er vanur við rakalausa íbúð
myndi ekki þola rakann. Ég fengi gigt í bakið."
Rex sagði: „Það er hætt viö að þér fengjuð inflúensu
og hitasótt."
„Inflúensu," sagði risinn og andvarpaði. „Nei. Ég
þakka fyrir. Ég vil heldur reisa höll mína úr rústum í
Svartaskógi."
Að svo mæltu setti risinn börnin niður, og hélt áleiðis til
Svartaskógar.
Þegar risinn var farinn kom fólk upp til barnanna til að
spyrja þau frétta.
Faöir barnanna mælti: „Það er nú enginn raki í höll
hertogans nema í nokkrum kjallaraklefum, er snúa út að
ánni. Þessir klefar voru hafðir handa föngum. En her-
toginn er svo góður að hann lætur engan mann í fang-
elsi. En það var gott að risinn var hræddur við rakann.
Það er ekki hægt að ásaka Rex fyrir ósannindi. Höllin er
ekki rakalaus."
Svo kom hertoginn. Er hann heyrði söguna um það
hvernig börnin sneru risanum við, varð hann mjög hrif-
inn. Hann bauðsttil að kosta uppeldi systkinanna. Frá því
dvöldu þau ýmist í höll hertogans eða heima hjá for-
eldrunum. Rex og Aggie uxu upp og urðu hinir nýtustu
borgarar í þjóðfélaginu. Risinn kom aldrei aftur.
___________________-J
J
40