Æskan - 01.02.1979, Síða 50
HVAÐ viltu
RÖNTGENTÆKNIR
I bréfi til þessa þáttar er beðið um upplýsingar um
röntgentækna-nám og spurt um í hvaða skóla sé numið.
Röntgentækna-skólinn hefur víst ekkert eigið hús-
næði, en er til húsa í Borgarspítalanum og Lands-
spítalanum.
Skólanum er ætlað að tæknimennta fólk til aðstoðar
við röntgengreiningu svo að það geti aðstoðað rönt-
genlækna og framkvæmt sumar tegundir röntgenrann-
sókna eftir fyrirmælum.
Inntökuskilyrði skólans eru:
1. Umsækjandi skal vera fullra 17 ára.
VERÐA?
2. Umsækjandi skal hafa lokiö grunnskólaprófi,
landsprófi miðskóla eða gagnfræðaprófi með fyrstu
einkunn í stærðfræði, eðlisfræði, íslensku og einu
erlendu máli.
3. Umsækjandi, sem lokið hefur stúdentsprófi,
hjúkrunarprófi, námi í framhaldsdeild gagnfræða-
skóla eða hefur hliðstæða menntun, skal að öðru
jöfnu ganga fyrir um skólavist.
Verklegt nám fer fram í Borgarspítalanum og Lands-
spítalanum. Námstími er 214 ár og skiptist í 3 stig. Um-
sóknir um skólavist skal senda beint til skólans sam-
kvæmt auglýsingu. Nemendafjöldi 14—16. Fulllærður
röntgentæknir tekur laun eftir 18. fl. í launastiga opin-
berra starfsmanna og mega atvinnuhorfur teljast góðar.
TENINGALEIKUR
Hérna eru þrír teningar. Kastið
þeim og leggið þá svo í beina línu, hlið
við hlið, og svo skal ég segja ykkur,
hvað mörg augu hafa komið upp, án
þess að líta á teningana. Ef þú aðeins
gerir eins og ég segi, þá skal ég nefna
þér teningana.
Margfaldaðu augun á fyrsta ten-
ingnum með 2 ........ 8
Leggðuðvið ........ 13
Margfaldaðu töluna með 5 .. 65
r
. Í/-7 '/ /'/■ '
w>--
/(j j '^i
v 1
u
Leggðu við töluna á miðteningnum
6 .......................... 71
Margfaldaðu þessa tölu með 10..
......................... 710
Leggðu svo við þetta töluna á síð-
asta teningnum 2 .......... 712
Þá eru augun á teningunum: 4, 6,2.
Galdurinn er aðeins sá, að frá aðal-
summunni712— einu tölunni sem þú
nefnir mér, dreg ég töluna 250. Þá eru
eftir 462 eða 4—6—2. Þetta mun
mörgum þykja skrítinn galdur ef vel er
farió með hann.
/X.
LÍSA OG LÁSI
1. Langar þig í banana? Líttu á, Lísa.
Mamma gaf mér tvo, og ég skal gefa þér
annan.
2. Fyrst flettir þú hýðinu af, alveg eins og
ég geri, og svo kemur það ætilega í Ijós.
3. En gættu vel að hýðinu því stígi maður
á það þá rennur maður og dettur á rassinn!
44